Leita í fréttum mbl.is

Við styðjum Dani

Donald Trump hefur ítrekað talað um að Danir selji Bandaríkjunum Grænland. Fyrst töldu allir að þetta væri grín, en svo er ekki. 

Trump talaði við Mette Frederiksen forsætisráðherra Dana í síma fyrir nokkru og því fór fjarri að það væri vinsamlegt símtal og Trump sat við sinn keip. 

Danir leita eftir samstöðu og stuðningi Norðurlanda í þessu máli. Forsætisráðherrar Svía, Noregs og forseti Finnlands sóttu óformlegan kvöldverð Mette í gær. Forsætisráðherra Íslands var ekki viðstödd og eðlilegt að spurt sé  hverju sætir. 

Hvað sem því líður þá breytir það engu um, að við eigum þegar í stað að taka afgerandi afstöðu með Dönum gegn þessum tuddaskap. Sá tími verður að vera liðinn, að stórveldin fari sínu fram gagnvart smáþjóðum. 

Norðurlöndin eiga þegar í stað að lýsa yfir órofa stuðningi og samstöðu með Dönum í þessu máli. Á sama tíma er æskilegt að tryggja samvinnu Bandaríkjanna, Dana og annarra Norðurlandaþjóða um varnir, öryggi og velferð Grænlands. 

Við eigum Dönum skuld að gjalda hvað svo sem ritað hefur verið um samskipti þjóðanna meðan Danir fóru með stjórn Íslands m.a. sjálfstæði og fullveldi íslensku þjóðarinnar. Við höfum því margar ríkar ástæður umfram réttlætið til að standa með Dönum. 


mbl.is Danir í kröppum dansi: Trump ekkert að grínast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Jón.

Pútín fór langt með að snúa klukkunni aftur á bak um tæpa öld eða svo.

Nú virðist Trump ætla að geirnegla þetta afturhvarf til þeirra tíma þegar sá sterki tók það sem hann taldi sig geta. Sem var svo sem án ófriðar þar til ekkert smátt var til að taka eða kúga, og stór stóð á móti stórum.

Þá kom til stríðs.

Það sorglega er Jón að það er fullt af fólki til hægri á Íslandi, sem og vitleysingahjörð anarkismans, sem finnst þessi kúgun hins sterka á hinum veika vera í góðu lagi.

Á Moggablogginu er fyrsti stafurinn P., svo koma margir smærri stafir minni spámanna á eftir.

Eins og lærdómur sögunnar sé enginn.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 27.1.2025 kl. 15:42

2 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Mér skilst að Bretar hafi forkaupsrétt á Grænlandi, síðan 1817.  Það gæti sett strik í reikninginn.

Svo besta leiðin fyrir Trump & co væri að gera Grænland sjálfstætt fyrst, og fara svo að díla við það.

Sem yrði vissulega miklu einfaldara, Danir virka á mig sem óþarfa milliliður.

Sjáum hvernig fer.

Ásgrímur Hartmannsson, 27.1.2025 kl. 17:58

Bæta við athugasemd

Hver er summan af tveimur og einum?
Nota HTML-ham

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.1.): 2
  • Sl. sólarhring: 863
  • Sl. viku: 5856
  • Frá upphafi: 2474155

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 5340
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband