11.11.2010 | 11:48
Alþingi ályktar að örvhentir séu rétthentir
Lögð hefur verið fram á Alþingi sérkennilegasta þingsályktunartillagan sem þar hefur séð dagsins ljós um árabil og er þá langt til jafnað. Flutningsmenn virðast ekki gera sér grein fyrir valdmörkum milli löggjafarvalds og dómsvalds og ákæruvalds.
Mörður Árnason og meðflutningsfólk leggur til að Alþingi komist að þeirri niðurstöðu að árás svokallaðra níumenninga á Alþingi hafi ekki verið árás og alla vega hafi því eða sjálfræði Alþingis ekki verið hætta búin. Þetta leggja þingmennirnir til þrátt fyrir það að Ríkissaksóknari hafi ákært í málinu og það sé nú til meðferðar hjá dómstólum. Þetta leggja þingmennirnir til þrátt fyrir að árásarliðið sem réðist inn í Alþingi hafi slasað starfsfólk þingsins.
þessi tillöguflutningur er flutningsmönnum þeim Merði Árnasyni, Álfheiði Ingadóttur, Margréti Tryggvadóttur, Birni Val Gíslasyni, Birgittu Jónsdóttur, Lilju Mósesdóttur, Þráni Bertelssyni og Valgerði Bjarnadóttur til skammar.
Af hverju vilja flutningsmenn reyna að grípa fram fyrir hendur dómsvalds og ákæruvalds í landinu. Á það að vera hlutverk Alþingis eða ríkisstjórna að segja dómurum og ákæruvaldi fyrir verkum. Fer það ekki á svig við það sem boðað hefur verið af flestum sem tjáð hafa sig um stjórnarskrármál að skerpa þurfi skilin á milli framkvæmdavalds, dómsvalds og löggjafarvalds.
Hvað svo ef Alþingi samþykkir nú þessa þingsályktunartillögu, en síðan fellur dómur í Héraðsdómi Reykjavíkur og síðar í Hæstarétti að þetta hafi samt verið árás á Alþingi. Hvað á þá að gera? Getur Alþingi eitthvað gert með það? Nei einmitt ekki, en það sýnir hversu gjörsamlega fráleit þessi tillöguflutningur er og til skammar þeim sem að standa. Það er nú í verkahring dómsvaldsins að fjalla um þetta mál en ekki Alþingis. Það ætti öllum þingmönnum að vera ljóst, líka Merði Árnasyni.
Auk þess má benda flutningsmönnum á, að Alþingi getur ályktað á þá lund að örvhentir séu rétthentir eða engin ofbeldisverk hafi verið framin á Íslandi árið 2008. Samt sem áður breytir það ekki staðreyndum ekki frekar en sú samþykkt á fyrri öldum að sólin snérist í kring um jörðina.
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Dægurmál | Breytt s.d. kl. 12:34 | Facebook
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 307
- Sl. sólarhring: 662
- Sl. viku: 4128
- Frá upphafi: 2427928
Annað
- Innlit í dag: 283
- Innlit sl. viku: 3819
- Gestir í dag: 272
- IP-tölur í dag: 261
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
- Adolf Friðriksson
- Jón Þórhallsson
- Ágúst H Bjarnason
- Agný
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Andrés Magnússon
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Jón Þóroddur Jónsson
- Áslaug Friðriksdóttir
- Auðbergur Daníel Gíslason
- Baldur Hermannsson
- Námsmaður bloggar
- Jón Ríkharðsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kristjánsson
- Einar Gunnar Birgisson
- Björn Halldórsson
- Björn Júlíus Grímsson
- SVB
- Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
- Carl Jóhann Granz
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Dominus Sanctus.
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Helga Kristjánsdóttir
- Þórólfur Ingvarsson
- Dögg Pálsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Elle_
- Einar Björn Bjarnason
- Einar G. Harðarson
- Eiríkur Guðmundsson
- Elinóra Inga Sigurðardóttir
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- ESB og almannahagur
- Ester Sveinbjarnardóttir
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Jón Kristjánsson
- Atli Hermannsson.
- Baldur Gautur Baldursson
- Fríða Björk Einarsdóttir
- Friðrik Óttar Friðriksson
- Frjálshyggjufélagið
- Jakob Þór Haraldsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Georg Eiður Arnarson
- Gestur Halldórsson
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Guðmundur Pálsson
- Grazyna María Okuniewska
- Grétar Pétur Geirsson
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Guðmundur Júlíusson
- gudni.is
- Jón Þórhallsson
- Gunnar Freyr Hafsteinsson
- Gústaf Níelsson
- Gústaf Adolf Skúlason
- Guðjón Ólafsson
- Gylfi Þór Þórisson
- Haraldur Baldursson
- Halldór Jónsson
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Hannes Sigurbjörn Jónsson
- Haukur Baukur
- Birgir Guðjónsson
- Sigurbjörg Eiríksdóttir
- Heimir Ólafsson
- G Helga Ingadottir
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Himmalingur
- Hildur Sif Thorarensen
- Eiríkur Harðarson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Haraldur Huginn Guðmundsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Einar Ben
- Inga Lára Helgadóttir
- Inga G Halldórsdóttir
- Jakob S Jónsson
- Einar B Bragason
- Jens Guð
- jósep sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Jónas Egilsson
- Jón Pétur Líndal
- Jón Snæbjörnsson
- Jón Valur Jensson
- Jórunn Ósk Frímannsdóttir
- Eyþór Jóvinsson
- Júlíus Björnsson
- Júlíus Valsson
- Júlíus Brjánsson
- Bergur Thorberg
- Katrín
- Kjartan Pálmarsson
- Kjartan Eggertsson
- Kjartan Magnússon
- Högni Snær Hauksson
- Kolbrún Baldursdóttir
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristján H Theódórsson
- Bjarki Steingrímsson
- Steingrímur Helgason
- Konráð Ragnarsson
- Lífsréttur
- Loncexter
- Guðjón Baldursson
- Lúðvík Júlíusson
- Lúðvík Lúðvíksson
- Margrét St Hafsteinsdóttir
- Magnús Jónsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Alfreð Símonarson
- Markús frá Djúpalæk
- Marta Guðjónsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Morgunblaðið
- Natan Kolbeinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Örn Jónsson
- Ólafur Sveinsson
- Ólafur Fr Mixa
- Ómar Bjarki Smárason
- Páll Ingi Kvaran
- Pálmi Gunnarsson
- Pjetur Stefánsson
- Rafn Gíslason
- Ragnar G
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Ragnar L Benediktsson
- Rannveig H
- Árni Gunnarsson
- Ragnheiður Ólafsdóttir
- Rósa Harðardóttir
- ragnar bergsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Samstaða þjóðar
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigrún Jóna Sigurðardóttir
- Sigurbjörn Sveinsson
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Sigurjón Þórðarson
- Sigurður Jónsson
- Skattborgari
- Haraldur Pálsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Guðnason
- Jóhann Pétur
- Sverrir Stormsker
- Sturla Bragason
- Sumarliði Einar Daðason
- Ólafur Ingi Hrólfsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Björn Bjarnason
- Óli Björn Kárason
- Jón Þórhallsson
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þórhallur Guðlaugsson
- Þórhallur Heimisson
- Þorsteinn Erlingsson yngri
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Valdimar H Jóhannesson
- Valsarinn
- Valur Arnarson
- Vefritid
- Ingunn Guðnadóttir
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Vilhjálmur Eyþórsson
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Kristinn Ingi Jónsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Ívar Pálsson
Athugasemdir
Rétt Jón Magnússon, þetta mál er nú í höndum dómstóla og þaðan getur eingin, nema þá hryðjuverka hópur tekið það.
Það hefur eingin heimild til að ganga inn í mitt hús án þess að ég eða hún Helga mín höfum boðið til þess. Það hefur eingin heimild til að ryðjast inn í alþingishúsið okkar nema til þess bærir hafi boðið þar inn og hverjir voru það?
Það er með ólíkindum ef lög og réttur gildir ekki jafnt um ærlegt fólk og skríl. Það vísar á eitthvað mjög annarlegt ef dómsvaldið á ekki að fá frið til að vinna úr þeim málum sem það hefur fengið til að fá niðurstöðu í.
Hvað er það sem þetta fólk óttast svo mjög við rannsókn þessa máls að það er tilbúið til að gera sig að fíflum til að reyna að stöðva það?
Hrólfur Þ Hraundal, 11.11.2010 kl. 13:50
Það er alveg rétt Hrólfur. En maður veltur því fyrir sér hvort eitthvað af þessu fólki sem þarna leggur til að löggjafarvaldið taki fram fyrir hendurnar á dómsvaldinu og ákæruvaldinu telji sér einhverra hluta vegna skylt að gera allt sem það getur til að koma í veg fyrir að málið fái eðlilegar lyktir hjá dómstólum. Merkilegt að þetta lið skuli telja þetta mikilvægara heldur en skuldavanda heimilanna.
Jón Magnússon, 11.11.2010 kl. 15:47
Ekki vænkast hagur Alþingis við svona tillöguflutning. Geta þingmenn virkilega flutt tillögur um allt milli himins og jarðar og meira að segja mál, sem þingið má í raun ekki skipta sér af?
Þessi tillöguflutningur hlýtur að teljast með því lægsta, sem þingmenn geta komist í lágkúru og er þá langt til jafnað. Jafn vel þó svona vitleysisleg tillaga yrði samþykkt, þá hefur hún auðvitað ekkert gildi, annað en að verða þeim, sem hugsanlega myndu samþykkja hana, til skammar.
Hugsanlega gætu þingmennirnir flutt frumvarp til laga, sem heimilaði innrásir í Alþingishúsið, refsingarlaust, svo framarlega sem ekki væru slasaðir nema örfáir starfsmenn í hvert skipti og jafnræðis yrði gætt milli þingflokka varðandi meiðingar á þingmönnum.
Axel Jóhann Axelsson, 11.11.2010 kl. 16:23
Mér er nú eiginlega alveg óskiljanlegt hvers vegna héraðsdómur hefur ekki lokið þessu máli og kveðið upp dóm. Þessi furðulegi dráttur á málslyktum og ennfurðulegri háttsemi eins verjandans Ragnars Aðalsteinssonar í málinu, kann að benda til þess að dómurinn sé ekki alveg að ráða við málið - af stjórnmálaástæðum.
Gústaf Níelsson, 11.11.2010 kl. 20:41
Jón og Hrólfur:
Einstaklingarnir níu sem eru ákærðir fyrir árás á Alþingi voru að fara inn í SITT hús.
"Árás svokallaðra nímenninga" var ENGIN árás! Það sér hver sem skoðað hefur upptökur úr öryggismyndavél frá bakdyrainngangi Alþingis þennan dag, lesið viðtöl við nímenninganna og frásagnir þeirra og fylgst með réttarhöldunum yfir þeim.
Vonandi þarf ekki þessa þingsályktunartillögu til að fella niður málið. Vonandi dregur saksóknari ákæruna tilbaka, eða dómari vísar því frá, svo ungmennin níu, foreldrar þeirra, börn, og vinir og ættingjar þurfi ekki að óttast að þeim verði stungið í FANGELSI fyrir að grípa til aðgerða og tjá hug sinn, gegn lömuðu Alþingi haustið 2008.
Skeggi Skaftason, 11.11.2010 kl. 21:37
Ef þetta fólk hefði verið her, þá hefðu þau sennilega kallast "liðhlaupar" en að mínu mati þá er þetta "lögleysi" og það er sár raun að því að horfa upp á löggjafarþingið snúast upp í andhverfu sína.
Kristinn Ásgrímsson, 11.11.2010 kl. 22:03
Já það gætu þeir gert Axel þeir geta lagt fram nánast hvað sem er. En það ber bara þeim einstklingum vitni sem bullukollast með þessum hætti. En því miður dregur þetta allt úr trúverðugleika Alþingis sem stofnunar og greiðir götu Gnarrismans, sem er eftir á að hyggja ekkert verri en þetta bull.
Jón Magnússon, 11.11.2010 kl. 22:45
Ég hygg Gústaf að enn njóti Ragnar Aðalsteinsson hrl. þess að vera senior í lögmannastétt og fyrrverandi formaður LMFÍ. En þolinmæði dómstóla hlítur að vera komin að þrotum gagnvart honum. En saksóknarinn hefur líka sitt að segja um framgang málsins ekki bara dómstóllinn. Saksóknarinn gæti t.d. gert kröfur vegna málatilbúnaðar lögmannsins Ragnars, sem hún hefur ekki gert.
Jón Magnússon, 11.11.2010 kl. 22:47
Skeggi sé þetta svona er þá nokkurt vandamál að láta málið ganga til dóms? Er ekki best að málið fái sína eðlilegu réttarfarslegu meðferð. Er það ekki betra heldur en að pólitíkin sé að grípa fram fyrir hendur dómstólanna. Vilt þú virkilega þjóðfélag þar sem pólitíkin stjórnar dómstólunum og sekt eða sakleysi fer eftir pólitískum flokksskírteinum?
Jón Magnússon, 11.11.2010 kl. 22:53
Mér finnst verst Kristinn að þessir þingmenn skuli ekki átta sig á eðlilegum valdmörkum milli löggjafarvalds og dómsvalds.
Jón Magnússon, 11.11.2010 kl. 22:55
Ég sé að þú átt ekki í neinum vandræðum Jón. Mig langar þó að benda Skeggja á, að þrátt fyrir að við þjóðin eigum alþingishúsið og Þingvelli sem og önnur hús og aðrar eignir eins og tildæmis fangelsi og skóla, þá gilda reglur um það hvernig og hverjir ganga þar um. Það getur verið að stjórnleysingjar séu ósáttir við þetta en meirihluti Íslendinga eru ekki stjórnleysingjar. Mér skilst að umræddur inngangur hafi átt að vera læstur, veist þú hversvegna svo var ekki?
Hrólfur Þ Hraundal, 11.11.2010 kl. 23:18
Var ég að tala um pólitísk flokksskírteini? Hvað áttu við???
Nei nei, "ekkert vandamál" að láta málið ganga til dóms. Eru þau ekki bara að baða sig í athyglinni, eins og ýmsir bloggarar hafa fullyrt?
Hvað ef þetta væru ÞÍN börn sem væru ákærð af RÍKINU fyrir brot sem varða að lágmarki 1 árs fangelsi?
Hvað ef það væri þín barnabörn sem vissu af mömmu sinni á sakamannabekk í dómstól? Og mamman reynir að hugga barn sitt, telja því trú um að þetta sé bara misskilningur, að það sé bara "best að málið fái sína eðlilegu réttarfarslegu meðferð".
Skeggi Skaftason, 11.11.2010 kl. 23:18
Þakka þér fyrir Hrólfur þetta er góð athugasemd og ábending. Níumenningarnir hefðu t.d. ekki getað vaðið inn á Litla Hraun eða réttarsali héraðsdómstólanna eða Hæstaréttar eða sjúkrahús eða annað með látum eins og um var að ræða um aðför þeirra að Alþingi. En við höfum þá reglu að hver maður sé saklaus þangað til sekt hans sé sönnuð. Þess vegna er best að bíða með sakfellingu eða sýknu þangað til dómstólar hafa unnið sitt verk.
Jón Magnússon, 12.11.2010 kl. 11:42
Ef þetta væru mín börn þá mundu þau líka verða að svara til saka vegna þess sem þau gera. Það á ekki að fara í manngreinarálit hvað það varðar. Ég átta mig síðan ekki á hvaða erindi þetta síðara á Hrólfur. Það geta allir leitað huggunar og það bannar enginn að hugga ef með þarf en hvað kemur það þessari vitlausu tillögu við.
Jón Magnússon, 12.11.2010 kl. 11:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.