Leita í fréttum mbl.is

Slökkt á friðarljósi.

Það var gott að Yoko Ono skyldi ákveða að tendra friðarljós í Viðey til minningar um John Lennon. Friðarljósið er ágætt og táknrænt og lífgar upp á tilveruna en veldur engu tjóni.  Mér finnst satt að segja miður að það skuli slökkt á ljósinu núna og það ekki tendrað fyrr en í haust. Mér fyndist rétt að breyta þessu þannig að það væri slökkt á ljósinu þann dag sem John Lennon var myrtur en að öðru leyti mundi það loga. Þá væri það ennþá táknrænna þ.e. við þurfum alltaf að muna eftir að friður er ekki sjálfsagður og það að slökkva á ljósinu óhamingjudaginn þegar geðveiki ógæfumaðurinn myrti John Lennon er táknrænt fyrir það að jafnvel þeir sem gera engum neitt og boða frið og kærleika eru ekki óhultir.

Það þurfa allir að vera á verði og mér finnst friðarljósið einmitt gott tákn um mikilvægi þess að berjast fyrir friði og þess að vera samt á verði.


Bloggfærslur 9. desember 2007

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.6.): 130
  • Sl. sólarhring: 948
  • Sl. viku: 4787
  • Frá upphafi: 2557853

Annað

  • Innlit í dag: 126
  • Innlit sl. viku: 4463
  • Gestir í dag: 126
  • IP-tölur í dag: 124

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband