Leita í fréttum mbl.is

Barbarrossabad

Barbarossabad er lítill staður í Þýskalandi, sem dregur nafn sitt frá Friðriki Barbarossa(Rauðskegg), sem er annað mál. 

Nýlega komu fimm ungar stúlkur og kvörtuðu yfir kynferðislegum árásum stórs hóps karlmanna í sundlaug staðarins. Þegar málið var kannað betur stigu tugir stúlkna fram til viðbótar. Allar lýstu kynferðislegum árásum þar sem stór hópur karlmanna stóð að sameiginlega. Sú yngsta var 11 ára, en sú elsta 17.

Í þessu tilviki brugðust yfirvöld ekki, en tókst ekki að ná nema fjórum, sem allir voru hælisleitendur frá Sýrlandi. 

Sagan frá Barbarossabad er eitt þúsunda dæma um það sem er þar sem hópum hælisleitenda frá löndum fyrir botni Miðjarðarhafs og Norður Afríku og víðar hefur verið hleypt inn.

Íslenska stjórnmálaelítan nú með Þorgerði Katrínu í broddi fylkingar hamast við að troða fleirum og fleirum úr þessum hópum inn í landið. 

Afleiðingarnar eru komnar í ljós, þó reynt sé að láta sem ekkert sé. Í auknum mæli áttar fólk sig á hvað er að gerast og það öryggi sem við bjuggum við er horfið.  Þessvegna m.a. eru biðraðir til að ná í leigubíla á síðkvöldum um helgar, þar sem ungar konur sækjast eftir að fá leigubíl þar sem konur eru leigubifreiðastjórar.

Stjórnmálaelítan brást þegar hún breytti lögum um leiguakstur og gætti ekki að öryggi neytenda. Metnaðarleysið er algert þegar stjórnmálamenn og embættismenn láta það líðast að fólk geti verið í hættu vegna fráleitra reglna um leiguakstur. Af hverju er þessu ekki komið í lag strax? Ætlar stjórnmálaelítan að láta reka á reiðanum þangað til viði fáum fleiri sögur eins og frá stúlkunum í Barbarossabad?


« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Hver er summan af sex og einum?
Nota HTML-ham

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.6.): 597
  • Sl. sólarhring: 684
  • Sl. viku: 5492
  • Frá upphafi: 2557467

Annað

  • Innlit í dag: 548
  • Innlit sl. viku: 5136
  • Gestir í dag: 525
  • IP-tölur í dag: 517

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband