Leita í fréttum mbl.is

Vinslit ekki af ástæðulausu

Eitt helsta vandamál vestrænna ríkja er að þau eyða um efni fram og safna skuldum. Þetta voru þeir sammála um Trump og Musk þegar sá fyrrnefndi settist í forsetastól og sá síðar nefndi tók sæti í ríkisstjórn hans sem sparnaðarráðherra.

Musk var nokkuð ágengt og náði að spara 175 þúsund milljónir dollara í gegn um Skilvirknisstofnun(Doge)sína. Svo súrnaði samband þeirra og Musk fór úr ríkisstjórninni eftir að hafa gagnrýnt fjárlagatillögur forsetans. 

Fjárlagatillögur Trump gera ráð fyrir miklum ríkissjóðshalla og skuldaaukningu upp á 2.3 trilljónir dollara næsta áratug. Einmitt það sem Musk var ráðinn til að koma í veg fyrir. Í sjálfu sér eðlilegt að hann yfirgefi ríkisstjórn við þær aðstæður og sendi „vini“ sínum blendnar kveðjur fyrir að víkja svo gróflega frá kosningaloforðum sínum.

Musk fór líka háðulegum orðum um að stefna ríkisstjórnarinnar væri greinilega að trúa á að aukning þjóðarframleiðslu gæti komið í veg fyrir gjaldþrot alríkisins. Raunar sama stefna og síðasta ríkisstjórn Íslands fylgdi og sú sem nú situr virðist ekki ætla að takast að breyta þar nokkru um þrátt fyrir fögur fyrirheit.

Það er erfitt að vera ósammála Musk eða vera bjartsýnn á fjámálalega framtíð svo dæmi sé tekið Bandaríkjanna,Breta, Frakka.

Velferðarkerfið kostar um helming ríkisútgjalda og meirihlutinn t.d. í Bretlandi 53% þjóðarinnar fær meira frá ríkinu en þau borga í skatta. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn segir breska ríkið hafa fengið svo mikil lán að ekki sé svigrúm til að lána þeim meira.

Ef stjórnmálamenn hafa ekki hugrekki til að ráðast að rótum skuldavanda og eyðslustefnu, þá verða valkostirnir fljótlega lítt fýsilegir. Því miður hefur Trump nú sýnt það, að hann velur vinstri valkosti í ríkisfjármálum þegar nauðsynlegt er að spara eins og Elon Musk bendir á og komist að því hversu gjörólíkt það er að stjórna þjóðfélagi og fyrirtæki.

Stjórnmálastéttin hér á landi er gjörsamlega ábyrgðarlaus varðandi eyðslustefnu sína bæði í fjármálum ríkis og sveitarstjórna og því miður engin stjórnmálaflokkur sem hefur döngun í sér til að bregðast við vandanum meðan enn er svigrúm til þess. Við siglum því hraðbyrði og sennilega hraðar að feigðarósi en  þeir Trump, Starmer og Macron


« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Hver er summan af tíu og sextán?
Nota HTML-ham

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 263
  • Sl. sólarhring: 296
  • Sl. viku: 3175
  • Frá upphafi: 2544359

Annað

  • Innlit í dag: 247
  • Innlit sl. viku: 2942
  • Gestir í dag: 244
  • IP-tölur í dag: 241

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband