Leita í fréttum mbl.is

Hver gætti hagsmuna sr. Friðriks?

Stjórn KFUM og K hafa auglýst í dagblöðum, að þau telji hafið yfir skynsamlegan vafa, að ásakanir um kynferðislegt ofbeldi af hálfu sr. Friðriks Friðrikssonar séu réttar. Í framhaldi af því ákvað stjórn Vals að taka niður styttu af sr. Friðrik og væntanlega verður kapellan sem kennd er við hann endurskírð.

Athyglisvert var að fylgjast með Kastljósi í kvöld og fá upplýsingar um á hvaða grundvelli niðurstaða stjórnar KFUM og K er grunduð. Tveir einstaklingar voru fengnir, til að fara yfir einhverjar ekki er vitað hvað margar meintar ávirðingar í garð sr. Friðriks, sem auglýst hafði verið eftir, það var nú öll rannsóknin. 

Í pistli sem ég skrifaði 28.október s.l. benti ég á, að sósíalistar og margt annað vinstra fólk, hefði þegar fellt sinn dóm yfir sr. Friðrik og dæmt hann sekan. Vinstri sósíalistinn  Bjarni Karlsson fyrrum prestur var því vanhæfur til setu í þessum tveggja manna dómi. Bjarni Karlsson stóð og öskraði í héraðsdómi Reykjavíkur til að mótmæla því að réttað væri yfir fólki sem réðist á Alþingi á sínum tíma. Slíkur maður dæmir sig úr leik til að geta talist hlutlægur dómari í svona máli. 

Hinn fulltrúinn í dómnefndinni,Sigrún Júlíusdóttir, taldi að bækur og annað sem sr. Friðrik hafði skrifað hefði gefið mikilvægar upplýsingar og þá þar af leiðandi haft áhrif á niðurstöðuna. Þetta er vægast sagt ófaglegt. Þá var hafnað að gefa upp fjölda þeirra sem hefðu haft samband eða með hvaða hætti þeir voru spurðir og gengið úr skugga um aðkomu viðkomandi. Þó var upplýst að þetta hefðu almennt ekki verið meintir þolendur heldur einhverjir aðrir m.a. afkomendur fyrir þeirra hönd. Einnig var vísað til ummæla Drífu Snædal um að þetta hafi verið altalað um miðja síðustu. Ummæli sem eru algjörlega úr lausu lofti gripin og röng. Allt er þetta einkar ófaglegt og andstætt eðlilegri nálgun að máli sem þessu.

Við búum í réttarríki og erum með mannréttindalög. Þar segir í 6.gr. 3.mgr.tl.c að það sé réttur þess sem sakaður er, að fá að halda uppi vörnum, sjálfur eða með aðstoð verjanda að eigin vali. Í tl. d í sömu mgr. 6.gr. segir að sakaður maður fái að spyrja vitni eða láta spyrja vitni. Í 7.gr. er talað um þann rétt sakaðs manns, að það megi ekki dæma hann til refsingar án laga og í 2.mgr. að maður skuli talinn saklaus uns sekt hans er sönnuð. 

Sr. Friðrik var ekki skipaður verjandi eða talsmaður, sem ætti þess kost að spyrja meinta þolendur og aðra sem að málinu komu. Í þessum hráskinnaleik var enginn sem gætti hagsmuna og mannorðs sr. Friðriks. Af ummælum í Kastljósi er ljóst, að ekki var fylgt reglum réttarríkisins við rannsókn eða niðurstöðu í málinu. Því miður þeim merka félagsskap KFUM og K til skammar og það finnst mér sárara en tárum taki. 

Við megum aldrei bregðast grunnreglum réttarríkisins og taka fólk og fella dóma á grundvelli vinstri hugmyndafræði wokeismans hvort heldur það er lífs eða liðið. 

Edward Heath var ásakaður um kynferðisglæpi gagnvart börnum og fleirum. Það var réttað í málinu. Heath fékk verjanda og á endanum kom í ljós að það stóð ekki steinn yfir steini ásökunum þeirra sem töldu sig eiga sökótt við Heath þar var að hluta um pólitískan hráskinnaleik að ræða eins og etv. líka í máli sr. Friðriks. 

Þegar Brett Kavanaugh Hæstaréttardómari í Bandaríkjunum hafði verið tilefndur af þáverandi forseta Bandaríkjanna, Donald Trump fóru Demókratar offari og fram kom kona sem bar að Kavanaugh hefði beitt hana kynferðislegu ofbeldi og í framhaldi af því 3 aðrar. Bjarnar Karlssynir Bandaríkjanna héldu því þá fram, að fyrst svona margar konur kæmu fram þá hlyti þetta að vera rétt. En hvað kom í ljós. Ekki stóð steinn yfir steini hjá þessum ákærendum og Kavanaugh hafði aldrei hitt þær hvað þá heldur. 

Við skulum dæma réttláta dóma grundaða á því að aðferðarfræði réttarríkisins sé beitt, þannig að sakaðar maður hvort heldur hann er lífs eða liðinn fái notið þeirra mannréttinda sem mannréttindasamþykkt Sameinuðu þjóðanna og íslensk lög um mannréttindi kveða á um. Þegar sérstaklega er auglýst eftir fórnarlömbum í svona máli verður auk  heldur að hafa sérstaka gát en hrapa ekki að niðurstöðu svo sem gert var.

Þar sem ekki var farið að lögum við þessa rannsókn um meint atferli sakaðs manns og mannréttindi hans og/eða minningar hans ekki gætt, verður að gera þá kröfu, að fram fari fullnægjandi skoðun og málsmeðferð í málinu og sr. Friðrik verði skipaður hæfur málsvari eða verjandi svo lágmarks mannréttinda hans verði gætt. Ég er tilbúinn til að taka þau  störf að mér með glöðu geði KFUM og K og öðrum að kostnaðarlausu. 

Með sama hætti ætti stjórn Vals að draga til baka ákvörðun um að taka niður styttuna af sr. Friðrik Friðrikssyni og halda uppteknum hætti hvað varðar að heiðra minningu hans.


Hótel fyrir heiminn

Svo virðist, sem íslensk stjórnvöld telji eðlilegt að Ísland verði hótel fyrir allan heiminn.

Laugardaginn 16.des.s.l. samþykkti Alþingi mótatkvæðalaust, að veita 20 manns þar af 16 múslimum ríkisborgararétt, sem áttu ekki rétt á því  skv. almennum reglum og hafði verið hafnað. Slíkar geðþóttaákvarðanir stjórnmálamanna eru ólíðandi og ósiðlegar. Engin rök voru færð fyrir því að ógilda niðurstöðu stjórnsýslunnar með þessum hætti. 

Fjöldi fólks af erlendum uppruna hefur vaxið gríðarlega hratt undanfarin ár og fólk af erlendu bergi brotið er nú álíka margt og í Svíþjóð og þykir það ærinn fjöldi þar og skapar margvíslegan vanda, en hér má ekki tala um það. 

 

Við erum fá og það er ljóst að þegar í stað verður að sporna við þessari óheillastefnu ef íslenska þjóðin á ekki að glata menningu sinni, tungu og gildum sem sérstök sjálfstæð þjóð. 

Hótelið sem íslenska ríkið rekur í hælisleitendamálum er sérstakt að því leyti að þar þurfa gestirnir ekki að borga heldur fá borgað auk ríflegra vasapeninga, læknisaðstoðar o.s.frv. Sé hótelgestunum vísað burtu eru þeir iðulega komnir aftur nokkrum dögum seinna í áframhaldandi hóteldvöl. 

Íslenskir skattgreiðendur borga allan kostnað af rekstri hótelsins. En þar sem óábyrg ríkisstjórn afgreiðir fjárlög ár eftir ár með methalla, þá kemur það í hlut barnanna okkar að greiða þennan hótelkostnað og kostnað af fjölda fólks á ríkisframfæri, sem er reynsla nágrannaríkjanna af allt of mörgum múslimskum innflytjendum og íbúum.

 

Þjóðvinir geta ekki horft upp á þetta aðgerðarlausir heldur verða að bregðast við. Atkvæðagreiðslan á Alþingi 16.des.s.l. sýnir að við erum með óábyrga stjórnmálastétt, sem hugar ekki að þjóðarhag heldur dansar þann hrunadans sem Svíar þekkja orðið svo vel. Vítin eru til að forðast þau en ekki til að falla lóðbeint ofan í þau eins og íslensk stjórnvöld stefna að.


Bloggfærslur 20. desember 2023

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 80
  • Sl. sólarhring: 88
  • Sl. viku: 4603
  • Frá upphafi: 2544037

Annað

  • Innlit í dag: 64
  • Innlit sl. viku: 4250
  • Gestir í dag: 56
  • IP-tölur í dag: 55

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband