Leita í fréttum mbl.is

Hverjir eru fasistarnir?

Ég var fyrir mistök auglýstur sem ræðumaður á útifundi sem byrjar kl. 14 í dag á Austurvelli. Þó ég styðji málefnið, þá gat ég ekki verið ræðumaður. Maður kemur í manns stað og sem betur fer kom úrvals ræðumaður í minn stað.

Fyrirfram efast ég um að fundurinn sýni þann mikla stuðning sem er við málefnið. Okkar fólk er ekki duglegt við að fara á útifundi og hvað þá þegar er úrvalsveður í byrjun sumars.

Þar sem ég var auglýstur sem ræðumaður á fundinum, varð ég fyrir því að nokkur hópur fólks sá sig tilknúinn til að senda mér hatursummæli og sumir með hótun um að berja mig og annað verra ef ég leyfði mér að tala fyrir skoðunum mínum. 

Hverjir eru það sem vilja koma í veg fyrir lýðræðislega umræðu? Það er fólkið sem annars sveipar um sig dyggðaflöggun mannkærleika og heimtar að við aukum enn útgjöldin til að taka við hælisleitendum, þó þau séu komin í 100 milljarða á ári skv. því sem Ragnar Árnason prófessor emeritus hefur reiknað út.

En mannkærleikinn nær ekki til þeirra sem eru annarrar skoðunar og lýðræðisvitundin er sambærileg og hjá fasistum og nasistum þar sem öllu skipti að koma í veg fyrir að raddir andstæðinganna fengju að heyrast.

Við þurfum því að berjast bæði málefnalega gegn þeirri ógn sem stafar frá þeim sem vilja skipta um þjóð í landinu og að Ísland glati sérstöðu sinni sem þjóðar, tungu og menningu. Enn við þurfum líka að vera viðbúin að þola frekari árásir frá þessu pakki sem hikar ekki við að beita ógnunum til að þagga niður í pólitískum andstæðingum sínum. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Þó svo að ég hafi ekki komist á útifundinn á Austurvelli þótti mér miður að þú skildir ekki hafa verið þar til að andmæla ráðaleysi stjórnmálamannanna. Það er með ólíkindum að stjórnvöld, fyrr og nú, skuli ekki hafa dug til að verja íslenska landhelgi og halda fólki sem hefur ekkert með íslenskt samfélag að gera fyrir utan landsteina okkar. Við vitum hvað þetta fólk berst fyrir og það hefur ekkert með íslenska þjóð að gera. Þetta ættu ráðamenn að vita og skilja.

Tómas Ibsen Halldórsson, 31.5.2025 kl. 17:47

2 Smámynd: Jón Magnússon

Þakka þér fyrir Tómas. 

Jón Magnússon, 1.6.2025 kl. 10:04

Bæta við athugasemd

Hver er summan af níu og fjórum?
Nota HTML-ham

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.6.): 1195
  • Sl. sólarhring: 1272
  • Sl. viku: 5524
  • Frá upphafi: 2540629

Annað

  • Innlit í dag: 1101
  • Innlit sl. viku: 5124
  • Gestir í dag: 1002
  • IP-tölur í dag: 964

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband