Leita í fréttum mbl.is

Innflytjendur og Schengen

Mörgum þykir hin mesta goðgá, þegar fólk lýsir þeim skoðunum, að það þurfi að takmarka aðstreymi innflytjenda og hælisleitenda og endurskoða ákvæði Schengen samningsins, en segja sig frá því samstarfi ella. Þeir sem ræða slíkt eru tíðum kallaðir öfgamenn,rasistar, náttröll eða að þeir  en fylgist ekki með tímanum, þar sem við komumst ekki hjá, að taka á okkur alþjóðlegar skuldbindingar og þá oftast vísað í strákana sem ráða í Brussel gæðum og reglum í Evrópusambandinu. Manna eins og t.d. Michel Barnier, sem var samningamaður Evrópusambandsins vegna útgöngu Breta úr Evrópusamstarfinu og þótti halda fast á málum og vera lítt sveigjanlegur í þeim viðræðum.

Nú hefur sá hinn tilkomumikli franski stjórnmálamaður Michel Barnier,sá mikli mógúll Evrópusamstarfs og pólitískrar rétthugsunar viðrað þær skoðanir til heimabrúks í Frakklandi að nauðsynlegt sé að banna aðflutning innflytjenda utan Evrópu næstu 3-5 árin og breyta þurfi ýmsum ákvæðum Schengen samningsins.

Þessar skoðanir Barnier ganga mun lengra en flestir þeir sem fjallað hafa um málin hér á landi hafa leyft sér að orða. Barnier, sem mundi flokkast sem hægri miðjumaður í frönskum stjórnmálum ætti því að eiga pólitíska samleið með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur og Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur og fróðlegt væri að vita hvaða skoðanir þær hafa á þessum sjónarmiðum Barniers.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jónsson

Hvort þær hafa skoðanir er eitt en hvort þær hafi sannfæringu er annað.Þæ  eru jú á atkvæðaveiðum eins og Inga Sæland

Halldór Jónsson, 20.5.2021 kl. 23:17

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Bragð er að þá Barnier finnur! Það væri virkilega ánægjulegt að þær stöllur áttuðu sig á að hann sér vitleysina í þessu Shengen samkomulagi og les breyttar aðstæður af skynsemi; Nokkuð sem okkar allra bestu höfundar ritaðs máls,auk stöku þingmanna hafa margoft hreyft.  

Helga Kristjánsdóttir, 21.5.2021 kl. 01:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 513
  • Sl. sólarhring: 598
  • Sl. viku: 4560
  • Frá upphafi: 2427404

Annað

  • Innlit í dag: 464
  • Innlit sl. viku: 4224
  • Gestir í dag: 446
  • IP-tölur í dag: 427

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband