Leita í fréttum mbl.is

Illur fengur illa forgengur.

Sjálfstæðisflokkurinn í borgarstjórn Reykjavíkur uppsker samkvæmt þessari skoðanakönnun eins og hann hefur til sáð. Sjálfstæðisflokkurinn ákvað að stela meiri hlutanum með því að setja borgarstjóraembættið á uppboð. Ólafur F. Magnússon  hæstbjóðandi átti ekki í vanda með að ganga á grið og eiða við fyrri meiri hluta og líflækni sinn og vin Dag B. Eggertsson. 

Fylgi Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn er í sögulegu lágmarki samkvæmt þessari skoðanakönnun og hlítur að vera Sjálfstæðisfólki umhugsunarefni. Sá draumur sem Sjálfstæðismenn hafa haft um að ná hreinum meiri hluta í Reykjavík verður ekki að veruleika með vinnubrögðum eins og flokkurinn hefur viðhaft í borgarstjórn.

Ólafur F. Magnússon uppsker með sama hætti og Sjálfstæðisflokkurinn  eins og hann hefur til sáð. Verst að margir átta sig ekki á því að hann og helstu sporgöngumenn hans eru gengin úr Frjáslynda flokknum en koma úr Íslandshreyfingunni. Frjálslyndi flokkurinn ber því ekki flokkslega ábyrgð á Ólafi F. Magnússyni eða núverandi meiri hluta.


mbl.is Fylgi Sjálfstæðisflokks minnkar mikið í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 13. maí 2008

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.6.): 16
  • Sl. sólarhring: 864
  • Sl. viku: 4673
  • Frá upphafi: 2557739

Annað

  • Innlit í dag: 13
  • Innlit sl. viku: 4350
  • Gestir í dag: 13
  • IP-tölur í dag: 13

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband