Leita í fréttum mbl.is

Að segja sannleikann

Jesús sagði við Pontíus Pílatus, að hann væri í heiminn borinn til að bera sannleikanum vitni. Pílatus spurði: Hvað er þá sannleikur og dæmdi Jesú til dauða með krossfestingu. 

Svo mjög hefur mannkynið þróast í 2000 ár, að hvorki krossfestingar né dauðarefsingar eru tíðkaðar í okkar heimshluta,þess í stað eru menn reknir úr vinnunni,settir í fangelsi eða lokað á bankaviðskipti þeirra fyrir að bera sannleikanum vitni. 

Úlfar Lúðvíksson var rekinn úr starfi lögreglustjóra Suðurnesja fyrir að vera röggsamt yfirvald og bera sannleikanum vitni. 

Ríkissaksóknari losaði sig við Helga Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknara fyrir að segja sannleikann um ástandið í hælisleitendamálum. Þrátt fyrir að dómsmálaráðherra ógilti ákvörðunina fór Ríkissaksóknari sínu fram og komst upp með það án áminningar og brottreksturs. Sumir eru heilagri en aðrir.

Opinberir starfsmenn sem bera sannleikanum vitni þurfa að gæta að sér og velja þögnina til að halda starfi sínu eða standa með sannfæringu sinni og hagsmunum þjóðarinnar og þola brottrekstur að launum svo mjög hefur nú mannkyninu fleytt fram í 2000 ár.  


« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Ágúst Hraundal

Það er ömurlegt að vera vitni af því ofbeldi sem þrífst innan okkar „fína“ stjórnkerfis. Sama hver stígur fram eða bendir á vandann, þá virðist kerfið standa óhaggað, þar ríkir skaðræðis þöggun, krydduð með dass af spillingu.

Ólafur Ágúst Hraundal, 29.5.2025 kl. 13:30

2 Smámynd: Guðmundur Örn Ragnarsson

Helgi Magnús Gunnarsson og Úlfar Lúðvíksson hafa sannarlega báðir verið krossfestir fyrir að segja sannleikann, en þá meðferð hafa margir hlotið, sem eru sannleikans megin og heyra RÖDD sannleikans.

Jesús sagði: Hví skiljið þér ekki mál mitt? Af því að þér getið ekki hlustað á Orð mitt. Þér eigið Djöfulinn að föður og viljið gjöra það, sem faðir yðar girnist. Hann var manndrápari frá upphafi og aldrei í sannleikanum, því í honum finnst enginn sannleikur. Þegar hann lýgur fer hann að eðli sínu, því hann er lygari og lyginnar faðir. En af því að ég segi sannleikann, trúið þér mér ekki. (Jóh. 8:43-45).

PASSÍUSÁLMUR NR. 51

Á Valhúsahæðinni

er verið að krossfesta mann.

Og fólkið kaupir sér far

með strætisvagninum

til þess að horfa á hann.

Það er sólskin og hiti,

og sjórinn er sléttur og blár.

Þetta er laglegur maður

með mikið enni

og mógult hár.

Og stúlka með sægræn augu

segir við mig:

Skyldi manninum ekki leiðast

að láta krossfesta sig?

Höf. Steinn Steinarr

Guðmundur Örn Ragnarsson, 29.5.2025 kl. 14:15

3 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Svar Jésú við spurningu Pílatusar er magnað:

Jesús kom nú fyrir landshöfðingjann. Landshöfðinginn spurði hann: „Ert þú konungur Gyðinga?“ Jesús svaraði: „Það eru þín orð.“ 

Wilhelm Emilsson, 29.5.2025 kl. 21:47

Bæta við athugasemd

Hver er summan af þremur og átta?
Nota HTML-ham

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.5.): 78
  • Sl. sólarhring: 750
  • Sl. viku: 3116
  • Frá upphafi: 2537725

Annað

  • Innlit í dag: 74
  • Innlit sl. viku: 2891
  • Gestir í dag: 73
  • IP-tölur í dag: 72

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband