Leita í fréttum mbl.is

Flokkur valdboðs og viðurlaga

Margir biðu spenntir eftir að sjá hverjir mundu skipa oddvitasæti Samfylkingarinnar. Skipan oddvitasætanna gefur vísbendingu um hverja Kristrún Mjöll Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar telur æskilega í ríkisstjórn. 

Fram til þessa hefur Kristrún Mjöll siglt þokkalegan byr með því að segja sem minnst og sýna lítt sem ekkert á sín spil. 

En svo kom að lengur var ekki setið og þá kom nokkuð á óvart, að Kristrún skyldi skipa það fólk, sem hefur helst unnið sér það til frægðar að banna fólki að lifa eðlilegu lífi oft algjörlega af ástæðulausu. 

Ekki sá Kristrún formaður ástæðu til að sækjast eftir ötulu flokksfólki Samfylkingarinnar til að skipa oddvitasæti eða baráttufólki sem er virkt í pólitískri umræðu. Þess þurfti ekki með að mati formannsins og þessvegna var sótt fólk út í bæ, þau Alma Dagbjört Möller landlæknir og Guðmundur Víðir Reynisson.

Þau Alma og Víðir eru þekkt fyrir það að hafa staðið að því að takmarka frelsi fólks langt umfram eðlileg mörk og standa fyrir og leggja til aðgerðir sem iðulega voru ónauðsynlegar, en ollu mörgum miklum sársauka sbr. þegar tekið var algjörlega fyrir heimsóknir nákominna ættingja eða maka á sjúkrastofnanir. Auk þess að standa að ólöglegri nauðungarvistun fólks í stað þess að leyfa því að vera heima hjá sér. 

Allt var þetta á forsendum ákvarðanna starfsfólks Ölmu Dagbjartar landlæknis og e.t.v. hefði verið afsakanlegt að munstra hana um borð í sósíalískan valdboðsflokk hefði rekstur embættis landlæknis undir hennar stjórn gefið tilefni til, en svo er því miður ekki og fólk þarf að bíða árum saman eftur úrlausnum ef þær þá yfirleitt koma. 

Sá frjálslyndi jafnaðarmannaflokkur, sem Kristrún Mjöll Frostadóttir hefur talað fyrir varð ekki lengur til en í hans stað kom sósíalskur valdboðsflokkur. Valið á þeim Ölmu og Víði í oddvitasæti er ekki boðskapur um neitt annað. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jón, þú talar frekar sakleysislega um Ölmu og Víði. Þetta fólk vissi að það var verið að eitra fyrir okkur eða í það minnsta gat enginn mælt með þessum tilraunaefnum sem var þröngvað í landsmenn. Ég með enga þekkingu á heilbriðismálum komst að því að þessi efni væru stórhættuleg og vírusinn ekki hættulegur venjulegu fólki sem ekki er hægt að þræta fyrir í dag. Ég ætlast til þess að fólk sem vinnur við heilbriðismál viti hvað það er að gera.

Þú mátt heldur ekki gleyma að samf. er með sakborning í 2.sæti í Reykjvík.

Kristinn Bjarnason (IP-tala skráð) 9.11.2024 kl. 13:47

2 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Jón.

Þetta er léleg færsla hjá þér, í alvöru.

Líkt og Kristrún sé eitthvað, en stefna þíns flokks sé ekkert.

Jón, þetta er ekki leiðin til að vinna kosningar.

Það er eins og sterkasti penni hægri-fólks sé vængstýfður.

Hvað er þá eftir Jón???

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 9.11.2024 kl. 19:10

3 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Enn ræðir enginn, og er viðeigandi í ofangreindu samhengi, að sóttkví á sóttlausu fólki - réttnefnt smitkví - er ólögmætt varðhald og stjórnarskrárbrot, eða landráð, þjóðarglæpur. PCR algrím geta ekki greint smit, og smit án sótteinkenna er ekki til.

Bestu kveðjur.

Guðjón E. Hreinberg, 10.11.2024 kl. 00:30

4 Smámynd: Jón Magnússon

Kristinn ég held ekki að þau hafi vitað um huganlega skaðsemi. En það var óvarlega farið að þvinga þessum tilraunalyfjum upp á fólk. Hættan var ekki slík. En síðan hafa liðið nokkur ár og enn er fólk að láta dæla þessu í sig sjálfviljugt.

Jón Magnússon, 11.11.2024 kl. 08:04

5 Smámynd: Jón Magnússon

Kæri Ómar við vorum aldrei samstíga í Kóvíd málunum. Þú taldir nauðsynlegt að borgaraleg réttindi einstaklinganna yrðu takmörkuð, en ég vildi eingöngu binda slíkar takmarkanir við veikari hópa eins og fólk á sjúkrahúsum og öldrunarheimilum. Út frá fyrri afstöðu í þessum málum leyfi ég mér kæri Ómar að standa við skoðanir mínar í þessu og vísa til ábyrgðar þeirra sem bera ábyrgð umfram aðra á að steypa þjóðinni í gríðarlegar skuldir auk svo margs annars. 

Jón Magnússon, 11.11.2024 kl. 08:08

6 Smámynd: Jón Magnússon

Sammála Guðjón.

Jón Magnússon, 11.11.2024 kl. 08:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 18
  • Sl. sólarhring: 287
  • Sl. viku: 4957
  • Frá upphafi: 2425591

Annað

  • Innlit í dag: 14
  • Innlit sl. viku: 4568
  • Gestir í dag: 14
  • IP-tölur í dag: 13

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband