Leita í fréttum mbl.is

Okurverđ á eldsneyti.

Ég tók eftir ţví ţegar ég var staddur í einu Evrulandinu fyrir rúmum 2 vikum síđan ađ verđ á bensíni og díselólíu var töluvert lćgra en hér. Ţá kostađi bensínlíterinn 0.94 Evrur en líterinn af bensíni kostađi eina Evru.  Ţá kostađi meira ađ kaupa Evrur fyrir íslenskar krónur en ţađ kostar í dag. Frá ţeim tíma hefur gengi krónunnar hćkkađ en samt heldur eldsneytiđ áfram ađ hćkka og hćkka.

Ég geri mér grein fyrir ţví ađ álögur ríkisins skipta máli viđ verđlagningu á eldsneyti. Álögur ríkisins á eldsneyti eru of miklar. Viđ búum í landi ţar sem einkabíllinn gegnir mun mikilvćgara hlutverki en víđast annars stađar í okkar heimshluta ţar sem valmöguleikar á farartćkjum t.d. almenningssamgöngum eru miklu betri en hér og veđurlag gerir fýsilegra ađ nota vistvćnni fararskjóta eins og t.d. reiđhjól.

Hátt heimsmarkađsverđ á eldsneyti og takkmörkuđ samkeppni á olíumarkađnum hér réttlćtir ţá kröfu ađ ríkiđ stórlćkki gjaldtöku sína af olíum og bensíni. Ţađ tekur tíma fyrir fólk ađ komast á hagkvćmari fararskjóta hvađ eldsneytiseyđslu varđar.

Hvernig vćri ţví ađ ríkisvaldiđ lćkkađi álögur sínar á bensín og olíur tímabundiđ í 2 ár og felldi niđur öll gjöld nema virđisaukaskatt af farartćkjum sem eyđa minna en 6 lítrum á hverja hundrađ ekna kílómetra?


mbl.is Eldsneytisverđ snarhćkkar
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Ofstoparíkisstjórnir eiga ţađ á hćttu ađ fólk hlýđi ţeim ekki.

Hvađ á ađ gera ţegar sjómađur rćr kvótalaus? Viđ höfum lög í landinu um stjórn fiskveiđa. Ásmundur er ađ brjóta gegn ávkćđum ţeirra laga.  Ásmundur getur hins vegar bent á ađ ţessi lög um stjórn fiskveiđa hafa veriđ úrskurđuđ brjóta gegn mannréttindum af Mannréttindanefnd Sameinuđu ţjóđanna.  Hann getur bent á ađ nefndin telur ađ ţađ gangi ekki ađ sumir fiskimenn fái ókeypis ţađ sem ađrir ţurfa ađ kaupa.

Íslenska ríkisstjórnin hefur brugđist í ţessu máli. Sjávarútvegsráđherra hefur brugđist í ţessu máli. Strax og álit Mannréttindanefndar Sameinuđu ţjóđanna lá fyrir átti sjávarútvegsráđherra ađ hafa forgöngu um ađ gerđar yrđu breytingar á kvótakerfinu. Einar Guđfinnsson sjávarútvegsráđherra var í ţeirri einstöku stöđu ađ geta náđ ţjóđarsátt um nýtt fiskveiđistjórnarkerfi. En hvorki sjávarútvegsráđherra né ríkisstjórnin kusu ađ fara ađ áliti Mannréttindanefndarinnar. Ríkisstjórnin kaus ađ halda áfram ađ brjóta mannréttindi á borgurum sínum.

Ríkisstjórnin og sjávarútvegsráđherra ćttu ađ minnast orđa Ţorgeirs Ljósvetningagođa á Alţingi áriđ 1000 ţegar viđ trúnni var tekiđ af lýđ ţegar hann sagđi: "Ef viđ slítum í sundur lögin ţá slítum viđ í sundur friđinn.


mbl.is Mótmćlir kvótakerfinu međ veiđum
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Bloggfćrslur 14. júlí 2008

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri fćrslur

Júní 2025
S M Ţ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.6.): 217
  • Sl. sólarhring: 727
  • Sl. viku: 4874
  • Frá upphafi: 2557940

Annađ

  • Innlit í dag: 208
  • Innlit sl. viku: 4545
  • Gestir í dag: 205
  • IP-tölur í dag: 199

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband