Leita í fréttum mbl.is

Óvitar

Nigel Farage, fjölmiðlamaður og fyrrum stjórnmálamaður sagði frá því að árið 1992 hefði danska ríkið heimilað komu 300 Palestínumanna til Danmerkur. Af þeim hefðu 62% verið glæpamenn og 34% af börnum þeirra hefðu líka orðið glæpamenn. Farage sagði í sjálfu sér ekki vera að agnúast út í þennan hóp en vekja athygli á því að það skipti máli hvaðan inflytjendur kæmu. 

Þjóðir heims hafa reynt eins og þær geta, að losna við að fá til sín innflytjendur frá Gasa. Egyptaland, sem á landamæri að Gasa hefur rammlokað þeim, þangað til núna til að reyna að koma hjálp til almennra borgara og gæta þess að Hamas liðar steli henni  ekki. Þeim dettur ekki í hug að heimila stórum hópum Gasabúa að setjast að í Egyptalandi og það dettur Saudi Arabíu, Jórdaníu, Sýrlandi, Líbanon, Flóaríkjunum og Tyrklandi ekki heldur þó þar sé um líka menningu og sömu trúarbrögð að ræða. 

En litla Ísland rekur vitlausustu stefnu í útlendingamálum sem til er á þessari hnattkringlu. 

Dómsmálaráðherra sagði í fréttum RÚV sunnudaginn 10.desember: 

"Allir frá Gasa, sem hafa sótt um alþjóðlega vernd hér á landi, hafa nær undantekningarlaust fengið hana í 99% tilvikum."

Þá sagði hún að unnið væri að því að flýta og setja í forgang afgreiðslu fjölskyldusameiningar Palestínumanna. 

Er það virkilega svo, að við á litla Íslandi viljum helst fá þennan hóp til okkar og teljum við að þjóðarhagur batni við það eða öryggi íslenskra borgara. Já og erum við sem þurfum á næsta ári að eyða 200 milljörðum í greiðslu vaxta af yfirdráttarlánum íslenska ríkisins svo aflögufær, að við séum best til þess fallin að bjarga heimsbyggðinni og kalla til okkar þann hóp, sem aðrar þjóðir forðast sem best þær geta,að taka við? 

Siðferðilegur heigulsháttur

Kommúnistinn Guterres reyndi að knýja fram einhliða vopnahlé í þágu Hamas. Bandaríkin beittu neitunarvaldi. Bretar sýndu "siðferðilegan heigulshátt" eins og segir í ritstjórnargrein DT um þá afstöðu þeirra að sitja hjá í stað þess að standa með Bandaríkjamönnum. Að sjálfsögðu sýndu forsætisráðherrar Norðurlanda sama siðferðilega heigulsháttinn með afstöðu sinni. 

Í tillögunni var engin krafa gerð á hendur Hamas um að skila gíslum og láta þá Hamas liða sæta ábyrgð, sem tóku þátt í og bera ábyrgð á hryðjuverkaárásinni á Ísrael 7.október. 

Á sama tíma er ríkisstjórn Abu Dhabi að vinna að vopnahléi á grundvelli samninga, sem er mun vitrænni nálgun en upphlaup Guterres, sem Katrín Jakobsdóttir studdi. Ekki er vitað um afstöðu utanríkisráðherra, þar sem hann hefur kosið þögnina.

Það komst á vopnahlé fyrir tilstuðlan Abu Dhabi fyrir nokkru. Hamas rauf það vopnahlé, þegar þeir töldu sér henta. En nú þegar þrengist að þeim, þá rísa Gyðingahatarar, nytsamir sakleysingjar og þeir sem sýna siðferðilegan heigulshátt, upp og krefjast þess að það verði vopnahlé, án þess að árásaraðilarnir, Hamas sem hófu þessa vegferð þurfi að gera eitt eða neitt og megi halda áfram að stela neyðaraðstoð frá fólkinu á Gasa og halda þeim 140 gíslum, sem þeir eru búnir að misþyrma, pína og nauðga eins og ekkert hafi í skorist. 

Á hvaða vegferð eru stjórnmálamenn, sem taka afstöðu með hryðjuverkasamtökum, án þess að fordæma gerðir þeirra og án þess að benda á hvað þurfi að gerast verði vopnahléi komið á. 

Svo má spyrja á hvaða vegferð er fréttastofa RÚV sem birtir einhliða fréttir til stuðnings Hamas og hamast við að auglýsa fámenna mótmælafundi og göngur stuðningsfólks Hamas á Íslandi. Þessi fréttamennska er fyrirlitleg og allrar gagnrýni verð en því miður ekkert annað en við má búast af þessari fréttastofu sem virðist hafa það helsta markmið andstætt lögum um RÚV að brjóta niður íslenska þjóðmenningu og fylla landið af innflytjendum frá múslimaríkjum svo gáfulegt svo sem það nú er.

Bloggfærslur 11. desember 2023

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 83
  • Sl. sólarhring: 84
  • Sl. viku: 4606
  • Frá upphafi: 2544040

Annað

  • Innlit í dag: 67
  • Innlit sl. viku: 4253
  • Gestir í dag: 59
  • IP-tölur í dag: 58

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband