Leita í fréttum mbl.is

Hvert stefnir?

Mikil og óvænt tíðindi, að Sigríður Andersen botnfrosið vesturbæjaríhald skuli segja skilið við Sjálfstæðisflokkinn og ganga til liðs við Miðflokkinn.

Í síðasta prófkjöri leið Sigríður fyrir að vera helsti málsvari frelsisins innan Sjálfstæðisflokksins í Kóvíd fárinu. Áður hafði hún verið neydd til að segja sig frá embætti dómsmálaráðherra fyrir engar sakir. Nauðsyn bar þá til, að flokksforustan gætti pólitískra  hagsmuna Sigríðar, en hún gerði það ekki og uppskeran er samkvæmt því. 

Annað sem mátti eiga von á miðað við stöðu og styrk Flokkseigendafélagsins voru þau dapurlegu úrslit, að Jón Gunnarsson skyldi lúta í lægra haldi fyrir varaformanninum, sem þurfti að færa sig um set úr sínu kjördæmi í annað til að eiga kost á endurkjöri.

Sérkennilegt að formaðurinn skyldi vera tilbúinn til að fórna einum af sínum traustasta stuðningsmanni í stað þess að leysa hnútinn með því að taka sjálfur áhættu með því að færa sig í 5 sætið á listanum. En það gerði hann ekki og því fór sem fór. 

Gleðifregnin var sú, að Ólafur Adolfsson sem er dæmigerður Sjálfstæðismaður af gamla skólanum atvinnurekandi, "self made man" sem aldrei var mulið undir, skuli hafa náð forustusætinu í Norðvestur kjördæmi. Það er virkilega ljósið í myrkri dagsins.

Eftir úrslit dagsins missa þeir Ásmundur Friðriksson, Birgir Þórarinsson og Jón Gunnarsson þingsæti sín. Allir ötulir talsmenn skynsemi í hælisleitendamálum og öðrum málum. Jón Gunnarsson sýndi það heldur betur á ráðherraárum sínum sem dómsmálaráðherra, en flokkseigendafélagið þakkar honum það ekki.

Eftir þessa uppstillingu er Sjálfstæðisflokkurinn í töluverðum vanda og sá vandi gæti aukist, þegar framboðslistar í Reykjavík birtast. Það ríður á að kjörnefnd tali ekki bara við bergmálshellinn sinn heldur skoði hvað hægra fólki finnst skipta mestu máli í dag og taki tillit til þess. 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Karl Þorleifsson

Er ekki bara tími fyrir raunverulegt sjálfstæðisfólk að VAKNA!  Af hverju er þessi flótti.  Veit ekki betur en að meirihluti ÍÞ hafi verið í Sjálfstæðisflokknum eða eru með þjóðernishugsjón fyrir landi og þjóð að leiðarljósi.  Pólitíkusar hafa gleymt þjóðinni, en eru uppfullir að mikilmennsku og tækifæris hugsjónum sem geta  ekki og eiga ekki að vera leiðaljós þeirra er ganga í farabroddi fyrir þessarri ungu þjóð.   Hér þarf að taka til hendinni heima fyrir en ekki vera með útþanin brjóst sem ekkert innihald er fyrir á alþjóðavísu.   Ef þjóðin á að vera sterk þarf hún að byggja upp innviði svo að við missum ekki tiltrú yngri kynslóðarinnar og að kærleiksvitund og virðing gagnvart eigin þjóð heyri sögunni til.   Þetta hlutskipti fjórflokksins sem kemur til með að verða í komandi kosningum, ætti að verða þeim þingmönnum víti til varnaðar, um að hroki og mikilmennska er ekki leiðarljós ungs lýðveldis.

Guðmundur Karl Þorleifsson, 21.10.2024 kl. 11:35

2 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Þannig fór það.

Sjálfstæðisflokkurinn fær aldrei meira en 14% fylgi úr þessu.  Allir flúnir yfr í Miðflokkinn.

Undarlegasta fólk á leið þangað, samt.

Þetta verður allt mjög áhugavert.  Veit ekki með gott, en áhugavert.

Ásgrímur Hartmannsson, 21.10.2024 kl. 18:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Feb. 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.2.): 49
  • Sl. sólarhring: 62
  • Sl. viku: 1526
  • Frá upphafi: 2488144

Annað

  • Innlit í dag: 43
  • Innlit sl. viku: 1398
  • Gestir í dag: 36
  • IP-tölur í dag: 35

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband