Leita í fréttum mbl.is

Sænskar gæðavörur og glæpahópar.

Dómsmálaráðherra upplýsir að sænskir sendi glæpahópa til Íslands. E.t.v. kemur það ráðamönnum Íslands loksins í skilning um hvursu nauðsynlegt það er að við segjum okkur úr Schengen.  

Sú var tíðin, að sænskur útflutningur var rómaður. Talað var um sænskar gæðavörur og sú staðreynd að varan var sænsk voru óræk meðmæli. Þá var Volvo aðalbifreiðin, fasteign á hjólum og melka skyrturnar afbragði annarra.

Svo rammt hvað að innflutningi frá Svíþjóð bæði á vörum, verklagi og hugmyndum að talað var um, að það væri sama hvað vitlaust það væri, allt væri flutt inn frá Svíþjóð.  

Nú hefur brugðið til hins verra. Svíar hafa haft opin landamæri í mörg ár og afleiðingarnar: Skotbardagar í borgum eru daglegt brauð. Kveikt er í bílum og lögreglan fer ekki inn í ákveðin hverfi nema þungvopnuð. 

Nú flytja Svíar helst glæpahópa til Íslands og Danmerkur og Danir hafa brugðist ókvæða við en ekki við þá fyrr en nú. 

Svíar hafa verið að herða hælisleitendalöggjöf sína á meðan við erum skrefinu á eftir. Þau sár sem það mun valda okkur í nútíð en sérstaklega framtíð munu koma meir og meir í ljós og er þó nóg komið.  Það þarf því ekki að flytja inn sænska glæpaflokka. Við erum stöðugt að eignast fleiri vegna andvaraleysis og fábjánaháttar íslenskra stjórnvalda í málum hælisleitenda. 

Sem betur fer eigum við vaskan yfirmann lögreglunnar á Suðurnesjum sem bjargar því sem bjargað verður. En meira þarf til, ef við eigum ekki að verða verri en Svíþjóð.  


mbl.is Meiri tengsl við erlenda glæpahópa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Ef Svíar hefðu vit á að hætta að borga landeyðum fyrir að bía hjá þeim, þá myndi þetta mál allt leysast af sjálfu sér, og friðsamlega.

En þeir halda fast í að fjármagna þetta.

Í framtíðinni munum við gera það líka.

Ásgrímur Hartmannsson, 22.9.2024 kl. 18:00

2 identicon

Að minu mati er Schengen ekki vandamálið; fjarri því. Það eru íslensk stjórnvöld. Hægt væri að fara mörgum orðum hann, en þetta er staðan.

EINAR S HÁLFDÁNARSON (IP-tala skráð) 22.9.2024 kl. 22:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (12.1.): 461
  • Sl. sólarhring: 1090
  • Sl. viku: 5834
  • Frá upphafi: 2460451

Annað

  • Innlit í dag: 432
  • Innlit sl. viku: 5334
  • Gestir í dag: 419
  • IP-tölur í dag: 409

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband