8.2.2022 | 09:26
Altúnga Fréttablaðsins
Í háðsádeilusögunni Birtingi segir heimspekingurinn Voltaire frá heimspekingnum Altúngu, sem hafði þá bjargföstu lífsskoðun að allt sem gerðist væri af hinu góða. Algóður Guð hefði skapað bestu jörðina. Eftir mikla hrakninga Birtings og Altúngu, þar sem þeir höfðu misst eigur sínar og ástvinir þeirra höfðu mátt þola pyntingar, verið nauðgað og drepnir og Altúnga hafði verið hengdur, krufinn og húflettur m.a.,þá spyr Birtingur hvort honum hafi alltaf fundist að allt væri upp á það besta í veröldinni. Altúnga svarar að hann hafi sömu skoðun og fyrr enda sé hann heimspekingur og sér sæmi ekki að vera tvísaga.
Með sama hætti og Altúnga túlkaði allar hörmungar með þeim hætti að þær væru leið almættisins til einhvers enn betra, þá túlka Altúnguheimspekingar nútímans allt með þeim hætti, að loftslagsbreytingum og hamfarahlýnun sé um að kenna.
Þessi trúarheimspeki kemur glögglega í ljós í leiðara Fréttablaðsins í dag, þar sem fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins skrifar um þau hörmulegu örlög sem okkar bíða. Ólíkt Altúngu hefur hún enga fótfestu í kristinni hugmyndafræði eins og Altúnga en þeim mun meiri í möntrunni um að allt sem gerist illt í heiminum sé loftslagsbreytingum af mannavöldum að kenna.
Illviðri, stormar, frost og snjókoma er loftslagsbreytingum af mannavöldum að kenna. Gott veður og hlýindi líka. Jafnvel þó að við búum á þeim tímum jarðsögunnar, þar sem öfgar í veðurfari og náttúruhamfarir séu minni en á ýmsum öðrum tímum, þá gildir það ekki og hefur enga merkingu ekki frekar en það þegar Altúnga varð þræll á galeiðu, þá var það af hinu góða.
Jafnvel þó bent sé á þá staðreynd,að engar meiriháttar breytingar hafi orðið á veðurfari í þau rúmu 30 ár sem baráttan gegn meintri hamfarahlýnun hefur staðið, þá gildir það ekki vegna þess að stórir hópar vísindamanna nærast á að halda öðru fram og þægindastjórnmálamenn nútímans reyna að yfirbjóða hver annan í lýsingum á því illa sem sé um það bil að gerast. Þeir setja síðan lög að skapi ofurauðmanna, sem að sjálfsögðu hafa fundið leið til að græða á þessum nýju trúarbrögðum og kynda undir áróðrinum með mynarlegum fjárframlögum til mismunandi trúfélaga loftslagskirkjunnar.
Þingmaðurinn fyrrverandi og aðrir sem eru ekki botnfrosnir í loftslagskirkjunni mættu huga að því, að engin spá hamfarahlýnunarpostulanna hefur reynst rétt í þau rúmu 30 ár sem þessi áróður hefur verið. Spádómur Al Gore um íslausan norðurpól árið 2008 hefur ekki gengið eftir og spár Karls Bretaprins um endalokin sem hann hefur framlengt í tvígang hafa heldur ekki gengið eftir. Það er ekkert að gerast í heiminum varðandi loftslag, sem ekki hefur gerst áður eða þarf að óttast. Þó svo að nokkur hlýnun hafi orðið þá er það ekkert umfram það sem áður hefur þekkst.
Í leiðaranum er vísað til þess, að framámaður frá Kyrrahafseyju stóð með fæturna í bala með vatni á ráðstefnu í Glasgow um meinta hlýnun af mannavöldum og hélt því fram, að við þær aðstæður byggju hann og aðrir. Allt var þetta ómerkileg auglýsingamennska, sem fangaði hug þægindastjórnmálamanna.
Staðreyndin er sú, að sjávarborð hefur hækkað og lækkað á ýmsum tímum jarðsögunnar og nú er það tiltölulega stöðugt og auglýsingamennska sendimannsins var til að fá meiri peninga frá hinum "ríku" Vesturlöndum, þar sem þægindastjórnmálastéttin hamast við að finna leiðir til að draga úr lífsgæðum borgaranna og takmarka möguleika neytenda til að geta veitt sér það, sem við höfum talið sjálfsagða hluti.
Meðan þægindastjórnmálamennirnir, leiðarahöfundar og fjölmiðlafólk hamast við að þylja bænir um hamfarahlýnun og ofurauðmenn kynda undir með myndarlegum fjárgjöfum, sem skila sér síðan margfalt til þeirra aftur, þá er eðlilegt að ungt fólk verði hrætt og trúi hamfaraboðskapnum. Það er því illa gert og þjóðhagslega fjandsamlegt að þægindastjórnmálamennirnir og fjölmiðlafólkið skuli ekki nenna að kynna sér hvað er raunverulega að gerast til að tala af þekkingu um málin.
Áfram verður því miður haldið þangað til að neytendur og skattgreiðendur átta sig á því, að það er verið að ræna peningunum þeirra og brenna lífskjör þeirra og fjármuni á altari trúarbragða sem standast ekki, en er haldið við með skefjalausum áróðri ríkishyggjuafla nútíma stjórnmála og ofurauðmanna sem mæta á loftslagsráðstefnur á einkaþotunum til að hamra það inn í almúgann, að allt sé þeim að kenna og þeir megi ekki fara í ferðalög í farþegaflugi vegna þess að það séum við skóflupakkið en ekki forréttindaaðallinn, sem völdum því að heimurinn sé að farast vegna hlýnunar jarðar.
Samt snýst jörðin sem fyrr eins og heiðarlegi vísindamaðurinn sagði eftir að hann hafði verið neyddur til þess af prelátum kaþólsku kirkjunnar til að afneita eigin kenningum. Það gerir hún líka og mun gera. Spurningin er bara hvað mikið af vitlausum ákvörðunum verða teknar vegna þessara trúarbragða, hvað þær muni kosta og hvað þær muni rýra lífskjörin mikið.
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Umhverfismál, Vísindi og fræði | Facebook
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.12.): 217
- Sl. sólarhring: 504
- Sl. viku: 4433
- Frá upphafi: 2450131
Annað
- Innlit í dag: 198
- Innlit sl. viku: 4127
- Gestir í dag: 194
- IP-tölur í dag: 192
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
- Adolf Friðriksson
- Jón Þórhallsson
- Ágúst H Bjarnason
- Agný
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Andrés Magnússon
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Jón Þóroddur Jónsson
- Áslaug Friðriksdóttir
- Auðbergur Daníel Gíslason
- Baldur Hermannsson
- Námsmaður bloggar
- Jón Ríkharðsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kristjánsson
- Einar Gunnar Birgisson
- Björn Halldórsson
- Björn Júlíus Grímsson
- SVB
- Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
- Carl Jóhann Granz
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Dominus Sanctus.
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Helga Kristjánsdóttir
- Þórólfur Ingvarsson
- Dögg Pálsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Elle_
- Einar Björn Bjarnason
- Einar G. Harðarson
- Eiríkur Guðmundsson
- Elinóra Inga Sigurðardóttir
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- ESB og almannahagur
- Ester Sveinbjarnardóttir
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Jón Kristjánsson
- Atli Hermannsson.
- Baldur Gautur Baldursson
- Fríða Björk Einarsdóttir
- Friðrik Óttar Friðriksson
- Frjálshyggjufélagið
- Jakob Þór Haraldsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Georg Eiður Arnarson
- Gestur Halldórsson
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Guðmundur Pálsson
- Grazyna María Okuniewska
- Grétar Pétur Geirsson
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Guðmundur Júlíusson
- gudni.is
- Jón Þórhallsson
- Gunnar Freyr Hafsteinsson
- Gústaf Níelsson
- Gústaf Adolf Skúlason
- Guðjón Ólafsson
- Gylfi Þór Þórisson
- Haraldur Baldursson
- Halldór Jónsson
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Hannes Sigurbjörn Jónsson
- Haukur Baukur
- Birgir Guðjónsson
- Sigurbjörg Eiríksdóttir
- Heimir Ólafsson
- G Helga Ingadottir
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Himmalingur
- Hildur Sif Thorarensen
- Eiríkur Harðarson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Haraldur Huginn Guðmundsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Einar Ben
- Inga Lára Helgadóttir
- Inga G Halldórsdóttir
- Jakob S Jónsson
- Einar B Bragason
- Jens Guð
- jósep sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Jónas Egilsson
- Jón Pétur Líndal
- Jón Snæbjörnsson
- Jón Valur Jensson
- Jórunn Ósk Frímannsdóttir
- Eyþór Jóvinsson
- Júlíus Björnsson
- Júlíus Valsson
- Júlíus Brjánsson
- Bergur Thorberg
- Katrín
- Kjartan Pálmarsson
- Kjartan Eggertsson
- Kjartan Magnússon
- Högni Snær Hauksson
- Kolbrún Baldursdóttir
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristján H Theódórsson
- Bjarki Steingrímsson
- Steingrímur Helgason
- Konráð Ragnarsson
- Lífsréttur
- Loncexter
- Guðjón Baldursson
- Lúðvík Júlíusson
- Lúðvík Lúðvíksson
- Margrét St Hafsteinsdóttir
- Magnús Jónsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Alfreð Símonarson
- Markús frá Djúpalæk
- Marta Guðjónsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Morgunblaðið
- Natan Kolbeinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Örn Jónsson
- Ólafur Sveinsson
- Ólafur Fr Mixa
- Ómar Bjarki Smárason
- Páll Ingi Kvaran
- Pálmi Gunnarsson
- Pjetur Stefánsson
- Rafn Gíslason
- Ragnar G
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Ragnar L Benediktsson
- Rannveig H
- Árni Gunnarsson
- Ragnheiður Ólafsdóttir
- Rósa Harðardóttir
- ragnar bergsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Samstaða þjóðar
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigrún Jóna Sigurðardóttir
- Sigurbjörn Sveinsson
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Sigurjón Þórðarson
- Sigurður Jónsson
- Skattborgari
- Haraldur Pálsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Guðnason
- Jóhann Pétur
- Sverrir Stormsker
- Sturla Bragason
- Sumarliði Einar Daðason
- Ólafur Ingi Hrólfsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Björn Bjarnason
- Óli Björn Kárason
- Jón Þórhallsson
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þórhallur Guðlaugsson
- Þórhallur Heimisson
- Þorsteinn Erlingsson yngri
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Valdimar H Jóhannesson
- Valsarinn
- Valur Arnarson
- Vefritid
- Ingunn Guðnadóttir
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Vilhjálmur Eyþórsson
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Kristinn Ingi Jónsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Ívar Pálsson
Athugasemdir
"Illviðri, stormar, frost og snjókoma er loftslagsbreytingum af mannavöldum að kenna". Hver hefur haldð þessu fram? Ég held að jafnvel "falsspámanninum mikla", Al Gore, sem sagður er dunda sér helst við að fljúga heimshornanna milli á þotunum sínum, hafi aldrei dottið slíkt í hug, jafnvel þótt hann hafi spáð íslausum norðurpól ("may-be" en sleppum því) árið 2008.
Loftslagið á jörðinni er að hlýna, um það eru ótal vísbendingar. Dæmi þar um er "Ötzi" maðurinn sem kom undan jökli í Ölpunum eftir 5300 ár. Skriðuföllum í Ölpunum fjölgar vegna bráðnunar sífrera. Í Síberíu bráðnar sífrerinn undan heilu borgunum svo að undirstöður þeirra skekkjast og metangösin streyma upp úr jörðinni. Þar finnast nú hræ af löngu útdauðum dýrum og er jafnvel óttast að óþekktar sóttkveikjur kunni að leynst þar og muni nú losna úr læðingi.
Það er svo ótal margt sem hefur áhrif á loftslagið. Það að halda því fram að maðurinn skipti þar engu máli er fráleit fullyrðing. Kannski hefur tilvera hans einmitt gert að verkum að loftslagið er eins og það er, bara nokkuð þægilegt. Því ber okkur skylda til að gera allt sem við getum til þess að breyta því sem allra minnst.
Hörður Þormar (IP-tala skráð) 8.2.2022 kl. 16:38
Takk fyrir mjög góðan pistil.
Nánast allar breytingar eru yfirvöldum í hag og almenningi í óhag. Yfirvöld hafa aldrei áður gengið eins langt og núna með stórslysi tilraunabólusetninga án nokkurra varnaðarorða og bókstaflega þvingað stóran hluta fólks undir nálina sem mjög líklega eiga eftir að hafa skelfilegar afleiðingar. Loftslagsþvælan er svo annað skýrt dæmi um yfirgang sem rýrir kjör almennings. Hvað kemur næst? Heilaþvottur almennings er hættulegasti vírusinn.
Kristinn Bjarnason (IP-tala skráð) 9.2.2022 kl. 12:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.