Leita í fréttum mbl.is

Berufsverbot

Starfsbann (Berufsverbot) hét það hjá þýsku nasistunum þegar pólitískir andstæðingar voru reknir úr störfum sínum og fengu ekki að vinna vegna skoðana sinna. Nú hefur dómsmálaráðherra vikið vaskasta lögreglustjóra landsins Úlfari Lúðvíkssyni úr embætti vegna skoðana sinna og framgöngu við að stemma stigu við komu hælisleitenda til landsins þó annað sé látið í veðri vaka.

Um þetta skrifar Hjörtur J Guðmundsson athyglisverðan pistil, sem ég leyfi mér að endurrita hér: 

"Fyrirvaralaust var Úlfar Lúðvíksson, fyrrverandi lögreglustjóri á Suðurnesjum, boðaður á fund Þorbjargar S. Gunnlaugsdóttur, dómsmálaráðherra og þingmanns Viðreisnar, í fyrradag þar sem honum var tilkynnt að ráðningarsamningur við hann yrði ekki endurnýjaður þegar hann rynni út í haust og að embættið yrði auglýst til umsóknar. Úlfari var ekki greint frá því fyrir fundinn hvert tilefni hans væri. Haft var eftir ráðherranum í fjölmiðlum að ákvörðunin hefði verið pólitísks eðlis.

„Fyrirhugaðar eru töluverðar breytingar á embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum sem eru í samræmi við áherslur nýrrar ríkisstjórnar um verulega aukinn þunga í landamærapólitík. Það liggur fyrir að ég mun leggja fram frumvarp í haust um brottfararstöð. Það eru sömuleiðis fyrirhugaðar breytingar um það að flytja komustöð svokallaða til Suðurnesja. Samhliða því að það er verið að skoða alvarlega að flytja ákveðin verkefni frá Ríkislögreglustjóra til lögreglustjórans.“

Með þessum hætti rökstuddi Þorbjörg ákvörðun sína um að segja Úlfari upp störfum í samtali við Vísi í gær sem er áhugavert í ljósi þess að hann hefur sjálfur ítrekað kallað eftir því í fjölmiðlum að stjórnvöld tækju landamæraeftirlitið fastari tökum og bent á brotalamir í þeim efnum.

Bæði í tíð núverandi og síðustu ríkisstjórnar. Þá hefur ítrekað verið fjallað í fjölmiðlum um aukinn árangur lögreglunnar á Suðurnesjum til að mynda varðandi brottvísun erlendra afbrotamanna. Fyrir vikið hefði mátt ætla að áframhaldandi störf Úlfars féllu einkar vel að áðurnefndum áherzlum dómsmálaráðherra og þær þar af leiðandi miklu fremur rök fyrir því að endurnýja ráðningarsamning hans frekar en að segja honum upp.

Hins vegar hefur Úlfar einnig bent á ýmsar brotalamir varðandu aðild Íslands að Schengen-svæðinu. Sú gagnrýni fellur vitanlega illa að stefnu Viðreisnar um að gengið verði í Evrópusambandið en eins og ráðherrann sagði var ákvörðunin pólitísk.

Fyrir skömmu ritaði Guðni Ágústsson, fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins, grein í Morgunblaðið þar sem hann gagnrýndi aðildina að Schengen-svæðinu og vitnaði í nýleg ummæli Úlfars í Dagmálum um stöðu mála á landamærunum að öðrum ríkjum þess. Meðal annars hafði Guðni eftir honum að stjórnvöld yrðu að vakna í þessum efnum.

„Viðtalið við lögreglustjórann er nánast samfellt neyðaróp. Ákall til stjórnmálamanna um að grípa í taumana,“ sagði hann enn fremur. „Ég skora á dómsmálaráðherra að skoða þá fullyrðingu Úlfars Lúðvíkssonar lögreglustjóra að herða verði löggjöfina á landamærum,“ sagði Guðni áfram.

Þorbjörg svaraði á síðum Morgunblaðsins og sagði áhyggjur Guðna ástæðulausar. Taldi hún síðan upp mál sem hún væri með í gangi en áttu það flest sameiginlegt að hafa átt upphaf sitt í tíð forvera hennar. Til að mynda brottfararstöð og hælissvipting vegna alvarlegra afbrota. Réttum tveimur vikum síðar rak hún Úlfar."

Ljóst er að skoðanir Úlfars og dugnaður við að hafa stjórn á landamærunum féllu ekki að skoðunum dómsmálaráðherra og stefnu ríkisstjórnarinnar. Þess vegna varð Úlfar að víkja vegna skoðana sinna og það þrátt fyrir að hafa staðið sig frábærlega vel í starfi. Svona stjórnsýsla eins og dómsmálaráðherra sýnir er fordæmanleg. 

Ef til vill er það rétt sem hvíslað er um lögregluna á höfuðborgarsvæðinu, að brotaþolar,sem verða fyrir ofbeldi m.a. af hálfu erlendra leigubifreiðastjóra fái mál sín ekki tekin fyrir af lögreglu. Er það hin nýja stefna sem dómsmálaráðherra vill leggja blessun sína yfir? Já og þeir sem eru  ósammála og vilja vernda borgarana verði að víkja?


« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Hver er summan af tveimur og sjö?
Nota HTML-ham

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.5.): 653
  • Sl. sólarhring: 902
  • Sl. viku: 3821
  • Frá upphafi: 2527264

Annað

  • Innlit í dag: 601
  • Innlit sl. viku: 3510
  • Gestir í dag: 584
  • IP-tölur í dag: 555

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband