Leita í fréttum mbl.is

Sjáandi sjá þau ekki. Heyrandi heyra þau ekki.

Forsætis- og fjármálaráðherra virðast hvorki sjá né heyra mikilvægustu skilaboðin um það sem er að gerast í þjóðfélaginu. Í gær hélt Jóhanna Sigurðardóttir dæmalausustu ræðu sem nokkur forsætisráðherra hefur haldið í samræmi við greinaflokk fjármálaráðherra  "Landið tekur að rísa".

Stundum hefur þjóðin átt  talnaglöggt fólk eins og á sínum tíma Sölva Helgason sem reiknaði barn í konu. Einnig áreiðanlegt fólk eins og Vellygna Bjarna sem sagði m.a. sögur  af því  þegar hann atti kappi við Drottinn allsherjar og hafði að sjálfsögðu betur.

Yfirlýsingar og hreystiyrði  Jóhönnu og Steingríms um hve vel miði og allt sé nú með öðrum tón en áður í fjötrum Íhalds og Framsóknar eru í góðu samræmi við reikningskúnstir Sölva Helgasonar og frásagnir Vellygna Bjarna.

Hagstofan segir okkur samt að um samfellt samdráttarskeið hafi verið að ræða árið 2009 og fyrstu mánuði ársins 2010. Samdráttur landsframleiðslu árið 2009 varð 6.8% og fyrstu 6 mánuði ársins 2010 er samdráttur landsframleiðslu 7.3%.  Það þýðir líka að lífskjörin í dag eru að verulegu leyti skuldsett annars væru þau til muna verri vegna þessa gríðarlega samdráttar.

Þjóðir heims miða við að sé landsframleiðsla neikvæð í 3 mánuði í röð þá sé kreppuástand. Hér hefur samdráttur landsframleiðslu verið samfelldur í 18 mánuði en Jóhanna og Steingrímur tala um það sem sérstakan árangur ríkisstjórnarinnar.

Því miður er að sannast að kreppan verður verri en hún hefði þurft að vera vegna óhæfrar ríkisstjórnar. Hvort sem okkur líkar betur eða verr þá er ástandið grafalvarlegt því miður.

http://www.mbl.is/mm/vidskipti/frettir/2010/09/03/3_1_prosent_samdrattur/

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Það læðist að manni sá grunur að þetta 18 mánaða kreppuástand hafi haft aðdraganda.

Og nú rifjast upp fyrir mér að einn af fáum sem taldi sig sjá í hvað stefndi þá og varaði við því fyrir daufum eyrum hafi verið þú.

Og ekki man ég betur en að spakir menn hafi fundið hjá sér hvöt til að setja ofan í við þig þá og haft sig í frammi við að tala niður til þín.

Eftir situr þó að til þess verður að ætlast að sú ríkisstjórn sem nú situr ræði alvörumál af alvöru.

Eins og öllum ber ævinlega að sjálfsögðu að  gera.

Árni Gunnarsson, 3.9.2010 kl. 19:53

2 Smámynd: Jón Magnússon

Já Árni það er því miður lenska hjá stjórnendum þessa lands að hafa aðvaranir og staðreyndir efnahagslífsins að engu og reyna að slá ryki í augu fólksins í landinu. Í Bandaríkjunum talar Obama um það sem vond tíðindi þegar hagvöxtur dregst saman einn mánuð eða fleiri og talar um að ríkisvaldið þurfi að beita sér fyrir aðgerðum til að koma í veg fyrir verri samdrátt.

Því miður Árni sér maður nú að fólkið í landinu vill ekki hlusta á váleg tíðindi heldur dansa hrunadansinn á enda. Þannig var það allan síðasta áratug þegar ég, þú og fleiri bentum á hvert stefndi. Þó ég hafi aldrei búist við algeru bankahruni eins og varð þá var ljóst að krónan hlaut að falla og samdráttarskeið að taka við af skuldsettu framkvæmdaskeiði.

Jón Magnússon, 4.9.2010 kl. 10:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Feb. 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.2.): 741
  • Sl. sólarhring: 748
  • Sl. viku: 2326
  • Frá upphafi: 2489971

Annað

  • Innlit í dag: 696
  • Innlit sl. viku: 2122
  • Gestir í dag: 645
  • IP-tölur í dag: 636

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband