Leita í fréttum mbl.is

Rauðhetta hin nýja

Mér skilst að í upphaflega ævintýrinu af Rauðhettu og úlfinum, hafi Rauðhetta látið glepjast af fagurgala úlfsins með þeim afleiðingum að hann át hana upp til agna. 

Spurningin er alltaf: Verður hið illa gott með því að yfirbuga aðra illsku?

Vestrænir stjórnmálamenn virðast illa haldnir af Rauðhettu heilkenninu eins og kemur nú í ljós hvað varðar Sýrland, en nú streyma að fulltrúar Evrópusambandsins og fleiri Evrópuríkja til að bjóða fram peninga og aðra aðstoð.

Hinn nýi foringi í Sýrlandi sem kallar sig Al-Jolani er í Al Kaída og hefur sagst vera stoltur Íslamisti. Frá 18 ára aldri hefur hann drepið fólk í nafni Íslam. En núna hefur hann látið snyrta hár sitt og skegg og klætt sig úr fötum Íslamskra vígamanna og farið í hefðbundinn einkennisbúning hermanna að hætti Fidel Castro og Zelensky. 

Er það trúverðugt að þessi maður hafi allt í einu umbreyst í umburðarlyndan stjórnmálamann?

Vissulega getur fólk breyst og þroskast. En það er engin ástæða til að hlaupa til áður en nýir stjórnendur sýna á spilin. Vesturlönd ættu að læra af reynslunni, en fjárstuðningur þeirra til múslímska bræðralagsins eftir að það tók yfir í Egyptalandi var óafsakanlegur og leiddi m.a. til ofsókna gegn kristnu fólki.

Er ekki ástæða til að vestrænir stjórnmálaleiðtogar læri af reynslunni og láti ekki teyma sig á asnaeyrunum. Eða vera eins auðtrúa og Rauðhetta var.

Með sama áframhaldi lendum við líka í gini úlfsins

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Líkist einna helst og best atvinnurekanda lýð sínum Theodor Herzl heitnum.

Herra G(J)ólan(i)(hæðir) veit ekkert um hvernig á að sameina þjóð á meðan Ísrael lætur draum sinn rætast að tengja þær tvær bláu línur í þjóðfána sínum, Efrat og Níl.

L (IP-tala skráð) 21.12.2024 kl. 01:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.4.): 457
  • Sl. sólarhring: 516
  • Sl. viku: 3484
  • Frá upphafi: 2512370

Annað

  • Innlit í dag: 427
  • Innlit sl. viku: 3252
  • Gestir í dag: 422
  • IP-tölur í dag: 408

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband