Leita í fréttum mbl.is

Bætum aðeins í.

Í viðtali við Þorgerði utanríkis vegna ráðstefnu um þróunarríki í hádegisfréttum RÚV sagði hún, að Íslendingar væru duglegir að styðja við þróunarlöndin og mundum bæta í enda stutt síðan Ísland var þróunarland.

Svo lengi sem utanríkisráðherra hefur lifað og gott betur hefur Ísland ekki verið skilgreint sem þróunarland og þessi staðhæfing hins sjálfumglaða utanríkisráðherra því röng auk þess sem hún skiptir engu máli. 

Ráðherra ætlar að taka meiri peninga af skattgreiðendum til að styðja þróunarlönd, þó við styrkjum þau myndarlega. 

Utanríkisráðherra hefur dreift loforðum um aukin framlög úr ríkissjóði til ýmissa verkefna ásamt forsætisráðherra. Ákveðið var að veita hundruða milljóna framlag til þeirrar stofnunar Sameinuðu þjóðanna, sem uppvís varð að því að vera með Hamas skæruliða í þjónustu sinni við matvæladreifingu á Gasa og til að stela hjálpargögnum svo Hamas gæti selt þau íbúum Gasa. 

Auka á framlög til varnarmála um tugi milljarða og veita enn myndarlegri framlög til Úkraínu svo landinu gangi betur að murka lífið úr Rússneskum hermönnum. 

Nokkuð er enn ótalið af gjafmildi utanríkisráðherra með forsætisráðherra sem fylgdarkonu í fjáraustrinum og ljóst að þegar er búið að eyða viðbótar tekjum vegna fyrirhugaðrar viðbótar skattlagningar á útgerðina. Fjármálaráðherra þarf nú að finna nýjar leiðir til að hafa skattfé af almúganum til þess að fjárlagahallinn slái ekki fyrri met.

Þorgerður er þekkt af því til áratuga, að fara ekki vel með annarra fé og það er synd að hún skuli hafa náð Kristrúnu Frostadóttur í slagtog með sér í óráðssíunni og stórkallalegra yfirlýsinga um aukin fjárframlög til hluta sem okkur koma í mörgum tilvikum ekki við. 

 


Bloggfærslur 30. júní 2025

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.6.): 595
  • Sl. sólarhring: 672
  • Sl. viku: 5252
  • Frá upphafi: 2558318

Annað

  • Innlit í dag: 583
  • Innlit sl. viku: 4920
  • Gestir í dag: 549
  • IP-tölur í dag: 532

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband