Leita í fréttum mbl.is

Handbolti og samkynhneigð

Ríkislögreglustjóri hefur mælst til þess að landsleikir Íslands og Ísrael verði háðir fyrir luktum dyrum vegna óútskýrðrar hættu sem væri fyrir hendi ef leikurinn yrði spilaður með fullu húsi af áhorfendum.  Ekki fæst uppgefið hvað er um að ræða, en forusta handknattleiksssambandsins samþykkti þetta eftir að hafa fengið skýringar frá greiningardeild Ríkislögreglustjóra. 

Íslendingar eru ekki þekktir fyrir að láta ófriðlega á landsleikjum. Þarf þá að grípa til ráðstafana vegna ofstopaliðs, sem hingað hefur flust eða verið flutt síðustu misseri? Ríkislögreglustjóri verður að upplýsa það. 

Á sama tíma og loka verður fyrir aðgengi almennings að kappleik, segja fulltrúar samkynhneigðra að þeir verði varir við aukna fordóma í sinn garð, en segja ekki hvað um er að ræða. Getur verið að sama liðið sýni þessa fordóma og þeir sem valda því að nauðsynlegt reynist að loka fyrir áhorf á landsleik. Hvarvetna í Evrópu þar sem fulltrúar Íslamskra fordóma hafa flutt eykst andúð og ofsóknir gegn samkynhneigðum í réttu hlutfalli. 

Hvað svo sem veldur á almenningur rétt á að fá fullnægjandi upplýsingar um hvað er að gerast. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Öfga minnihlutinn stjórnar öllu.

Sigurður I B Guðmundsson, 7.4.2025 kl. 10:29

2 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Einu sinni horfði ég á fótboltaleik með "samkynhneigðum" kunningja mínum. Ég hafði gaman af leiknum, en tilgaangslaust var að ræða það við kunningjann, því hann sá bara Beckham.

Guðjón E. Hreinberg, 7.4.2025 kl. 16:43

3 Smámynd: Eggert Guðmundsson

Það er grafalvarlegt að öfgafullir þrýstihópar nái að hræða lögreglu sem kemur með ráðleggingar til HSÍ um að leyfa ekki áhorfendur á landleiki Íslands gegn Ísrel.

Nær hefði verið að lögreglan mætti á leikinn og héldi reglu á því liði sem þeir eru að vara við.

Annað er uppgjöf.

Eggert Guðmundsson, 7.4.2025 kl. 17:36

4 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Eru þeir að ýja að því að handboltaleikurinn gæti breyzt í gay orgíu?

Ég skil ekki.

Ásgrímur Hartmannsson, 7.4.2025 kl. 18:06

5 Smámynd: Grímur Kjartansson

Er þetta ekki ástæðan

Grímur Kjartansson, 7.4.2025 kl. 18:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 197
  • Sl. sólarhring: 361
  • Sl. viku: 2740
  • Frá upphafi: 2517840

Annað

  • Innlit í dag: 192
  • Innlit sl. viku: 2541
  • Gestir í dag: 192
  • IP-tölur í dag: 191

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband