Leita í fréttum mbl.is

Græna örbirgðin

Hvernig stendur á því að efnahagur Sri Lanka breytist úr einum mesta hagvexti í Asíu í mannlega hryllingssýningu sem virðist koma öllum á óvart skrifar Matt Ridley blaða- og vísindamaður í DT í dag og heldur áfram:

Hvað gerðist? Svarið er einfalt. Í apríl 2021 bannaði forsetinn meindýraeitur og tilbúinn áburð til að landbúnaðarframleiðsla landsins yrði algjörlega lífræn. Innan nokkurra mánaða hafði útflutningur á te minnkað um helming og hrísgrjónauppskeran drógst gríðarlega saman, þannig að í fyrsta skipti þurfti að flytja inn hrísgrjón.

Vegna þessa gat ríkið ekki greitt afborganir af lánum og gjaldmiðillinn hrundi. Algeng matvæli voru sýkt, sem leiddi til skorts á mat og útbreiddrar hungursneyðar. Allt var þetta afleiðing af svo kölluðum sjálfbærum landbúnaði.

Á loftslagsráðstefnunni í Glasgow í fyrra montaði forseti Sri Lanka sig af því að landbúnaðarstefna hans væri samtvinnuð og í samhljómi með náttúrunni og einn þekktasti umhverfissinninn Vandana Shiva sagði að þessi ákvörðun mundi örugglega gera bændur á Sri Lanka ríkari.

Shiva ásamt mörgum umhverfisverndunarsinnum hafa gagnrýnt grænu byltinguna sem varð upp úr 1960 með hjálp tilbúins áburðar og meindýraeiturs og uppgötvana Norman Borlaug. Sú bylting kom í veg fyrir gríðarlegan mannfelli vegna hungurs í heiminum í fyrsta skipti í sögunni, þrátt fyrir gríðarlega fjölgun mannkynsins.

Margir umhverfissinnar sjá allt vont við þessa grænu byltingu og halda því fram að hefðbundin lífrænn landbúnaður geti miklu frekar brauðfætt heimsbyggðina með mun heilusamlegri mat en græna bylting tilbúins áburðar, skordýraeiturs o.fl. geti gert.

Nú hefur tilraunin með lífrænan búskap verið reynd á Sri Lanka með hörmulegum afleiðingum. „Lífrænn landbúnaður er sjálfbær að því leyti að hann viðheldur fátækt og matarskorti .“ Landbúnaður var lífrænn þegar milljónir dóu úr hungri á hverjum áratug og rykstormarnir ríktu á sléttunum í Bandaríkjunum vegna þess að það skorti áburð.

Ef það ætti að brauðfæða 8 þúsund milljónir manna með lífrænum aðferðum, þá yrði að taka meira en helmingi meira land í notkun fyrir slíkan landbúnað eða nánast allt ræktarland og skóga í heiminum. Af hverju segja hefðbundnar fréttastofur ekki frá staðreyndunum varðandi Sri Lanka og lífræna framleiðslu.

Hvað þarf að fórna miklu áður en menn horfast í augu við raunveruleikann?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Já Jón. Það er ótrúlegt hvað rétttrúnaðurinn

nær að hafa áhrif.

Spurning hversu lengi hægt er að nota hjarðhegðunina

lengi áður en fólk áttar sig á því að það er búið

að hafa það að fíflum.

Þessi pistill þinn er einmitt dæmi um öfgvana sem

rétttrúnaðurin kemur til leyðar og kostar undantekningar laust

verri lífs skilyrði þeirra sem minna meiga sín.

En þetta er svo auðvelt á Íslandi, þegar rétttrúnaðarinn 

þykir mikilvægara að kenna "hinseginfræðslu" 

i grunnskólum, heldur en almenna stærðfræði, landafræði,

náttúrufræði og almenna kurtreisi, tala nú ekki um íslenska

málfræði.

Grunnskóla börn mörg hver, kunna ekki á klukku ef hún

er ekki digital. Það þykir ekkert athugavert.

En við hverju er að búast þegar "ALDREI" má segja 

sannleikann, hvað þá tala um hann.

Það er ömurlegt að hugsa til þess að minnihluta skoðanir

skulu ná að olnboga sig áfram í þögn meiri hlutans.

En ef þjóðin/almenningur yrði spurður ýmissa spurninga

sem rétttrúnaðar liðið gerir allt til að koma í

veg fyrir, þá myndu nú renna upp ansi margar grímur á marga.

Því svörin yrðu ansi óþægileg og betra að láta það

ekki birtast.

Er ekki lýðræðið þannig uppsett að meirihluti á að ráða.??

Á Íslandi virðist þetta virka þveröfug.

Sigurður Kristján Hjaltested, 17.7.2022 kl. 18:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 142
  • Sl. sólarhring: 825
  • Sl. viku: 2528
  • Frá upphafi: 2294079

Annað

  • Innlit í dag: 136
  • Innlit sl. viku: 2303
  • Gestir í dag: 136
  • IP-tölur í dag: 134

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband