Leita í fréttum mbl.is

Berjumst gegn vinstri háskólaspekinni

Vinstra háskólasamfélagið og tók upp ný baráttumál eftir fall Sovétríkjanna og ósigur sósíalískrar skipulagshyggju. Það tók þá upp baráttu gegn rasisma, karllægum gildum, fóbíum (loftslagsfóbía/Íslamfóbía o.s.frv.)á eigin forsendum óháð því þó sú innræting stangaðist á við veruleikann eða ekki. Allt var það á forsendum stjórnmálalegrar samkvæmni (SS) þar sem hóphyggjan var sett í öndvegi.

Hóphyggja vinstra háskólasamfélagsins er umburðarlaus og leyfir ekki aðrar skoðanir. Einstaklingurinn verður að lúta hópnum eða fara. Þú samþykkir hamfarahlýnun eða burt með þig sama ef þú samþykkir ekki að kynin séu margir tugir og aðgerðir í Kóvíd hafi verið réttar.

Saga og umfjöllun um orðið "kyn" er dæmi um sigur vinstri mennskunar. Orðið var upphaflega notað um karl og konu  og mismun á þeim. Vinstra háskólaspekin hafnaði þessu og heldur því fram, að kyn sé eitthvað sem þú ert ekki fæddur með heldur sé troðið upp á þig af karlaveldinu til að viðhalda kynbundinni mismunun.

Frá þessum hugmyndafræðilegu rökum, sem eru andstæð líffræðilegum staðreyndum,  var stutt í að halda því fram að "kyn" væri eitthvað valkvætt og merking orðsins fljótandi og að hluta til óeiginlegt. Vinsti háskólaelítan fór þá að halda því fram, að orðin hann og hún séu kyngreind og því slæm og betra sé að nota t.d. orðin "hán" og "kvár".

Barátta vinstri elítunar snýst síðan um, að allir skólar, stofnanir og veitingastaðir hafi "kynlaus"klósett auk þess þurfi að breyta tungumálinu í kynhlutlaust mál. Til að byrja með hló fólk sig máttlaust af þessu bulli, en stjórnmálamennina brast kjark til að standa gegn bullinu og stofnanir ríkisins tóku upp nýtt tungutak vinstri hugmyndafræðinar varðandi orðið "kyn". 

Hægri sinnaðir stjórnmálamenn létu hjá líða að andæfa gegn kynjaruglinu. Það var þó hátíð á við það að æðstu prelátar þjóðkirkjunar með biskupa hennar í fararbroddi samsamaði sig trans hugmyndafræðinni um að fólk væri fætt í röngum líkama og hafnaði þá um leið að við værum sköpunarverk Guðs almáttugs.

Innan við 200 manns eru skráðir í transsamfélagið. Samt er krafa vinstra samfélagsins um kynræna breytingu á tungumálinu, kynræn klósett og síðast en ekki síst að kynfræðsla í skólum skuli vera á forsendum trans  hugmyndafræðinnar.

Það er löngu komin tími til þess að vitiborið fólk láti í sér heyra og mótmæli þessari rugluðu háskólaspeki og krefjist þess að samfélaginu sé stjórnað í samræmi við almenna skynsemi. 

Óneitanlega veltir maður fyrir sér fullkominni hugmyndafræðilegri uppgjöf Sjálfstæðisflokksins. Flokkurinn samþykkti bullfrumvarpið um kynrænt sjálfræði, hefur ekki andæft í neinu misþyrmingu á íslenskri tungu á grundvelli kynhlutleysis og kórónar nú hugmyndafræðilega eymd sína og volæði og uppgjöf gagnvart vinstri hugmyndafræðinni með því að krefjast þess að borgarar þessa lands skuli skyldaðir til að koma upp kynlsusum klósettum vítt og breitt um landið. 

Hvað næst? 


Bloggfærslur 17. ágúst 2024

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.11.): 355
  • Sl. sólarhring: 527
  • Sl. viku: 4176
  • Frá upphafi: 2427976

Annað

  • Innlit í dag: 327
  • Innlit sl. viku: 3863
  • Gestir í dag: 310
  • IP-tölur í dag: 288

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband