Leita í fréttum mbl.is

Ekki skal hrófla við erlendum glæpamönnum

Utanríkisráðherra þeysir um þjóðlönd og álfur til að samsama sig með öfgafyllstu vinstri leiðtogum álfurnar til að ala á fjandskap við Ísrael, og á sama að beita sér fyrir virkri hernaðarlegri aðstoð við Úkraínu. Kristrún Frostadóttir krefst að ríkisútgjöld verði aukin til muna til að standa straum að aukinni vígvæðingu Íslands. 

Því miður hafa þær Kristrún Frostadóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir breytt utanríkisstefnu þjóðarinnar án þess að nokkur umræða hafi farið fram á þingi eða annarsstaðar í þjóðfélaginu. Þær telja hentast að stjórna með með tilskipunum að hætti Donalds Trump. 

Í opnu bréfi sem hófsamari leiðtogar álfunar t.d. Mette Fredriksen forsætisráðherra Danmerkur og leiðtogi sósíaldemókrata, systurflokks Kristrúnar, skrifuðu er krafist að Mannréttindadómstóll Evrópu (MDE) taki í auknum mæli afstöðu með öryggi borgara í Evrópu  en ekki erlendum glæpamönnum og þeim verði vísað lóðbeint úr landi. 

En þær stöllur Kristrún og Þorgerður taka ekki þátt í því.Þær meta það ekki sem sitt hlutverk að standa vörð um öryggi íslendinga fyrir erlendum glæpamönnum sem sækja um alþjóðlega vernd eða hafa fengið hana. Kristrún segir að það séu önnur mál mikilvægari og gerir lítið úr tilraun 9 Evrópuleiðtoga til að auka öryggi eigin borgara. 

Fólkið í landinu veit að erlendir glæpahópar hafa hreiðrað um sig og brýna nauðsyn ber til að þeim verði vísað úr landi tafarlaust, til að tryggja öryggi borgaranna í landinu. Kristrún og Þorgerðar Katrín telja það megi bíða á sama tíma og Þogerður Katrín er upptekin við að hjúfra sig upp að öfgafulla sósíalistanum Pedro Sanches Spánarleiðtoga, forseta Írlands og öðrum öfgafullum vinstri mönnum í Evrópu. 

Hafi einhvern tíma verið gjá á milli stjórnmálastéttarinnar og almennings í landinu, þá kom það skýrst fram í niðurstöðu skoðanakönnunar sem Morgunblaðið birti í gær, þar sem aukinn meirihluti landsmanna krefst þess að dekrinu við hælisleitendaiðnaðinn verði hætt og þjóðin fái að búa í friði og hlú að sínu og gæta séreinkenna sinna sem þjóðar. Tungu og menningu. En á sama tíma hafnar ríkisstjórnin að taka þátt í sjálfsögðum óskum hófsamra ríkisstjórna í álfunni til að tryggja öryggi eigin borgara. 

Þá vita menn það og merkilegt nokk Inga Sæland og flokkur hennar styður þetta þrátt fyrir að flokksmenn skv.skoðanakönnun séu nánast allir á öndverðum meiði í samræmi við það sem formaður flokksins hefur haldið fram á undanförnum árum. Sé gjá á milli þjóðar og stjórnmálamanna, þá er hún alger í tilviki Flokks fólksins og kjósenda flokksins, sem töldu að flokkurinn stæði fyrir að gæta hagsmuna fólksins í landinu gegn hælisleitendaiðnaðinum. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Hver er summan af sex og tólf?
Nota HTML-ham

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.6.): 55
  • Sl. sólarhring: 746
  • Sl. viku: 5460
  • Frá upphafi: 2543107

Annað

  • Innlit í dag: 54
  • Innlit sl. viku: 5048
  • Gestir í dag: 54
  • IP-tölur í dag: 53

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband