Leita í fréttum mbl.is

Hvað gerist í vikunni?

Það eru vafalaust margir spenntir fyrir því að sjá hvað gerist á morgun varðandi hlutabréfavísitöluna og gengi krónunnar.  Þá verður fróðlegt að sjá hvort að Seðlabankinn og ríkisstjórnin ætli að láta reka á reiðanum eins og gert hefur verið svo lengi í efnahagsmálum.  Forsætisráðherra sá ekki ástæðu til þess í síðustu viku að ríkisstjórnin gerði neitt í málinu.  En það sjá það flestir aðrir að brýna nauðsyn ber til að farið verði vandlega yfir það með hæfustu sérfræðingum okkar í hagstjórn hvernig á að bregðast við og það sem fyrst til að freista þess að komast hjá efnahagshruni.

Það er ljóst að íslenska flotkrónan gengur ekki. Henni fylgir allt of mikill óstöðugleiki.  Sagt var að helsti kosturinn við að vera með sjálfstæðan gjaldmiðil væri að þá hefðum við betri stjórn á efnahagsmálunum. Er það kostur eða er það galli. Eins og nú horfir þá verður ekki annað séð en efnahagsstjórnin hafi verið vægast sagt misheppnuð. Meiri sveiflur eru hjá okkur en hjá nokkurri annarri þjóð í Evrópu.  Erlend skuldasöfnun hefur verið meiri en hjá nokkurri annarri þjóð í Evrópu. Þá hefur ríkisbáknið þanist út meir hjá okkur í stjórnartíð Sjálfstæðisflokksins en í nokkru öðru landi í Evrópu.

Ber þetta vott um góða efnahagsstjórn? Ber þetta vott um góða ríkisstjórn?

Þegar við Frjálslynd mótuðum þá stefnu að gjaldmiðillinn yrði ekki látinn fljóta heldur að hann yrði bundinn við gengiskörfu helstu viðskiptalanda okkar með ákveðnum vikmörkum, þá var það til að skapa stöðugleika í þjóðfélaginu og til þess að losna við verðtryggingu lána. Nú liggur fyrir að það hefði verið skynsamlegt að fara að okkar tillögum í staðinn fyrir að ana beint á foræðið eins og ríkisstjórnin hefur gert.


Bloggfærslur 24. mars 2008

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.6.): 339
  • Sl. sólarhring: 479
  • Sl. viku: 5234
  • Frá upphafi: 2557209

Annað

  • Innlit í dag: 313
  • Innlit sl. viku: 4901
  • Gestir í dag: 309
  • IP-tölur í dag: 304

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband