Leita í fréttum mbl.is

Frelsissvipting og valdboð

Eitt elsta mannréttindaákvæðið varðar rétt einstaklingsins yfir eigin líkama og dvalarstað. Ríkisvaldið hefur samt sem áður talið sig hafa rétt til að svipta fólk ákvörðunarvaldi í þessum efnum í sérstökum tilfellum t.d. vegna sjúkleika. Í frjálsu þjóðfélagi gildir samt sú meginregla að einstaklingurinn ráði eigin líkama og dvalarstað.

Einstaklingurinn ræður skv. grunnreglum um frelsi, hvort hann tekur ásættanlega áhættu eða ekki. 

Þegar íbúum Grindavíkur var gert að fara og yfirgefa hús sín og heimili töldu sumir sérfræðingar, að hætta gæti verið á eldgosi undir bænum. Sú hætta er ekki lengur fyrir hendi og einn virtasti sérfræðingur okkar í þeim málum Haldur Sigurðsson eldfjallafræðingur hefur skrifað fróðlega pistla um það efni.

Engin frýr Haraldi vits í þessu efni og ekki er hann grunaður um græsku. Þá telja sérfræðingar Veðurstofunar nú, að hverfandi ef nokkrar líkur væru á eldgosi í Grindavík. Þrátt fyrir þetta halda yfirvöld uppteknum hætti og meina þeim íbúum Grindavíkur sem þess óska að vera heima hjá sér. 

Í tilviki sem þessu má spyrja. Eru líkur á að yfirvöld hefðu fyrirskipað rýmingu Grindavíkur ef ástandið hefði verið eins og það er í dag og ráðgjöf sérfræðinga sú sem hún er í dag. Augljóslega hefði það ekki verið gert. 

Nú er íbúa Grindavíkur sem nýtir sér þau mannréttindi að ráða sínum dvalarstað gert að viðlagðri refsingu að yfirgefa heimili sitt með illu ef ekki vill betur. Ekki e spurt um það hvort um ásættanlega áhættu sé að ræða, sem öllum einstaklingum er heimilt að taka ef svo ber undir. Nei valdstjórnin skal koma sínu fram með góðu eða illu. 

Þetta dæmi sýnir hve hættulegt það er, að játa yfirvöldum rétt til að svipta fólk eðlilegu athafnafrelsi. Það sýndi sig oft og iðulega í Kóvíd faraldrinum og nú í Grindavík, þar sem yfirvöld almannavarna fara offari. 

Mikið fjölmenni kemur að starfi almannavarna, en það vantar sárlega einn starfsmann. Starfsmann sem sinnir hagsmunagæslu fyrir einstaklinga á grundvelli almennrar skynsemi og stjórnarskrárvarinna réttinda borgaranna. 

Eins og nú háttar til eru yfirvöld að taka sér vald umfram meðalhóf með því að meina Grindvíkingum að búa í bænum sínum. Nauðsynleg er að þeim hömlum verði aflétt og skorað á dómsmálaráðherra að beita sér fyrir málstað frelsisins gegn einhliða ónauðsynlegu valdboði yfirvalda sem undir hana heyra.


mbl.is Ætlaði að gista í Grindavík en var hótað handtöku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Ef fólk vill taka þá áhættu að gista "heima hjá sér" þá það. Hvað kemur mér það við. Það veit um áhættuna. 

Sigurður I B Guðmundsson, 18.12.2023 kl. 09:57

2 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Manstu eftir bræðrunum tveim sem neituðu að yfirgefa bújörð sína þegar Eyjafjallajökull gaus.

Guðjón E. Hreinberg, 18.12.2023 kl. 14:20

3 Smámynd: Jón Magnússon

Einmitt Sigurður svo fremi fólk valdi ekki almannahættu eða erfiðleikum fyrir áðra þá ætti það að fá að taka áhættu af sjálfu sér.

Jón Magnússon, 18.12.2023 kl. 20:30

4 Smámynd: Jón Magnússon

Nei Guðjón ég man ekki eftir þeim bræðrum. 

Jón Magnússon, 18.12.2023 kl. 20:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 13
  • Sl. sólarhring: 490
  • Sl. viku: 4060
  • Frá upphafi: 2426904

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 3770
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband