Leita í fréttum mbl.is

Farsóttin er búin. Fólkið sigraði.

Yfirskrift leiðara blaðsins Reykjavík Grapevine júlíútgáfu er, að Farsóttin(Kóvíd) sé búin og fólkið hafi sigrað. Ritstjórinn er ekki sá fyrsti sem hefur sett fram slíkar fullyrðingar. 

Fyrir rúmu ári síðan var lýst yfir sigri á Kóvídinu og þríeykið fékk fálkaorðuna fyrir sigursæla framgöngu. 

Nú ári síðar kemur ríkisstjórnin enn einu sinni saman til neyðarfundar til að ræða "minnisblað" sóttvarnarlæknis (sérkennilegt að kalla tillögur minnisblöð). Tillögurnar lúta að fjöldatakmörkunum og bönnum. 

Enn einu sinni verðum við þá stödd í raunveruleikaheimi óraunveruleikans. 

Undantekningarlaust hafa þær aðgerðir sem gripið hefur verið til meðan Kóvídið hefur herjað staðið mun lengur en efni standa til. Nú þegar flest bendir til þess, að Kóvíd smit séu ekki eins alvarleg heilsu fólks eins og áður, þá er full ástæða til þess, að ríkisstjórnin takmarki frelsistakamarkanir í tíma. 

Fari svo að gripið verði til samkomutakmarkana og annarra frelsisskerðinga ætti ríkisstjórnin að miða við að þær aðgerðir standi ekki lengur en í mesta lagi hálfan mánuð og falli þá sjálfkrafa niður, ef þær eru ekki framlengdar. 

Mörgum hættir til að hnýta í þá sem þeir telja sökudólga og ritstjóri Grapevine gerir það í leiðara sínum  og segir "populist figures" í heiminum hafi tapað baráttunni, en það hafi kostað fjölda manns lífið. Manni verður þá helst fyrir að hugsa til Stefan Löwen forsætisráðherra Svíþjóðar í þessu sambandi,sem er ómaklegt og rangt, en vafalaust á ritstjórinn við einhverja aðra þó hann tali ekki hreint úr pokanum. 

Í sumum stríðum eru engir sigurvegarar. Hætt er við að það eigi við Kóvídið. Samt sem áður eiga ýmsir hrós skilið og hlutirnir hefðu farið á verri veg án þeirra. 

En er ekki best að spyrja að leikslokum?


mbl.is Ríkisstjórnin fundar um tillögur Þórólfs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Allir komufarþegar fái hámark tveggja viku skammt af þekktum ódýrum lyfjum. 

Nú er engin önnur leið en að viðurkenna staðreyndir. 

Singapúr, segir inflúenza, Kína segir inflúenza og fleiri lönd segja inflúenza. 

Þá segir Ísland inflúenza, allir taki IVERMECTIN og þau gömlu lyf sem best hafa reynst. 

Var logið í læknana, voru þeir látnir nota of stóra skammta af gömlu lyfjunum? 

Tökum frumkvæðið, leysum málið. 

Egilsstaðir, 23.07.2021   Jónas Gunnlaugsson

Jónas Gunnlaugsson, 23.7.2021 kl. 12:32

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Flestir sem tala mest og skrifa um "popúlisma" rangtúlka næstum alltaf hugtakið og gera þá reginvillu að leggja þessa ágætu stjórnmálastefnu að jöfnu við lýðskrum.

Slíkur málflutningur er lýðskrum.

Guðmundur Ásgeirsson, 23.7.2021 kl. 17:47

3 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Við ímynduðu vandamáli er aðeins eitt svar: Ímynduð lausn.

Þorsteinn Siglaugsson, 23.7.2021 kl. 22:12

4 Smámynd: Jón Magnússon

Sammála Guðmundur. 

Jón Magnússon, 25.7.2021 kl. 09:48

5 Smámynd: Jón Magnússon

Sammála þér líka Þorsteinn. En raunveruleiki heimsins er þessi og  þá er spurningin að sem minnstum skaða sé valdið ef það er þá kostur úr þessu.

Jón Magnússon, 25.7.2021 kl. 09:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Des. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.12.): 255
  • Sl. sólarhring: 552
  • Sl. viku: 3943
  • Frá upphafi: 2449427

Annað

  • Innlit í dag: 224
  • Innlit sl. viku: 3687
  • Gestir í dag: 211
  • IP-tölur í dag: 204

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband