Leita í fréttum mbl.is

Baráttuandi og góð liðsheild

Stuttri en snarpri kosningabaráttu er að ljúka og kjörfundur hafinn. 

Samkvæmisleikjum fjölmiðla er lokið, en þeir ástunda þá af kappi við kosningar, en gera ekki mikið með þau málefni og hugsjónir ef einhverjar eru, sem barist er fyrir.

Kosningar í hinum vestræna heimi snúast um forystumanninn. Afstaða fólks til hans ræður gengi eða gengisleysi flokka. 

Ekki má gleyma fótgönguliðunum sem leggja sig alla fram og hafa oft mikil áhrif, einkum ef um bága stöðu flokks er að ræða. Flokkar með gott skipulag standa þar best að vígi. 

Sjálfstæðisflokkurinn býr yfir öflugustu kosningavélinni. Í þessum kosningum hefur verið gaman að fylgjast með þeim mikla baráttuanda,sem óbreyttir flokksmenn hafa sýnt og ekki látið bugast þó skoðanakannanir hafi verið mótdrægar. Mikill fjöldi ungs fólks hefur komið til starfa fyrir Sjálfstæðisflokkinn í þessari kosningabaráttu. Ekki bara unga fólkið heldur fólk á öllum aldri og öllum stéttum. 

Dugnaður unga sjálfstæðisfólksins þýðir það sem skáldið færði í ljóðrænt form:

"Ef æskan vill rétta þér örvandi hönd, þá ertu á framtíðarvegi."  

Öflug kosningavél Sjálfstæðisflokksins getur tryggt flokknum frá 2-4% fylgi umfram það sem flokkurinn fengi annars og þá mestu fylgisaukningu ef gengi hans er slæmt í upphafi kosningabaráttu.  

Þegar ég horfi upp á dugnað og eindrægni flokksfólksins við að vinna flokknum heilt og koma í veg fyrir að hann biði skipbrot, þá þykir mér líklegt að fylgi hans verði á milli 18-20% en ekki 12% eins og flestar skoðanakannanir höfðu spáð honum.

Það er afhroð og óásættanlegt fyrir Sjálfstæðisflokkinn, en betra en á horfðist.  Úr því verður að vinna og tryggja að sjálfstæðisstefnan ráði för hjá Sjálfstæðisflokknum. Verði svo þarf ekki að óttast fylgisleysi í framtíðinni.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Jón.

Ég ætla að spá ykkur 22%, byggi á viðsnúningnum sem er að fara frá Viðreisn yfir til ykkar.

Bjarni er búinn að standa sig vel þessa viku og ég trúi að það hjálpi fylginu að koma "heim".

Kannski smá óskhyggja í þessari trú en það verður þá bara að hafa það.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 30.11.2024 kl. 16:42

2 Smámynd: Jón Magnússon

Því miður gekk spáin þín ekki eftir og þar munar held ég fyrst og fremst um utankjörstaðaatkvæðin.  Sem þýðir að atkvæði greidd á kjördag hafa sennilega verið í samræmi við þína spá. 

Jón Magnússon, 1.12.2024 kl. 11:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.1.): 717
  • Sl. sólarhring: 930
  • Sl. viku: 3957
  • Frá upphafi: 2457391

Annað

  • Innlit í dag: 655
  • Innlit sl. viku: 3708
  • Gestir í dag: 627
  • IP-tölur í dag: 601

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband