Leita í fréttum mbl.is

Það sem Júpíter má leyfist ekki nautinu

Rómverskur málsháttur frá gullöld þeirra segir "Það sem Júpíter (Júpíter var æðsti Guð Rómverja)má leyfist ekki nautinu" (Quod licet Jovi, non licet bovi) Sambærilegur málsháttur íslenskur "Það sem höfðingjarnir hafast að, hinir ætla sér leyfist það."

Í Silfrinu á mánudaginn 2 júní, sagði dómsmálaráðherra sérstaklega aðspurð um hvort hún mundi beita sér í máli 17 ára kólumbísks drengs sem vísað hafði verið úr landi. 

Þorbjörg sagðist ekki mundu gera það. Hún sagði, að Alþingi hefði mótað ákveðið verklag og Útlendingastofnun sem væri sjálfstæð stofnun hefði með þetta mál að gera og ekki væri gert ráð fyrir pólitískum inngripum til að tryggja jafnræði milli allra. 

Dómsmálaráðherra lýsti því þar með yfir, að hún sem dómsmálaráðherra hefði ekki og gæti ekki haft aðkomu að þessu máli vegna þess regluverks sem Alþingi hefði mótað. 

Daginn eftir brá svo við að þingmaður Samfylkingarinnar Víðir Reynisson gerðist sekur um að brjóta gegn öllu því sem dómsmálaráðherrann Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir sagði um málið í Silfrinu.

Hvað ætlar nú Þorbjörg Sigríður að segja og gera varðandi brot þingmannsins gegn þeim reglum sem Alþingi hefur mótað til þess að tryggja jafnræði milli aðila. Mun hún fordæma þessa ólögmætu og  glórulausu aðför þingmannsins að því regluverki sem hún lýsti svo vel í Silfurþættinum. Dómsmálaráðherra ætti að fara þar fremst í flokki og fordæma þessi vinnubrögð. 

Mun dómsmálaráðherra fordæma Víði þingmann fyrir að hafa beitt ósannsögli til að koma fram vilja sínum við framkvæmdastjóra Útlendingastofnunar? 

Dómsmálaráðherra hlítur að fylgja meginreglu laga um að það sama gildi um alla sem brjóta jafn gróflega af sér og Víðir. Nú reynir á hvort hún stendur með því sem hún sagði í Silfrinu eða ekki. Þar reynir á mannkosti þína ágæti dómsmálaráðherra.

Ef Þorbjörg gerir ekkert og hefur enga skoðun, þá er búið að snúa rómverska málshættinum á haus og reglan er þá: Það sem Júpíter má ekki leyfist nautinu eða:

Það sem dómsmálaráðherra má ekki má Víðir.

Er það svo Þorbjörg? 


Bloggfærslur 5. júní 2025

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.6.): 221
  • Sl. sólarhring: 412
  • Sl. viku: 5525
  • Frá upphafi: 2543918

Annað

  • Innlit í dag: 204
  • Innlit sl. viku: 5115
  • Gestir í dag: 201
  • IP-tölur í dag: 195

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband