Leita í fréttum mbl.is

Burt međ ţá

saving icelandSamtökin Saving Iceland hafa um nokkurra ára skeiđ mótmćlt ţví ađ byggđ yrđu vistvćn orkuver á Íslandi. Ađallega hafa mótmćlin beinst gegn byggingu Kárahnjúkavirkjunar en nú einnig ađ jarđvarmaveitunni á Hellisheiđi. Samtökin leggja sérstaka rćkt viđ ađ mótmćla vistvćnustu orkuverum í veröldinni. Ţá hafa samtökin mótmćlt stóriđjustefnu.  Félagar í  samtökunum hafa sama rétt og ađrir til ađ halda fram skođunum sínum og mótmćla í lýđfrjálsu landi. Samt sem áđur verđa mótmćlin ađ vera innan ţeirra marka sem lög heimila. Vandamál viđ mótmćli Saving Iceland hafa komiđ til vegna ţess ađ félagar og/eđa áhangendur samtakanna hafa iđulega fariđ langt út fyrir eđlileg mörk í mótmćlum og stađiđ fyrir skemmdarverkum og lögbrotum. Nefna má í ţví sambandi skemmdarverk sem unniđ var hjá rćđismanni Íslands í Edinborg en einnig má benda á ađ lögregluyfirvöld hafa oft ţurft ađ hafa afskipti af mótmćlum samtakanna. Áriđ 2006 voru 14 félagar í samtökunum kćrđir og dćmdir fyrir ađ standa í skemmdarverkum og fara ekki ađ tilmćlum lögreglu svo dćmi  séu tekin. Ţegar ţetta er skrifađ hafa mótmćli samtakanna viđ Hellisheiđarvirkjun veriđ friđsamleg. íslensk sumarrigning er meira en margir mótmćlendurnir gátu ţolađ og urđu ţví ađ sćkja sér ađstođ og hlýju frá ţeim orkuverum sem mótmćli ţeirra beinast gegn. 

asta ţorleifsdottirŢó á ţessum inngangi megi skilja ađ ég er ekki sérstakur ađdáandi samtakanna Saving Iceland, ţá hćkkuđu ţau verulega í áliti hjá mér í dag.  Vistvćni varaformađur Orkuveitu Reykjavíkur Ásta Ţorleifsdóttir úr Íslandshreyfingunni segist í frétt dást ađ hugsjón samtakanna Saving Iceland. Hún bauđ samtökunum óformlega ađ sćkja um styrk hjá fyrirtćkinu. Varaformađur Orkuveitunnar vildi  hlutast til um ađ mótćlasamtökin, hvers félagar eru margdćmdir fyrir óhlýđni og skemmdarverk, fengju styrk af almannafé  frá Orkuveitu Reykjavíkur.  Í sjálfu sér kom mér ţessi hugsun Ástu Ţorleifsdóttur “umhverfisverndarsinna” ekki á óvart. Hún er greinilega vön ađ vasast ţannig međ opinbert fé ađ henni finnst eđlilegt ađ ţví megi eyđa eftir hentugleikum. Ţá hefur hún vafalaust einnig haft  í huga ţegar Landsvirkjun af gjafmildi sinni styrkti formann Íslandshreyfingarinnar um margar milljónir vegna mótmćla hans viđ Kárahnjúkavirkjun. Formanninum fannst eđlilegt ađ taka viđ styrknum frá Landsvirkjun og hvers vegna ţá ekki Saving Iceland.. Nú brá svo viđ ađ hugsjónafólkiđ í Saving Iceland sagđi nei takk viđ Ástu Ţorleifsdóttur. Ţví fannst ekki eđlilegt ađ ţiggja styrk úr hendi ţeirra sem mótmćli ţeirra beinast gegn. Ég tek ofan fyrir ţessari afstöđu félaga Saving Iceland.  Afstađa nefndardrottningar Reykjavíkur  er hins vegar dćmigerđ fyrir ţann fáránleika sem einkennir meirihlutann í  Reykjavík. Í sama dagblađi og lesa mátti frétt um ađ Saving Iceland hefđi kurteislega afţakkađ bođ Ástu Ţorleifsdóttur varaformanns Orkuveitunnar, var frétt ţar sem Ásta, sem fćr yfir hálfa  milljón á mánuđi fyrir  nefndarsetur og önnur viđvik hjá Reykjavíkurborg, kvartar yfir ţví ađ ţurfa ađ borga símkostnađ og akstur fyrir REI. Ţađ er raunar međ ólíkindum ađ milljarđafyrirtćkiđ REI skuli gera svona illa viđ stjórnarmann sinn. Ásta upplýsir ađ hún fái 125 ţúsund á mánuđi fyrir stjórnarsetu hjá REI en ţađ er ekki nóg ţví ađ engir aksturspeningar fylgja og símann sinn verđur hún ađ borga sjálf. Stjórn Orkuveitunnar gćti e.t.v.hlutast til um ađ veita Ástu  styrkinn sem  Saving Iceland hafnađi. Ţá gćti ţessi umhverfissinni sem er varaformađur Orkuveitunnar haldiđ áfram ađ nota bílinn sinn til hins ítrasta auk símans. Ţađ er engin ástćđa til ţess ađ umhverfisverndarsinnar í orđi noti vistvćn farartćki. Eđa hvađ?
Af orđum og afstöđu nefndardrottningar Reykjavíkurborgar Ástu Ţorleifsdóttur ađ dćma, virđist brýnna ađ sérgróđa liđinu í stjórn Reykjavíkurborgar verđi vikiđ burt en félögum úr Saving Iceland.

Greín í 24 stundum miđvikudag 16.7.2008.


Bloggfćrslur 16. júlí 2008

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri fćrslur

Júní 2025
S M Ţ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.6.): 236
  • Sl. sólarhring: 615
  • Sl. viku: 4893
  • Frá upphafi: 2557959

Annađ

  • Innlit í dag: 227
  • Innlit sl. viku: 4564
  • Gestir í dag: 222
  • IP-tölur í dag: 215

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband