Leita í fréttum mbl.is

Að sjálfsögðu.

Að sjálfsögðu á að fella eftirlaunalög æðstu embættismanna ríkisins úr gildi. Að sjálfsögðu á líka að afnema áunninn réttindi þeirra sem hafa fengið þau samkvæmt þessum ranglátu eftirlaunalögum.

Vafalaust spyrja margir hvort þeir sem hafi þegar fengið þau réttindi sem kveðið er á um í lögunum geti ekki farið í bótamál verði réttindi þeirra afnumin.  Ég segi þá skulum við láta þá einstaklinga sem það kjósa gera  það.  Láta hvern og einn standa fyrir máli sínu og opinbera sig fyrir þjóðinni. Það væri til afspurnar ef hálaunamennirnir í sendiherra- eða forstjórastöðunum sæktu mál gegn íslenska ríkinu til að geta haldið áfram að vera á tvöföldum launum.

Ingibjörg Sólrún hefur gefið afdráttarlausa yfirlýsingu. Hún er að vísu ekki talsmaður ríkisstjórnarinnar í þessu máli.  Því verður ekki trúað að hún gefi svona yfirlýsingar nema fyrir liggi vilji í ríkisstjórninni til að fella eftirlaunalögin úr gildi. 

Nú bíð ég spenntur eftir því hvað talsmaður ríkisstjórnarinnar í þessu máli og svo mörgum öðrum, Geir H. Haarde, hefur um málið að segja. Hann hefði átt að tjá sig um málið fyrstur ekki rétt?


mbl.is Eftirlaunalög Alþingis verða felld úr gildi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðilega hátíð.

Gleðilega Hvítasunnu. Hvítasunnan er haldin hátíðleg til minningar um það að heilagur andi kom yfir lærisveina Jesú og markar þau tímamót að þeir taka að útbreiða fagnaðarerindið.

Uppstigningardagur er nokkru á undan Hvítasunnu og kallaður á dönsku Jesus himmelfartsdag. Þá er minnst þegar Jesú steig upp til himna frá Ólívufjallinu fyrir austan Jerúsalem.

Í fyrrasumar var ég á ferð í Palestínu og átti þess m.a. kost að koma á þann stað þar sem Jesús átti að hafa stigið upp til himna.  Sá staður og minningarsúlan á staðnum voru látlaus og báru þess ekki vitni að þarna hefði merkur atburður gerst. Raunar fannst mér að mörgu leyti sem Gyðingar hefðu ekki mikinn áhuga á að gera vegsemd kristninnnar mikla.


Bloggfærslur 11. maí 2008

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.6.): 14
  • Sl. sólarhring: 862
  • Sl. viku: 4671
  • Frá upphafi: 2557737

Annað

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 4348
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 11

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband