Leita í fréttum mbl.is

Ríkisstjórnin sýnir lífsmark

Loksins kom að því, að ríkisstjórnin sýndi smá lífsmark og tæki ekki öllu sem sóttvarnarlæknir segir eins og Guð hefði sagt það. 

Næta skrefið verður væntanlega að ríkisstjórnin móti stefnu í sóttvarnarmálum varðandi Covid 19. Það gengur ekki að það sé lokað eða opnað vegna geðþóttaákvarðana eins manns jafnvel þó fær sé og gangi Guði næstur að vitsmunum að margra mati. 

Lokunin og takmörkunin sem sett var fyrir 3 vikum var ónauðsynleg. En sýnir að þegar mannréttindi hafa verið skert, þá er erfiðara að koma þeim á aftur. 

Annað atriði sem ríkisstjórnin þarf að huga að er öryggi bólusetninga. Alls hafa 29 manns sagðir hafa dáið úr Covid hér á landi. En 15 skömmu eftir að þeir fengu bóluefni. Hvort orsakasamhengi sé í öllum tilvikum milli bólusetningar og dauðsfalla skal ekkert fullyrt, en spurning hlítur að vera hvort ástæða er til að troða bóluefninu í aðra en þá, sem eru í áhættuhópum. 

 


mbl.is Ríkisstjórnin fór gegn tillögum Þórólfs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarni Jónsson

Aftursætisbílstjóri sóttvarnaraðgerða hérlendis, stundum kenndur við Trump vegna áhuga á landamæralokun, fékk opinbert kast, og sóttvarnarlækni þótti strax ljóst, að 4. bylgja C-19 væri í aðsigi og skellti í eitt afleitt minnisblað til ráðherra, sem gleypti allt. Þetta var dómgreindarskortur.  Þessi einsmanns stjórn sóttvarna í landinu er meingölluð og verður að ráða bót á í lögum með nýju sóttvarnarráði, þar sem ólík sjónarmið fá að takast á áður en tillaga berst ráðherra.  Núverandi fyrirkomulag er geðþóttastjórnun.  Oftast vantar allan rökstuðning, og alls enginn gaumur er gefinn að lagastoð mjög íþyngjandi stjórnvaldsfyrirmæla fyrir borgarana.  Þetta er ótrúlega frumstætt fyrirkomulag.

Bjarni Jónsson, 15.4.2021 kl. 11:25

2 Smámynd: Geir Ágústsson

Varstu ekki búinn að sjá að yfirvöld eru með sóttvarnaráætlun? Hún kom fram í tveggja manna tali í hlaðvarpi á dögunum:

https://www.mbl.is/smartland/stars/2021/04/06/vonar_ad_13_oktober_verdi_buid_ad_afletta_ollu/

Þetta er a.m.k. það næsta sem yfirvöld hafa komist í áætlanagerð sinni: Að Kári segi eitthvað í hlaðvarpi sem fær svo þingmenn til að spyrjast fyrir í þingsölum:

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2021/04/12/snyst_ekki_um_neinn_afslatt_a_sottvarnaadgerdum/

Geir Ágústsson, 15.4.2021 kl. 12:58

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Fréttir berast manni líka í smá viðskiptum,eins og á hárgreiðslustofu í dag.-Frændi mannsins míns heitins (68,ára) hafði þjáðst af þrálátum höfuðverk. Dreif sig þá í rannsókn þar sem hann greindist með blóðtappa í höfði,hann hafði ekki verið sprautaður vegna Covid,19 eða nokkru öðru. Okkur var hugsað hve við hefðum ranglega grunað sökudólginn bóluefnið, hefði hann þegar verið búin að þiggja það sem var ekki komið að honum fyrir austan fjall.  

Helga Kristjánsdóttir, 16.4.2021 kl. 23:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.1.): 15
  • Sl. sólarhring: 856
  • Sl. viku: 5869
  • Frá upphafi: 2474168

Annað

  • Innlit í dag: 13
  • Innlit sl. viku: 5351
  • Gestir í dag: 13
  • IP-tölur í dag: 13

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband