Leita í fréttum mbl.is

Gilda lögmál samkeppninnar ekki fyrir Samkeppniseftirlitið?

Í 1.gr. samkeppnislaga nr. 44/2005 segir að lögin hafi það að markmiði að efla virka samkeppni í viðskiptum og þar með vinna að hagkvæmri nýtingu framleiðsluþátta þjóðfélagsins.

Samkeppniseftirlitið hefur yfirumsjón og eftirlit með að markmiði samkeppnislaga verði náð og samkeppni verði sem virkust til þess að allir framleiðendur sitji við sama borð og neytendur fái góða og ódýra þjónustu. 

Þá er spurning hvað með Samkeppniseftirlitið sjálft. Ber því ekki í starfsemi sinni að viðhafa virka samkeppni?

Í nýjasta tbl. Viðskiptablaðsins kemur fram, að lögfræðiskristofan Lagastoð hafi séð um mál fyrir Samkeppniseftirlitið s.l. ár og frá og með árinu 2022 hafi lögmannsstofan fengið greitt um 120 milljónir þar af 39 milljónir á tímabilinu janúar til maí á þessu ári eða sem svarar kr. 7.8 milljónir á mánuði. 

Ekki verður séð, að Samkeppniseftirlitið hafi leitað eftir tilboðum eða gefið lögmönnum almennt kost á því að bjóða í þessa þjónustu. Samkeppniseftirlitið sjálft sér ekki ástæðu til að fara að í samræmi við grundvöll þeirra laga sem það hefur umsjón með og tilvera eftirlitsins byggir á. 

Hver á nú að gæta þess að Samkeppniseftirlitið fari að Samkeppnislögum?

Eða eins og Rómverjar sögðu til forna. Quo custodiet ipsos custodes (Hver gætir sjálfra varðanna)

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Svörin blasa við.

1. Stofna fleiri samkeppniseftirlit til að stuðla að aukinni samkeppni í samkeppniseftirliti.

2. Stofna Samkeppniseftirlitseftirlit til að hafa eftirlit með öllum hinum samkeppniseftirlitunum.

3. Halda samkeppni um besta samkeppniseftirlitið og verði enginn sigurvegari að stofna þá samráðsvettvang um aukna samkeppni í eftirliti.

/grín

Guðmundur Ásgeirsson, 10.9.2024 kl. 01:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Sept. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.9.): 790
  • Sl. sólarhring: 1223
  • Sl. viku: 3939
  • Frá upphafi: 2373767

Annað

  • Innlit í dag: 730
  • Innlit sl. viku: 3640
  • Gestir í dag: 700
  • IP-tölur í dag: 662

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband