Leita í fréttum mbl.is

Hinir vammlausu

Svo virðist sem hið "dyggðuga" íslenska "kristna" samfélag hafi gleymt megin inntaki kristinnar trúar um fyrirgefningu. Meira að segja prestar fara hamförum og telja að bannfæra beri  "bersyndugu" konuna, nú fyrrverandi ráðherra.

Hvílíkt og annað eins. 

Má e.t.v. benda hinu "dyggðuga" "kristna" íslenska samfélagi á það sem Jesús sagði um og við bersyndugu konuna í húsi Faríseans (Lúkas 7.kap.36-50) "Hinar mörgu syndir hennar eru fyrirgefnar". Eða þegar bersynduga konan var leidd fram og Jesús spurður hvort ekki væri rétt að grýta hana til bana.

"Sá yðar sem syndlaus er kasti fyrstur steini í hana", sagði Jesús Þá gengu allir burtu. Jesús spurði konuna áfelldist engin þig. Nei sagði hún. Ég áfellist þig ekki heldur sagði Jesús syndga ekki framar.

Hvenær snéri hið "dyggðuga" "syndlausa" "fróma" íslenska samfélag svona algerlega baki við kristnum kærleiksboðskap um fyrirgefninguna?

Við sem erum kristið fólk skulum ekki gera það.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Jón.

Ég met mikils þessi skrif þín, guð hjálpi mér og varðveiti hvað ég hef höggið að ákveðnum flokki. Að mínum dómi að gefnu tilefni, svikin um sjálfstæði þjóðar okkar gat ég ekki fyrirgefið.

En þegar syndlausir vega, að mínum dómi alvarlegt æxli, þjóðarmein, þá snýst ég til varnar grunngildum mínum, um mennsku og trú.

Þar er ég kannski ekki allra Jón, en ég trúi, því ég veit, svo veit ég eiginlega þannig séð ekkert annað.

Þú sýndir styrk þinn Jón.

Eins og svo oft áður, þá vísa ég ekki aðeins í rökföst, skynsöm skrif, heldur í lífsaðstöðu.

Sem ég ber mikla virðingu fyrir.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 21.3.2025 kl. 16:53

2 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Athuga ber líka, að það er ekkert sniðugt, eða dyggðugt, að leyfa einhverjum siðblindum pedó að vera ráðherra eða þingmaður í landi sem þykist vera kristið.

Hefðum við kannski leyft Steingrími Njálssyni að vera barnámálaráðherra, eða bara hreinlega einhver völd?

Eina dyggðin er að reka hana alveg, með skömm.

Grjótkast verða menn að stunda á eigin ábyrgð.

Yfirvöldum á ekkert að leyfast að vera hið versta fólk.

Ásgrímur Hartmannsson, 22.3.2025 kl. 17:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 521
  • Sl. viku: 3502
  • Frá upphafi: 2513306

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 3278
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband