13.1.2015 | 13:30
Samband ungra sjálfstæðismanna vaknar til lífsins
Mikið var ég ánægður að sjá að mín gömlu samtök, SUS samband ungra sjálfstæðismanna, voru lifandi og stjórn þess meira að segja farin að álykta. Þegar liggur mikið við er eðlilegt að fólk hristi af sér slenið og láti til sín taka. Tilefnið var lítt hugsuð ummæli eins þingmanns flokksins að kanna bakgrunn þeirra múslima sem hér búa. Auk fordæmingarinnar er þess krafist að þingmaðurinn biðjist afsökunar.
Nú víkur svo við að ég er ekki sammála umræddum ummælum þingmannsins en sé þó ekki að hann þurfi að biðjast á þeim afsökunar eða einvher ástæða sé til að fordæma þau. Ef til vill hefði SUS frekar átt að láta í sér heyra þegar einn af ráðherrum flokksins vill auka á ríkisvæðinguna og hlutast til um það að venjulegir íslendingar hafi ekki lengur aðgang að helstu náttúruperlum þjóðarinnar nema geta framvísað certificati frá stjórnvöldum um heimild til þess. En það verður hver að forgangsraða í pólitík sem hann telur mikilvægast.
Svo er það nú annað sem að þeir sem fordæma þingmanninn Ásmund Friðriksson ættu að hugleiða, en það er sú staðreynd að lögregludeildir hvort sem eru á hinum Norðurlöndunum og Bretlandi eru einmitt uppteknar við að skoða sérstaklega þá sem aðhyllast þennan trúarhóp sem þingmaðurinn gerði að umtalsefni með tilliti til öryggis borgaranna. Þingmaðurinn er því ekki að segja neitt sem fer í bág við almenna praktík í nágrannalöndum okkar og sjálfsagt hér líka. Þá má líka benda á að stofnaðar hafa verið lögregludeildir sérstaklega til að fylgjast með fólki sem aðhyllist Íslam.
Stjórn SUS mætti taka til umræðu og skoðunar það eftirlitskerfi sem hefur verið hrúgað upp á ýmsum sviðum t.d. varðandi öryggismál þar sem heimiluð hefur verið víðtækt eftirlit og símhleranir hjá almennum borgurum. Stjórnvöld á Vesturlöndum eru stöðugt að taka sér víðtækara og víðtækara vald til að hafa afskipti af borgurunum og eftirlit með þeim á grundvelli ímyndaðs eða raunverulegs þjóðáröryggis. Hvað langt á að ganga og hve mikið viljum við gefa eftir af einstaklingsbundinni friðhelgi einstaklinganna vegna þessa. Það er spurnignin sem einstaklingshyggjumenn þurfa fyrst og fremst að svara en ekki vandræðast vegna vanhugsaðra ummæla einhvers þó hann sé þingmaður.
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Mannréttindi, Trúmál og siðferði, Utanríkismál/alþjóðamál | Facebook
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 276
- Sl. sólarhring: 753
- Sl. viku: 4097
- Frá upphafi: 2427897
Annað
- Innlit í dag: 256
- Innlit sl. viku: 3792
- Gestir í dag: 251
- IP-tölur í dag: 240
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
- Adolf Friðriksson
- Jón Þórhallsson
- Ágúst H Bjarnason
- Agný
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Andrés Magnússon
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Jón Þóroddur Jónsson
- Áslaug Friðriksdóttir
- Auðbergur Daníel Gíslason
- Baldur Hermannsson
- Námsmaður bloggar
- Jón Ríkharðsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kristjánsson
- Einar Gunnar Birgisson
- Björn Halldórsson
- Björn Júlíus Grímsson
- SVB
- Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
- Carl Jóhann Granz
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Dominus Sanctus.
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Helga Kristjánsdóttir
- Þórólfur Ingvarsson
- Dögg Pálsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Elle_
- Einar Björn Bjarnason
- Einar G. Harðarson
- Eiríkur Guðmundsson
- Elinóra Inga Sigurðardóttir
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- ESB og almannahagur
- Ester Sveinbjarnardóttir
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Jón Kristjánsson
- Atli Hermannsson.
- Baldur Gautur Baldursson
- Fríða Björk Einarsdóttir
- Friðrik Óttar Friðriksson
- Frjálshyggjufélagið
- Jakob Þór Haraldsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Georg Eiður Arnarson
- Gestur Halldórsson
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Guðmundur Pálsson
- Grazyna María Okuniewska
- Grétar Pétur Geirsson
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Guðmundur Júlíusson
- gudni.is
- Jón Þórhallsson
- Gunnar Freyr Hafsteinsson
- Gústaf Níelsson
- Gústaf Adolf Skúlason
- Guðjón Ólafsson
- Gylfi Þór Þórisson
- Haraldur Baldursson
- Halldór Jónsson
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Hannes Sigurbjörn Jónsson
- Haukur Baukur
- Birgir Guðjónsson
- Sigurbjörg Eiríksdóttir
- Heimir Ólafsson
- G Helga Ingadottir
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Himmalingur
- Hildur Sif Thorarensen
- Eiríkur Harðarson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Haraldur Huginn Guðmundsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Einar Ben
- Inga Lára Helgadóttir
- Inga G Halldórsdóttir
- Jakob S Jónsson
- Einar B Bragason
- Jens Guð
- jósep sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Jónas Egilsson
- Jón Pétur Líndal
- Jón Snæbjörnsson
- Jón Valur Jensson
- Jórunn Ósk Frímannsdóttir
- Eyþór Jóvinsson
- Júlíus Björnsson
- Júlíus Valsson
- Júlíus Brjánsson
- Bergur Thorberg
- Katrín
- Kjartan Pálmarsson
- Kjartan Eggertsson
- Kjartan Magnússon
- Högni Snær Hauksson
- Kolbrún Baldursdóttir
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristján H Theódórsson
- Bjarki Steingrímsson
- Steingrímur Helgason
- Konráð Ragnarsson
- Lífsréttur
- Loncexter
- Guðjón Baldursson
- Lúðvík Júlíusson
- Lúðvík Lúðvíksson
- Margrét St Hafsteinsdóttir
- Magnús Jónsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Alfreð Símonarson
- Markús frá Djúpalæk
- Marta Guðjónsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Morgunblaðið
- Natan Kolbeinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Örn Jónsson
- Ólafur Sveinsson
- Ólafur Fr Mixa
- Ómar Bjarki Smárason
- Páll Ingi Kvaran
- Pálmi Gunnarsson
- Pjetur Stefánsson
- Rafn Gíslason
- Ragnar G
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Ragnar L Benediktsson
- Rannveig H
- Árni Gunnarsson
- Ragnheiður Ólafsdóttir
- Rósa Harðardóttir
- ragnar bergsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Samstaða þjóðar
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigrún Jóna Sigurðardóttir
- Sigurbjörn Sveinsson
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Sigurjón Þórðarson
- Sigurður Jónsson
- Skattborgari
- Haraldur Pálsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Guðnason
- Jóhann Pétur
- Sverrir Stormsker
- Sturla Bragason
- Sumarliði Einar Daðason
- Ólafur Ingi Hrólfsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Björn Bjarnason
- Óli Björn Kárason
- Jón Þórhallsson
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þórhallur Guðlaugsson
- Þórhallur Heimisson
- Þorsteinn Erlingsson yngri
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Valdimar H Jóhannesson
- Valsarinn
- Valur Arnarson
- Vefritid
- Ingunn Guðnadóttir
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Vilhjálmur Eyþórsson
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Kristinn Ingi Jónsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Ívar Pálsson
Athugasemdir
Meira að segja Salman Tamimi hefur áhyggjur af öfga múslimum.
Má hann það án þess að allt verði vitlaust í samfélaginu?
https://www.youtube.com/watch?v=E-sZag4LUNw
Gunnar Th. Gunnarsson, 13.1.2015 kl. 13:57
Það hefur ekki farið mikið fyrir SUS í þjóðmálaumræðunni undanfarið. Reyndar þykir mér sem sárafátt hafi komið úr þeirrri átt í áratugi, sem hefur haft eitthvert vægi. Slagorðið "Báknið burt!" hefur allavega aldrei komist á koppinn, heldur hefur báknið vaxið með hverju árinu sem líður. Það sem er sorglegast, er að þeir sem mest höfðu sig í frammi og harðast hömruðu á þessu slagorði um báknið, reyndust síðan helstu talsmenn og gerendur í vexti báknsins, því miður.
Halldór Egill Guðnason, 13.1.2015 kl. 13:59
Þarna er verið að biðja mann um að biðjast afsökunar á skoðunum sínum sem er engin nýlunda í pólitík hér en hefur kannski ekki komið mikið úr þessari átt. Þetta er merki um að skoðanalögreglan er að skjóta rótum í SUS. Ég mundi hafa áhyggjur af því.
Guðmundur Jónsson, 13.1.2015 kl. 14:43
Þú segist ekki sammála þingmanninum en samt virðist þú ekkert hafa mikið á móti því að hafa sérstakt eftirlit með öllum múslimum. Ég vona bara að þú sem lögmaður gerir þér grein fyrir því að það sem þingmaðurinn stingur upp á væri gróft brot á stjórnarskrá Íslands. Þú vísar í eftirlit nágrannalandana en þeir sem eru undir sérstöku eftirliti eru múslimar sem þekktir eru fyrir að starfa með öfgahópum. Einnig eru nýnasistar víða undir eftirliti og fæstir eru þeir múslimar. En eins og uppljóstranir Edward Snowden sanna þá erum við öll undir eftirliti en venjulegur friðelskandi múslimi á það ekkert meira skilið en þú og ég. Að gera múslima að annars flokks borgurum í landinu myndi svo sannarlega ekki auka öryggi, við hljótum nú flest að geta verið sammála um það.
Jakob Snævar Ólafsson (IP-tala skráð) 13.1.2015 kl. 16:40
Já þetta er athyglilsvert Gunnar.
Jón Magnússon, 13.1.2015 kl. 18:04
Það er ekki hægt að alhæfa svona Halldór. Við erum til sem berum ekki ábyrgð á auknum ríkisumsvifum og höfum jafnan talað gegn þeim og reynt að hamla geng þeim. En því miður hafa aðrir ráðið för.
Jón Magnússon, 13.1.2015 kl. 18:05
Alla vega ætti að duga að lýsa sinni skoðun án þess að fordæma skoðanir annarra.
Jón Magnússon, 13.1.2015 kl. 18:05
Sérkennileg ályktun Jakob Snævar að ég hafi ekki mikið á móti því að haft sér sérstakt eftirlit með öllum múslimum. Ég veit ekki hvað gefur þér tilefni til slíkra ímyndana.
Jón Magnússon, 13.1.2015 kl. 18:07
Ég veit ekki betur Jakob Snævar en að félagar í vélhjólaklúbbum séu undir sérstöku eftirliti og jafnvel bannað að koma til landsins. Ég veit ekki betur en það séu hleraðir símar fjölmargra en ég veit ekki nákvæmlega hverjir það eru og á hvaða grundvelli hverju sinni. Ég er einmitt að gera athugasemdir við það Stasi þjóðfélag sem er að ryðja sér til rúms og Edward Snowden upplýsti okkur um. Við eigum ekki að láta öfgamenn svipta okkur mannréttindum. Er þetta nógu ljóst Jakob?
Jón Magnússon, 13.1.2015 kl. 18:09
Athyglisvert hjá Gunnari. Maður þarf að vera sem sagt að vera muslimi til að mega nefna almælt tíðindi.
Sigurður Þórðarson, 13.1.2015 kl. 21:51
Já Jón, þetta er alveg ljóst og ég verð bara að gera ráð fyrir að þér sé líka umhugað um mannréttindi saklausra múslima. Það sem fékk mig helst til að álykta að þú hefðir ekkert svakalega mikið á móti tillögum þingmannsins eru helst þessar setningar:
"Nú víkur svo við að ég er ekki sammála umræddum ummælum þingmannsins en sé þó ekki að hann þurfi að biðjast á þeim afsökunar eða einvher ástæða sé til að fordæma þau". og svo eftirfarandi: "Svo er það nú annað sem að þeir sem fordæma þingmanninn Ásmund Friðriksson ættu að hugleiða, en það er sú staðreynd að lögregludeildir hvort sem eru á hinum Norðurlöndunum og Bretlandi eru einmitt uppteknar við að skoða sérstaklega þá sem aðhyllast þennan trúarhóp sem þingmaðurinn gerði að umtalsefni með tilliti til öryggis borgaranna. Þingmaðurinn er því ekki að segja neitt sem fer í bág við almenna praktík í nágrannalöndum okkar og sjálfsagt hér líka. Þá má líka benda á að stofnaðar hafa verið lögregludeildir sérstaklega til að fylgjast með fólki sem aðhyllist Íslam."
Lái mér hver sem vill að túlka þessi orð þín eins og ég gerði en ef þetta er algerlega rangt hjá mér þá bara biðst ég velvirðingar á því. Þá vonandi getum við verið sammála um að það gengur ekki, hvorki lagalega né siðferðislega, að hefja einhvers konar rannsókn á 1500 manns bara út af því að þessi hópur aðhyllist ákveðin trúarbrögð
Jakob Snævar Ólafsson (IP-tala skráð) 14.1.2015 kl. 00:00
Sæll Jón. Þetta var ekki sneið til þín. Ég sat Landsfundinn í Eyjum á sínum tíma og man vel hverjir voru þar. Þeir sem þar voru og seinna meir náðu inn á þing eða annað innan stjórnsýslunnar, gleymdu undrafljótt slagorðinu, "Báknið burt". Því miður, fyrir land og þjóð og því fór sem fór. Feitir eftirlaunasjóðir virðast hafa verið eina markmiðið með þátttöku þeirra í pólitík, að því er virðist, en sennilega er það líka kolröng alhæfing hjá mér, eins og svo oft áður.
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
Halldór Egill Guðnason, 14.1.2015 kl. 01:42
Vel mælt Jón og ég vil að menn séu allment skermaðir sem koma til landsins.Við getum notað CIA eins og þjóðverjarnir gera en þeir fá upplýsingarsínar í gegn um þá. Grein í Washington post. Ég sé í huga mé nokkrar rútur koma með Norrona ferjunni til seyðisfjarðar og út koma myndarlegir túristar sem komast hingað á eftirlits. Þeir hafa hamskipti á kæjanum vigbúast og eru komin með Ísland í gíslingu. Isis landið fyriheitan komið í hendur Ísis.
Valdimar Samúelsson, 14.1.2015 kl. 10:15
Ég verð að segja að viðbröð þjóðfélagsins hafa komið mér verulega á óvart. Eflaust má til sanns vegar færa að ekki megi mismuna eftir trúarbrögðum, litarhætti o.s.frv. en er einhver annar hópur/flokkur sem hefur eftir stríð ráðist jafn markvisst á, drepið og slasað saklausa borgara, víðsvegar á vesturlöndum? Þegar fólk af þessum sama trúflokki drap nokkur þúsund bandaríkjamanna var eina ráðið að láta voðaverkin bitna á allri heimsbyggðinni með því að stórauka vopnaleit á flugvöllum og lengja ferðatíma með flugi um allt að 2 klst á ferð. Ég skil vel að þingmaðurinn hugsi leiðir til að stemma stigu við óöldinni, en ef til vill hefði hann mátt halda þessu fyrir sig á meðan hann var að kanna hvaða leiðir eru færar.
Kjartan Sigurgeirsson, 14.1.2015 kl. 10:39
Nei Jakob mér er annt um mannréttindi allra. En ég er að benda á tvískinnunginn. Það er ráðist á mann sem setur frá sér lítt hugsuð orð á sama tíma og verið er að framkvæma að verulegu leyti það sem hann er að tala um. Svo sýnist mér honum líka hafa orðið fótaskortur á tungunni og ekki gert greinarmun á Íslamistum og Múslimum. En mér finnst þetta fyrst og fremst storumur í vatnsglasi og það er það sem færslan lítur að.
Jón Magnússon, 14.1.2015 kl. 15:12
Ég tók það heldur ekki til mín Halldór. Því miður virðast það vera örlög þeirra sem setjast í valdastóla á vegum Sjálfstæðisflokksins að þeir standa ekki nægjanlega fastir fyrir þegar kemur að hagsmunum skattgreiðenda.
Jón Magnússon, 14.1.2015 kl. 15:13
Takk fyrir það Valdimar. Ég held að þetta hafi verið óheppilega orðað hjá þingmanninum en ætla mér ekki að reyna frekar að barna það sem hann vildi sagt hafa.
Jón Magnússon, 14.1.2015 kl. 15:14
Það er einmitt það Kjartan sem mér finnst að í þessu máli. Það eru þau skefjalausu viðbrögð sem fréttastofur og aðrir sýna eins og þetta sé helsti heimsögulegi viðburður ársins.-
Jón Magnússon, 14.1.2015 kl. 15:15
Það er einfaldlega rangt að verð sé að framvæma að verulegu leyti það sem þingmaðurinn var að tala um. Það er engin þjóð að fylgjast með mönnum bara fyrir það eitt að vera múslimar eins og hann lagði til.
Aftur á móti er fjöldi þjóða þar með Ísland að fylgjast með öfgamönnum sem taldir eru hættulegir. Það hefur ekkert með trú þeirra að gera.
Hvað varðar Hells Agles meðlimina sem ítekað voru stoppaðir í Leifsstöð þá eru Hells Angles og nokkur önnur mótorhjólasamtök einfaldlega skilgeins sem skipulögð glæpasamtök sem þau eru og því eru meðlimir þeirra undir efirliti. Þegar þeir komu til landsins voru þeir teknir í yfirheyrslur og þeir úr hópnum sem voru á sakaskrá, sem þeir voru flestir, var meinað að fara inn í landið og því sendir aftur heim með næstu vel. Þeir úr hópnum sem ekki voru á sakaskrá var hins vegar hleypt inn í landið en voru undir eftirliti meðan þeir voru hér.
Og svo má geta þess að ástæða þess að íslensk stjórnvöld gátu án fyrirvara flett upp hverjir í hópnum voru á sakaskrá og hverjir ekki eru sú að við erum aðilar að Shengen samstarfinu. Værum við það ekki hefðum við þurft nokkra daga til að fá þær upplýsingar. Staðreyndn er nefnielga sú að aðild að Shengen samstarfinu er öflugasta vopn okkar í baráttunni við bæði skipulögð glæpasamtök og hryðjuverkasamtök.
Sigurður M Grétarsson, 15.1.2015 kl. 06:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.