Færsluflokkur: Kvikmyndir
9.3.2024 | 09:17
Siðlaus ríkisafskipti og mismunun
Íslenskir skattgreiðendur greiða framleiðendum bandarískra sjónvarpsþátta rúma 4 milljarða eða 35% heildarkostnaðar við framleiðslu þáttana. Er þetta ekki hámark siðleysis ríkisafskipta og niðurgreiðsla launa?
Engin siðferðileg eða fjárhagsleg rök réttlæta þessar gjafir til bandarískra stórgróðafyrirtækja, frekar en innlendra. Þetta er ósiðlegt, spilling andstæð hugmyndum markaðsþjóðfélagsins.
Sérkennilegt að talsmenn þess stjórnmálaflokks, sem vill samsama sig með frjálsri samkeppni, skuli gangast fyrir ólögum til að gefa atvinnugrein milljarða á kostnað skattgreiðenda.
Stjórnmálaelítan lætur sér vel líka. Varla geta sannfærðir sósíalistar verið ánægðir heldur með að auðvaldinu séu réttir milljarðar með þessum hætti af ríkisins fé og ekki einusinni krafist endurgreiðslu ef framleiðslan skilar arði. Allt skal fara í vasa auðkýfinganna sem framleiða skemmtiefnið.
Það er engin stjórnmálastefna sem réttlætir svona siðleysi. Samt segir enginn neitt og allir dansa með í vitleysunni.
Vonandi stígur þó ekki væri nema einn stjórnmálamaður fram og segir með þunga:
"Svona gerum við ekki." "Svona spillingu er ekki hægt að líða."
True Detective fékk fjóra milljarða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.10.2023 | 19:52
Samsæriskenningar og staðreyndir
Ég lauk í gær við að lesa bókina "Case Closed" (Málinu lokið) eftir Gerald Posner rannsóknarlögfræðing. Bókin fjallar um morðið á John F. Kennedy Bandaríkjaforseta 22. nóvember 1963 og gerir góða úttekt á þeim samsæriskenningum sem hafa verið uppi og niðurstöðum Warren nefndarinnar svokölluðu sem rannsakaði málið í upphafi á vegum stjórnvalda.
Niðurstöður Warren nefndarinnar voru trúverðugar og niðurstaðan, að Lee Harvey Oswald hefði verið einn að verki og myrt Kennedy. Ég var hissa þegar ég sá stórmynd Oliver Stone: JFK, sem var um bullkenningu Jim Garrison saksóknara í sambandi við morðið, að þessi þekkti leikstjóri skyldi gera slíkri bullkenningu svona hátt undir höfði.
Það var of einfalt fyrir marga að rugludallur eins og Lee Harvey Oswald hefði myrt Kennedy og leitað var allskyns skýringa og margvíslegar hugmyndir settar fram oft frekar af óskhyggju eða sjúkri ímyndun frekar en nokkuð annað. Haldið var fram, að bandaríska mafían stæði að baki morðinu, leyniþjónustur Bandaríkjanna, ríkisstjórn Kúbu, Sovétríkjanna. Já og jafnvel Lyndon B. Johnson viðtakandi forseti. Allar samsæriskenningar eru rangar og bók Posner er góð úttekt á því hvað gerðist. Niðurstaða Warren nefndarinnar var rétt og Posner sýnir enn betur fram á það í bók sinni en áður hefur verið gert. Málinu er lokið. Hin eina rétta niðurstaða liggur fyrir:
Lee Harvey Oswald myrti John F. Kennedy. Hann var einn að verki. Sönnunargögnin eru fullnægjandi og ekkert vitrænt sem hnekkir þeirri niðurstöðu eða styður samsæriskenningarnar.
20.5.2023 | 11:38
Life of Brian og mannréttindi
Kvikmyndin "The life of Brian" var gerð fyrir 44 árum. Myndin var af mörgum talin guðlast m.a. kaþólsku kirkjunni á Írlandi. Þó Monthy Python grínleikararnir sem gerðu myndina hafi iðulega farið á tæpasta vað, þá er kvikmyndin tær snilld. Svona kvikmynd væri ekki hægt að gera í dag vegna hugmyndafræðinnar um rétt fólks til að móðgast. Einna fremst í þeim flokki fer transhugmyndafræðin.
John Cleese helsti forstöðumaður Monthy Python hópsins og einn höfuðleikari myndarinnar Life of Brian, segir að hann hafi fengið aðvaranir og kröfur um breytingar vegna nýju hugmyndafræðinnar um "kynlast" að taka út atriði um mann sem vill vera kona og eiga börn. Hann segist ekki skilja þetta, þar sem þetta hafi þótt gott grín í meira en 40 ár.
Í kvikmyndinni er fundur hjá baráttuhópnum "The Peoples Front of Judea". Naður nefndur Stan, segist vilja vera kona og það eigi að kalla sig "Loretta" og hann vilji eiga börn. Cleese sem leikur Reg segir, að það sé ómögulegt af því að hann hafi ekki móðurlíf. En Stan/Loretta segir að það sé réttur hvers einstaklings, sem vill, að eiga börn.Reg ítrekar að viðkomandi hafi ekki móðurlíf, en að "The Peoples Front" ákveður að berjast fyrir rétti Stan/Lorettu til að eiga börn, þar sem það sé táknrænt fyrir baráttu gegn kúgun.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri Reykjavíkurborgar ákvað að verða þáttakandi í þessari kómedíu með því að færa hópnum "Trans Ísland" mannréttindaverðlaun Reykjavíkur árið 2023.
Hópurinn tekur þá væntanlega upp þar sem frá var horfið af "The Peoples Front of Judea",réttindabaráttu Lorettu fyrir því að eignast börn, þó hún hafi ekkert móðurlíf, þar sem það er barátta gegn kúgunaröflunum í þjóðfélaginu og réttur hvers einstaklings að eiga börn.
4.11.2012 | 11:38
Umhyggjusama járnfrúin
Margaret Thatcher fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands er einn merkasti stjórnmálamaður síðustu aldar. Hún barðist m.a. fyrir lækkun skatta, minni ríkisútgöldum og ríkið eyddi ekki um efni fram. Meðan hún var við völd sóttu vinstri menn í Bretlandi og víðar hart að henni. Hún varð tákn baráttunnar gegn vinstri öfgunum sem því miður hafa tekið völdin víða í Evrópu og stefna hverju þjóðfélaginu á fætur öðru í gjaldþrot.
Margaret Thatcher sagði oft "The problem with socialism is that in the end you run out of other peoples money".
Myndin sem búin var til af Margaret Thatcher af vinstri mönnum var sú að hún væri hörð, ósveigjanleg og frek. Þessi afskræmda mynd var að verulegu leyti tekin upp í kvikmyndina sem átti að vera um hana, en sýndi aðallega gamla konu sem þjáðist af elliglöpum.
Þessi mynd af Margaret Thatcher er röng. Fólk sem var í nánu samneyti við hana lýsir henni sem umhyggjusamri og tilfinningaríkri konu.
Í bók sem Barry Stevens fyrrum lífvörður hennar skrifar kemur fram að Thatcher sýndi fólki sem vann hjá henni mikla umhyggju og gerði margt sem fáum hefði dottið í hug að forsætisráðherra Breta mundi nokkrum sinnum gera. Bókarhöfundur lýsir því að Thatcher hafi m.a. sjálf gætt þess að starfsfólkið fengi að drekka og borða og ekki vílað fyrir sér að fara á fjórar fætur til að hreinsa hundaskít af skóm lífvarðar sem varð fyrir því óhappi að stíga á slíkt rétt fyrir utan Downing stræti 10.
Lýsing lífvarðarins sem var ekki stuðningsmaður Thtacher í upphafi á því hvað hún lét sér umhugað um starfsliðið hefði það eins gott og unnt var þegar þau þurftu að vera með henni á hátíðisdögum er mjög athyglisverð. Enda segir Barry Stevens að hún hafi sýnt starfsliðinu svo mikla móðurlega umhyggju að hann hefði ekki hikað við að standa í skotlínunni til að vernda hana ef á þyrfti að halda.
Oft er dregin upp röng mynd af þeim einstaklingum sem vinna iðulega vanþakklátt starf í þágu fjöldans. Það á við um Margaret Thatcher og marga aðra stjórnmálamenn sem skara fram úr og láta ekki feykja sér til eftir því hvernig fjöldinn hrópar hverju sinni og vindurinn blæs.
Gera þarf nýja og raunsanna kvikmynd um Margaret Thatcher. Draga þarf fram hvað hún kom mörgu góðu til leiðar og leiddi Bretland út úr kreppu og stjórnleysi.
2.8.2011 | 23:48
200 innheimtulögfræðingar
Meiri hluti ríkisstjórnarinnar á Alþingi, Þráinn Bertelsson fór mikinn í ljósvakamiðlum í kvöld vegna Kvikmyndaskóla Íslands og gerði kröfu til að hann fengi rekstrarfé úr ríkissjóði og sagði það merkilegra en mennta 200 innheimtulögfræðinga.
Kvikmyndaskóli Íslands er allra góðra gjalda verður og vel getur verið rétt að skólinn fái aukið fé úr ríkissjóði. Það er óviðkomandi námi annars fólks. Ég veit ekki til þess að nokkur skóli á Íslandi mennti innheimtulögfræðinga eða það sé sérstök námsbraut. Þráni Bertelssyni finnst hins vegar rétt að gera lítið úr lögfræðinámi og það er í samræmi við aðra sleggjudóma þessa manns.
Ekki er hægt að áfellast Þráinn Bertelsson fyrir vanþekkingu í skóla-og menntamálum en hitt ætti hann að vita, að hann er í sama stjórnmálaflokki og menntamálaráðherra og gæti því borið erindi Kvikmyndaskóla Íslands beint undir hana. Hann gæti komið fordómum sínum varðandi lögfræðinám á framfæri milliliðalaust og gert kröfur varðandi Kvikmyndaskólann. Þráinn er altént líftaug gjörspilltrar ríkisstjórnar, sem mundi vafalaust ekki muna um einn kepp í sláturtíðinni þegar svo mikilvægur maður á í hlut.
Þráinn getur því sparað sér þann pópúlísma og sýndarmennsku sem hann viðhafði í sjónvarpi í kvöld en unnið vinnuna sína á þingflokksfundum Vinstri grænna en undir þá heyra þessi mál.
Skrýtið að þessi heiðurslaunþegi skuli aldrei geta opnað munninn án þess að veitast að öðru fólki og reyna að gera lítið úr því.
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 196
- Sl. sólarhring: 835
- Sl. viku: 4017
- Frá upphafi: 2427817
Annað
- Innlit í dag: 183
- Innlit sl. viku: 3719
- Gestir í dag: 181
- IP-tölur í dag: 177
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
- Adolf Friðriksson
- Jón Þórhallsson
- Ágúst H Bjarnason
- Agný
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Andrés Magnússon
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Jón Þóroddur Jónsson
- Áslaug Friðriksdóttir
- Auðbergur Daníel Gíslason
- Baldur Hermannsson
- Námsmaður bloggar
- Jón Ríkharðsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kristjánsson
- Einar Gunnar Birgisson
- Björn Halldórsson
- Björn Júlíus Grímsson
- SVB
- Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
- Carl Jóhann Granz
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Dominus Sanctus.
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Helga Kristjánsdóttir
- Þórólfur Ingvarsson
- Dögg Pálsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Elle_
- Einar Björn Bjarnason
- Einar G. Harðarson
- Eiríkur Guðmundsson
- Elinóra Inga Sigurðardóttir
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- ESB og almannahagur
- Ester Sveinbjarnardóttir
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Jón Kristjánsson
- Atli Hermannsson.
- Baldur Gautur Baldursson
- Fríða Björk Einarsdóttir
- Friðrik Óttar Friðriksson
- Frjálshyggjufélagið
- Jakob Þór Haraldsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Georg Eiður Arnarson
- Gestur Halldórsson
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Guðmundur Pálsson
- Grazyna María Okuniewska
- Grétar Pétur Geirsson
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Guðmundur Júlíusson
- gudni.is
- Jón Þórhallsson
- Gunnar Freyr Hafsteinsson
- Gústaf Níelsson
- Gústaf Adolf Skúlason
- Guðjón Ólafsson
- Gylfi Þór Þórisson
- Haraldur Baldursson
- Halldór Jónsson
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Hannes Sigurbjörn Jónsson
- Haukur Baukur
- Birgir Guðjónsson
- Sigurbjörg Eiríksdóttir
- Heimir Ólafsson
- G Helga Ingadottir
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Himmalingur
- Hildur Sif Thorarensen
- Eiríkur Harðarson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Haraldur Huginn Guðmundsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Einar Ben
- Inga Lára Helgadóttir
- Inga G Halldórsdóttir
- Jakob S Jónsson
- Einar B Bragason
- Jens Guð
- jósep sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Jónas Egilsson
- Jón Pétur Líndal
- Jón Snæbjörnsson
- Jón Valur Jensson
- Jórunn Ósk Frímannsdóttir
- Eyþór Jóvinsson
- Júlíus Björnsson
- Júlíus Valsson
- Júlíus Brjánsson
- Bergur Thorberg
- Katrín
- Kjartan Pálmarsson
- Kjartan Eggertsson
- Kjartan Magnússon
- Högni Snær Hauksson
- Kolbrún Baldursdóttir
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristján H Theódórsson
- Bjarki Steingrímsson
- Steingrímur Helgason
- Konráð Ragnarsson
- Lífsréttur
- Loncexter
- Guðjón Baldursson
- Lúðvík Júlíusson
- Lúðvík Lúðvíksson
- Margrét St Hafsteinsdóttir
- Magnús Jónsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Alfreð Símonarson
- Markús frá Djúpalæk
- Marta Guðjónsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Morgunblaðið
- Natan Kolbeinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Örn Jónsson
- Ólafur Sveinsson
- Ólafur Fr Mixa
- Ómar Bjarki Smárason
- Páll Ingi Kvaran
- Pálmi Gunnarsson
- Pjetur Stefánsson
- Rafn Gíslason
- Ragnar G
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Ragnar L Benediktsson
- Rannveig H
- Árni Gunnarsson
- Ragnheiður Ólafsdóttir
- Rósa Harðardóttir
- ragnar bergsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Samstaða þjóðar
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigrún Jóna Sigurðardóttir
- Sigurbjörn Sveinsson
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Sigurjón Þórðarson
- Sigurður Jónsson
- Skattborgari
- Haraldur Pálsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Guðnason
- Jóhann Pétur
- Sverrir Stormsker
- Sturla Bragason
- Sumarliði Einar Daðason
- Ólafur Ingi Hrólfsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Björn Bjarnason
- Óli Björn Kárason
- Jón Þórhallsson
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þórhallur Guðlaugsson
- Þórhallur Heimisson
- Þorsteinn Erlingsson yngri
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Valdimar H Jóhannesson
- Valsarinn
- Valur Arnarson
- Vefritid
- Ingunn Guðnadóttir
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Vilhjálmur Eyþórsson
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Kristinn Ingi Jónsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Ívar Pálsson