Leita í fréttum mbl.is

Pólitíska veðurfræðin hefur ýmsar birtingarmyndir.

Trúmenn á hnattræna hlýnun af mannavöldum vilja grípa til ómarkvissra og mjög dýrra lausna.  Hnattræn hlýnun hefur verið undanfarin ár um það er ekki deilt en það er hins vegar ágreiningsefni af hverju hún stafar.  Er sú fullyrðing rétt að það hafi líka orðið hnattræn hlýnun á Venus og Mars nálægustu reikisstjörnum í okkar sólkerfi.  Hnattræna hlýnunin í Venus og Mars er tæpast af mannavöldum eða vegna losunar koltvísýrings út í andrúmsloftið.

Það er varasamt að grípa til dýrra og ómarkvissra aðgerða sem geta kostað meiri vandamál en það vandamál sem ætlað er að leysa. Ein birtingarmynd þess er ríkisstyrkt framleiðsla á lífrænu eldsneyti í Evrópu og Bandaríkjum Norður Ameríku.  Loksins hafa nokkrir þjóðarleiðtogar bæði í forsætisráðherra Bretlands og tveir leiðtogar Suður Ameríku ríkja varað við áhrifum sem framleiðsla á lífrænu eldsneyti hefur á matarforða heims. 

Framleiðsla á lífrænu eldsneyti hefur þegar átt sinn hlut í hækkun matvælaverðs sem bitnar mest á þeim milljarði manna í heiminum sem þarf að lifa á 100 krónum á dag eða minna. Velmegunarríki vesturlanda mættu hugsa til þessa fólks áður en þeir láta trúboða hnattrænu hlýnunarinnar af mannavöldum og dýr og ómarkviss úrræði þeirra valda óbætanlegum skaða fyrir mannlífið á jörðinni.


mbl.is Gagnrýna framleiðslu lífræns eldsneytis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kjararýrnun.

Síðustu  12 mánuði hafa kjör almennings ekki batnað heldur versnað miðað við þá niðuarstöðu að vísitala neysluverðs hafi hækkað töluvert meir en launavísitala. Því  miður virðist stefna ríkisstjórnarinnar leiða til þess að þessi kjararýrnun haldi áfram hvað sem líður kjarasamningum á vinnumarkaðnum.


mbl.is Launavísitala hækkar minna en vísitala neysluverðs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 22. apríl 2008

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.6.): 701
  • Sl. sólarhring: 757
  • Sl. viku: 5596
  • Frá upphafi: 2557571

Annað

  • Innlit í dag: 651
  • Innlit sl. viku: 5239
  • Gestir í dag: 621
  • IP-tölur í dag: 607

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband