Leita í fréttum mbl.is

Af hverju hafa konur lægri laun en karlar?

Hvar sem er í heiminum er launamunur milli karla og kvenna. Ekki skiptir máli hvers konar þjóðfélög er um að ræða. Á heimsvísu hafa konur lægri laun en karlar svo munar  10-30%.  Þetta vekur athygli vegna þess að ætla má að eftir því sem þjóðfélög þróast og menntun kvenna verður betri þá ætti launamunur kynjanna að minnka en svo er ekki.

Þetta er merkilegt m.a. vegna þess að í ríkum löndum starfa hlutfallslega fleiri hjá hinu opinbera þar sem launamunur kynjanna er almennt minnstur en samt sem áður kemur það fyrir ekki launamunur eftir kyni er umtalsverður.

Þrátt fyrir að minna sé um erfiðisvinnu þar sem reynir á líkamlegan styrk þá raðast kynin hvar sem er í heiminum í ákveðin og sambærileg störf og þar skiptir engu máli hverjar þjóðartekjurnar eru.

Í grein í Economist 24.4.s.l. er fjallað um þetta og velt fyrir sér ástæðum þessa kynbundna launamunar og þeir sem hafa áhuga á málinu ættu að kynna sér skrifin þar, en meginástæðuna fyrir því að konur eru í láglaunastörfum segir Alþjóðabankinn að sé vegna þess að konur stjórni ekki tíma sínum eins og karlar. Á Ítalíu og Austurríki t.d. þá eyða konur þrisvar sinnum lengri tíma í húsverk og barnapössun en karlar.  Í mörgum fátækari löndum þá eyða þær mun lengri tíma í þessa vinnu.

Eitt kemur þó sérstaklega á óvart en það er að í landi kvenfrelsisins Svíþjóð og kvennakúgunarinnar, Pakistan eyða karlar í báðum löndum álíka tíma í heimilisstörf. Sérkennilegt?????

Það að konur eyða svona miklu meiri tíma en karlar í heimilisstörf og barnauppeldi takmarkar það möguleika kvenna til starfsvals og þær þurfa frekar að vinna hlutastörf. 

Það er athyglivert að skoða þetta og það vekur upp spurningar miðað við herferð VR varðandi þessi mál hvernig er þessu fyrirkomið hér á landi hve miklum tíma eyða kynin í heimilsstörf og barnauppeldi t.d. og einnig hvort auglýsingaherferð VR er ekki byggð á röngum forsendum. 

Þá er spurningin hvort að áherslur femínista og kvennahreyfinga hafi ekki verið á röngum forsendum og það þurfi aðra hluti en útgjöld skattgreiðenda t.d. vegna fæðingarorlofs sem átti að mati femínista að draga úr launamun, sem ekki varð, til að tryggja raunverulega jafnstöðu karla og kvenna í launamálum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Jón. Er ekki munurinn sá sami og hjá körlum meðal karla. Ég hef ekki vitað að það séu mismunandi taxtar á milli karla og kvenna. Ég tel að það sé mismunur á milli kvenna innbyrðis sem er líka hjá körlum. Það er ekki hægt að reikna svona út nema með því að búa til grúppu á sama vinnuvettvangi. Tökum tæknihreinsa og aðskiljum vaktstjóra frá og flokkum fólk eftir aldurskalla síðan getum við reiknað hvern aldursflokk. Reiknum líka mismun milli karla og karla.  

Valdimar Samúelsson, 27.9.2011 kl. 13:06

2 identicon

Konur hafa lægri laun en karlar vegna þess að þær eru litlar, ljótar og leiðinlegar auk þess að lykta illa

Kristinn Jakob Steindórsson (IP-tala skráð) 27.9.2011 kl. 17:40

3 Smámynd: Júlíus Björnsson

Ég greini í heildar tekjur í reiðu og fríðu yfir meðal unnin starfsævis tíma. Ég greini á milli opinberra og þjónustugrunnstarfa annarsvegar og starfa í virðisaukaskapandi störfum.    

Yfirvinna er mikill á Íslandi og skekkir myndina hér í samanburði við mörg ríki.

Margar konur eru óvinnufærar einu sinni í mánuði.

Reglur um barnafjárforæði mismuna eftir kynjum. Launskattsþátttaka Íslenskra kvenna eru að stefna á að vera sú sama og Karla. Sjómannsekkjum og ekkjum vegna erfiðsvinnu maka hefur fækkað mikið.

Nú er aftur farið að tala um hefðbundin kvennastörf og greiða eiga óháð eðli vinnu.  

Það er búið tryggja hér með lögum sömu laun fyrir sömu á sama tíma fyrir löngu.   Hinvegar mætti setja þak vinnutíma einstaklinga í Þjónustustörfum sem skila ekki vsk., það er hreinum launum til hins opinbera,  til að minnka atvinnuleysis skatts á kostnað vsk.  Einfalda launtaxta. Hafa 3 þrep í starfi. Byrjunar tekjur fyrsta ár, meðan starfskraftur fullhæfur settur sig inn í starfið, sömu tekjur fram að 65 ára aldri og þá byrjunartekjur aftur.  Störf tengd afköstum yfir meðalagi eru skilgreind sérstaklega miðað við eðli þeirra. Styttri tími í vinnu skilar virkari neytendum. Hér vantar í samanburði almennilegan neytenda markað til að byggja upp stærri fastar langtíma þjóðatekjur til að stand undir vsk. lausu þjónustunni. Það skilar hærri tekjum í "kvenna" störfum.  

Júlíus Björnsson, 27.9.2011 kl. 19:29

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Ég trúi yfirleitt engu sem múslímar segja um lýðræði og jafnrétti.

Halldór Jónsson, 28.9.2011 kl. 00:30

5 Smámynd: Jón Magnússon

Það er alveg hárrétt hjá þér Valdimar.  Það eru líka til hálaunakonur eins og hálaunakarlar.

Jón Magnússon, 28.9.2011 kl. 14:20

6 Smámynd: Jón Magnússon

Þetta er heldur betur rangt Kristinn sem betur fer eru þær betri og gæfulegri en karlar á flestan hátt.

Jón Magnússon, 28.9.2011 kl. 14:21

7 Smámynd: Jón Magnússon

Já þetta er ágæt nálgun Júlíus

Jón Magnússon, 28.9.2011 kl. 14:22

8 Smámynd: Jón Magnússon

Það má til nokkurs vegar færa Halldór en þetta er alla vega alþjóðleg könnun sem ég er að vísa til og birtist í þessu ágæta blaði sem ég vísaði til .

Jón Magnússon, 28.9.2011 kl. 14:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.11.): 97
  • Sl. sólarhring: 290
  • Sl. viku: 3934
  • Frá upphafi: 2428155

Annað

  • Innlit í dag: 81
  • Innlit sl. viku: 3629
  • Gestir í dag: 80
  • IP-tölur í dag: 73

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband