Leita í fréttum mbl.is

Hægri sveifla í Hollandi

AF fréttum fjölmiðla af úrslitum þingkosninga í Hollandi má ætla að flokkur Geert Wilders hafi beðið mikið afhroð og Hollendingar hafi með öllu afneitað hægri stefnu, svonefndum pópúlisma og þjóðernisstefnu. En voru úrslitin þannig?

Þegar rýnt er í kosningaúrslitin þá kemur eitthvað allt annað í ljós en fréttastofa RÚV og "fræðimaðurinn" Eiríkur Bergmann sem kynntur var til leiks í morgunútvarpi RÚV sem sérfræðingur í pópúlisma.

Niðurstaða hollensku kosningana var sú að hægri og miðflokkar júku mjög fylgi sitt þ.á.m. flokkur Geert Wilders, en flokkurinn fékk 25% fleiri þingsæti en í síðustu kosningum.

Hörð afstaða Rutger forsætisráðherra Hollands og bann við fundarhöldum tyrkneskra ráðamanna í Hollandi er talin hafa leitt til fylgisaukningar flokks Rutgers, en að sama skapi að sókn Wilders var ekki eins mikil og spáð hafði verið.

Eftir sem áður stendur að hægri og miðflokkar unnu afgerandi sigur í Hollandi þ.á.m. flokkur Geert Wilders hvort sem fréttastofu RÚV líkar betur eða verr.

Það eru jú staðreyndir mála sem fréttastofur eiga að birta en ekki afbökuð óskhyggja fréttamanna og ímyndun um staðreyndir.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Bara smá leiðrétting:

Núverandi forsætisráðherra Hollands heitir Mark Rutte. Hann tók við forsætisráðherraembættinu árið 2010.

Agla (IP-tala skráð) 16.3.2017 kl. 17:26

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Það er 40 % innbyrðis sveifla milli Rutte og Wilders. Það er ósigur pópúlismans í augum Eríks Bergmanns sérstaks álitsgjafa RÚV í pólitík.

Halldór Jónsson, 16.3.2017 kl. 21:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Des. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.12.): 217
  • Sl. sólarhring: 506
  • Sl. viku: 4433
  • Frá upphafi: 2450131

Annað

  • Innlit í dag: 198
  • Innlit sl. viku: 4127
  • Gestir í dag: 194
  • IP-tölur í dag: 192

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband