Leita í fréttum mbl.is

Hverjum hefur hann hjálpað?

Rithöfundurinn Bragi Páll Sigurðsson hefur átt annríkt undanfarið með vinum sínum hælisleitendum frá  Palestínu. Áður dundaði hann sér við að ráðast á Bjarna Benediktsson formann Sjálfstæðisflokksins. Nú ræðst hann á Ásgerði Jónu Flosadóttur formann Fjölskylduhjálpar Íslands og segir hana vera rasista, en að vísu heiðarlegan. 

Munurinn á Braga Páli og Ásgerði Jónu felst ekki síst í því að Bragi Páll hefur verið styrkþegi úr opinberum sjóðum á meðan Ásgerður Jóna hefur varið lífi sínu í að hjálpa fátæku fólki, styrkja það og styðja.

En hverjum skyldi Bragi Páll hafa hjálpað ef frá er tekin þráhyggja hans við að skipta um þjóð í landinu og planta inn Palestínuaröbum?

Ástæða þess að rithöfundurinn ræðst með þessum hætti að Ásgerði Jónu er sú, að vinir hans úr hópi Palestínu araba hafa ítrekað látið dólgslega við úthlutun Fjölskylduhjálparinnar. Þessvegna varð að taka upp breytt skipulag við úthlutun. Það var ekkert sem Fjölskylduhjálpin vildi eða óskaði eftir. En annað var ekki hægt vegna yfirgangs, ofbeldis og frekju vina rithöfundarins úr ofangreindum hópi. Rasisminn er því allur hjá þeim þar sem þeir telja að sérreglur eigi að gilda um sig. 

Það situr því síst á rithöfundinum að vera með brigslyrði í garð Ágerðar Jónu, sem hefur svo sannarlea unnið fyrir því að verða sæmd æðsta heiðursmerki íslensku þjóðarinnar og því fólki sem aðstoðar hana og leggur mikinn tíma að mörkum til að hægt sé að aðstoða sem flesta án tillits til ættar eða uppruna, litarháttar eða trúar. Að kalla slíkt fólk rasista er argasta öfugmæli og fordæmanleg lygi.  

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Nú, er þetta rith0fundur?  Ég hélt þetta væri bara einhver dópisti sem þeir hefðu fundið í runna og ákveðið að pumpa eftir skoðunum.

Ásgrímur Hartmannsson, 19.7.2024 kl. 20:26

2 Smámynd: Grímur Kjartansson

Það eru kostir og gallar við menn einsog Braga Páll Sigurðsson.
Þegar mest var fjallað um uppreisn æru á Íslandi þá ofbauð mér svo málflutningur Braga Páls Sigurðssonar og hans meðreiðarsveina að ég hugsað með mér að þessu fólki vil ég staðsetja mig sem fjærst frá og skráði mig í Sjálfstæðisflokkinn.

Grímur Kjartansson, 20.7.2024 kl. 14:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Sept. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.9.): 6
  • Sl. sólarhring: 264
  • Sl. viku: 5875
  • Frá upphafi: 2367235

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 5507
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband