Leita í fréttum mbl.is

Tjáningarfrelsiđ sigrađi

Í dag sýknađi Landsréttur Pál Vilhjálmsson í meiđyrđamáli, sem Ađalsteinn Kjartansson blađamađur ýmist á Heimildinni eđa öđrum álíka miđlum höfađi gegn honum. 

Niđurstađa Landsréttar var í ađalatriđum: 

Ţó ađ ummćli Páls vćru beinskeytt og óvćgin yrđi ađ líta til ţeirrar stađreyndar ađ Ađalsteinn hafđi stöđu sakbornings ţegar ummćlin féllu og vćri ţekktur blađamađur og ţurfi ţeir sem sinna slíkum störfum ađ vera undir ţađ búnir ađ ţola óţćgilega og hvassa gagnrýni og ađfinnslur viđ störf sín. Páll hafi međ umdeildum fćrslum sínum veriđ ţátttakandi í almennri umrćđu um mikilvćg samfélagsleg málefni sem erindi áttu viđ almenning og naut af ţeim sökum rúms tjáningarfrelsis á međan stefndi mátti sem blađamađur og opinber persóna gera ráđ fyrir ađ ţurfa ađ ţola hvassa og óvćgna gagnrýni í kjölfar eigin skrifa.

Ţegar litiđ er til alls framangreinds verđur lagt til grundvallar ađ áfrýjandi (Páll)  hafi mátt vera í góđri trú um ađ nćgilegt tilefni vćri til hinna umţrćttu ummćla og ađ ţau hafi, ţegar litiđ er til hinnar hvössu umrćđu sem máliđ hefur vakiđ, ekki gengiđ svo langt ađ nauđsyn beri til ţess í lýđrćđislegu samfélagi, ţar sem tjáningarfrelsi er í hávegum haft, ađ ómerkja ţau. Af sömu ástćđum verđur heldur ekki fallist á ađ međ ummćlunum hafi áfrýjandi skađađ mannorđ stefnda ađ ţví marki ađ hann hafi međ ţeim bakađ sér skyldu til greiđslu miskabóta honum til handa. Samkvćmt ţessu verđur áfrýjandi sýknađur af kröfum stefnda í málinu.

Athyglisverđur dómur og sigur tjáningarfrelsisins einkum ţegar haft er í huga hversu hvöss og óvćgin mörg ummćli Páls voru í garđ Ađalsteins og félaga hans. t.d. sem dćmi: 

 "Ađalsteinn Kjartansson á Stundinni eiga ađild ađ, beina eđa óbeina, ađ byrlun Páls skipstjóra Steingrímssonar og stuldi á síma hans".

"Leikritiđ um ađ Ađalsteinn ynni á Stundinni, en ekki RÚV, var hluti af samráđi um ađ byrla og stela til ađ ná í fréttir."

"Ađalsteinn er ţrautţjálfađur í blekkingum".

"Ađalsteinn var sendur á Stundina til ađ taka viđ ţýfinu og koma í umferđ."

"Nýr vitnisburđur, og gögn sem styđja ţá frásögn, sýna fram á ađ blađamennirnir hafi tekiđ ţátt í ađ skipuleggja byrlunina, veriđ međ í ráđum ţegar í upphafi."

"Ţađ átti bara eftir ađ byrla skipstjóranum og stela síma hans ţegar Ađalsteinn flutti blađamennsku sína af RÚV yfir á Stundina."

"Blađamennirnir voru vel međvitađir um ađ hafa framiđ alvarlegt lögbrot og kappkostuđu ađ eyđa sönnunargögnum."

"RSK-miđlar nýttu sér skotleyfiđ áđur en ţađ var gefiđ út. Ţeir misnotuđu andlega veika konu til ađ byrla og stela."

Ţrátt fyrir ţessi óvćgnu ummćli telur Landsréttur samt rétt,ađ láta tjáningarfrelsiđ hafa sigur umfram ţöggunartilraunir blađamannsins Ađalsteins. 

Nú ţegar svo afdráttarlaus dómur hefur veriđ kveđinn upp í ţessu meiđyrđamáli verđur ekki annađ lesiđ úr dómnum, en ađ fullt tilefni hafi veriđ til ţessara skrifa ţar sem Ađalsteini og félögum er ítrekađ borin á brýn glćpsamlegt atferli. Stundum hafa slíkir dómar orđiđ tilefni til nýrrar umfjöllunar um mál og vissulega vćri ţađ vel, ađ ađförin ađ Páli Steingrímssyni skipstjóra yrđi rannsökuđ í ţaula. Ţessi dómur gefur tilefni til ađ máliđ sé tekiđ til nýrrar skođunar af ákćruvaldinu og síđast en ekki síst, ađ útvarpsráđ og útvarpsstjóri reki ţá óvćru sem hefur hreiđrađ um sig innan stofnunar Rúv miđla af höndum sér. 

 


mbl.is Landsréttur sýknar Pál af kröfum Ađalsteins
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla

Bćta viđ athugasemd

Hver er summan af ţremur og átján?
Nota HTML-ham

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri fćrslur

Júní 2025
S M Ţ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 687
  • Sl. sólarhring: 726
  • Sl. viku: 4997
  • Frá upphafi: 2555120

Annađ

  • Innlit í dag: 642
  • Innlit sl. viku: 4682
  • Gestir í dag: 578
  • IP-tölur í dag: 558

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband