Leita í fréttum mbl.is

Ómarkviss umrćđa um Evrópusambandiđ?

Magnús Stefánsson ţingmađur Framsóknarflokksins bendir réttilega á ţađ ađ umrćđan um ađild ađ Evrópusambandinu sé ómarkviss og leiđarsteina vanti til ađ ţoka henni áfram. Magnús telur ađ ţađ verđi best gert međ ţví ađ samningsmarkmiđ verđi mótuđ og síđan borin undir ţjóđaratkvćđagreiđslu. Ţessar hugmyndir eru góđra gjalda verđ en ţví má ekki gleyma ađ Evrópusambandsađild er ekki á dagskrá hjá ţessari ríkisstjórn eins og skýrt er tekiđ fram í stjórnarsáttmálanum. Ţađ er ţví til of mikils mćlst ađ ćtla ađ  fela ríkisstjórn sem hefur ekki máliđ á dagskrá ađ móta samningsmarkmiđ.


Vörubílstjórar njóta samúđar en mega ekki ganga of langt.

Ađgerđir vörubílstjóra undanfarna daga hafa vakiđ verđskuldađa athygli og notiđ almennrar velvildar almennings ţrátt fyrir ađ ađgerđirnar hafi hingađ til bitnađ á almennum borgurum í umferđinni. Bćđi vörubílstjórum og venjulegum bifreiđaeigendum finnst ríkiđ leggja of miklar álögur á olíur og bensín.

Mikilvćgt er fyrir vörubílstjóra ađ hafa almenning međ sér í baráttunni. Ađgerđir eins og vörubílstjórarnir standa fyrir eru jú til ţess ađ fá almenning til liđs viđ sig og gera ráđamönnum grein fyrir ţví hvađ máliđ er alvarlegt. Ţađ hefur vörubílstjórum tekist.

Vörubílstjórar mega vita ţađ ađ ýmsir sem sitja á Alţingi ţar á međal ég telja nauđsynlegt ađ draga úr álögum ríkisins á bensín og olíur og viđ eigum ţannig fulla samstöđu međ Vörubílstjórum.  Ríkisstjórnin hefur hins vegar traustan meirihluta og án vilja ríkisstjórnarinnar og ríkisstjórnarflokkanna ţá nćst ekki sá árangur sem vörubílstjórar stefna ađ. Ţađ hlítur ţví ađ vera umhugsunarefni fyrir vörubílstjóra hvort ţađ er eđlilegt ađ beina mótmćlaađgerđum gegn Alţingi. Ţá hlítur ţađ líka ađ vera umhugsunarefni hvort ekki sé h ćtta á ađ gengiđ verđi of langt ţannig ađ sú samúđ sem vörubílstjórar hafa međ málstađ sínum snúist gegn ţeim ef of lengi er haldiđ áfram međ ađgerđir sem bitna fyrst og fremst á fólki sem hefur sömu hagsmuni og sjónarmiđ og vörubílstjórar.


mbl.is Sturta möl fyrir framan Alţingi
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Bloggfćrslur 1. apríl 2008

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri fćrslur

Júní 2025
S M Ţ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.6.): 700
  • Sl. sólarhring: 756
  • Sl. viku: 5595
  • Frá upphafi: 2557570

Annađ

  • Innlit í dag: 650
  • Innlit sl. viku: 5238
  • Gestir í dag: 620
  • IP-tölur í dag: 606

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband