Leita í fréttum mbl.is

Þöggun og rétthugsun

Í fyrradag var Kastljósþáttur, þar sem alþingismaðurinn Snorri Másson og fulltrúi frá samtökunum 78 skiptust á skoðunum um málefni hinsegins fólks og transhugmyndafræðina. Snorri talaði fyrir sjónarmiðum með sama hætti og t.d. J.K.Rawlings höfundur Harry Potter bókanna og flestir sérfræðingar í líffræði. 

Umræðan í Kastljósþættinum var eðlileg skoðanaskipti í lýðfrjálsu landi. Umræða sem átti erindi til almennings. Þá bregður svo við, að ráðist er að Snorra fyrir skoðanir hans úr ólíklegustu áttum. Allir hefðbundnir fjölmiðlar ráðast að Snorra. Morgunblaðið birtir umfjöllun Dags B. Eggertssonar þar sem hann ræðst að Snorra og aðrir fjölmiðlar ráðast að manninum en fjalla ekki um efnisatriði. RÚV er með viðtalsþætti og dregur fram aðila sem sveipa um sig kufli fræðimannsins þegar þeir ráðast gegn líffræðilegum staðreyndum. 

Samt kastar tólfunum þegar biskupinn yfir Íslandi og Landlæknir blanda sér í umræðuna biskupinn á einhverjum astral vegum í dagatalsfræðum en landlæknir segir líffræðinni stríð á hendur í þágu transhugmyndafræðinnar lægra hefur íslenskur landlæknir aldrei lagst ekki einu sinni í Kóvídinu. 

Það er vert að gaumgæfa þegar fólk verður vitni að skefjalausri aðsókn að skoðunum einstaklings og tilraun til þöggunar og lítillækkunnar, að við mundum á stundum búa við Sovét-Ísland hvað tjáningarfrelsið varðar ef ekki væru til samfélagsmiðlar. 

Viðbrögð almennings á samfélagsmiðlum sýna að það er brýn þörf á að ræða þessi mál á forsendum heilbrigðrar skynsemi, en umfjöllun fjölmiðlaelítunar er öll á einn veg að þagga niður í frjálsum skoðanaskiptum um málið. 

Hart es í heimi þegar fjölmiðlar bregðast tjáningarfrelsinu.  

 


Bloggfærslur 3. september 2025

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.9.): 953
  • Sl. sólarhring: 1100
  • Sl. viku: 2881
  • Frá upphafi: 2595186

Annað

  • Innlit í dag: 908
  • Innlit sl. viku: 2693
  • Gestir í dag: 845
  • IP-tölur í dag: 822

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband