3.2.2008 | 13:03
Svona umfjöllun verður að taka alvarlega.
Umfjöllun eins og sú sem er um íslenska efnahagskerfið í Sunday Telegraph verður að taka alvarlega. Sunday Telegraph sunnudagsútgáfa Daily Telegraph er blað sem nýtur virðingar og þykir hallt undir sjónarmið íhaldsmanna í enskum stjórnmálum og því eins konar Morgunblað þar í landi.
Þrátt fyrir að taka verði fréttir eins og þessar alvarlega þá verður samt að benda á að það er ekki einsdæmi að erlend blöð birti fréttir sambærilegar þessari í Sunday Telegraph. Sem betur fer haf þær fréttir ekki reynst vera réttar. Það er hins vegar ljóst að í fjármálastarfseminni þá hafa íslensku bankarnir og fjárfestarnir gengið hratt um gleðinnar dyr og öll merki benda til þess að niðursveifla sé í efnahagslífi Bandaríkjanna og Bretlands sem getur haft afdrifarík áhrif fyrir okkur.
Það má ekki gleyma því að fjármálastarfsemi hefur verið helsti vaxtabroddur íslensks efnahagslífs undanfarin ár og niðursveifla á þeim markaði og enn alvarlegri hlutir mundu hafa verulega afdrifarík áhrif til ills fyrir okkur. Það verður því að gera allt til að koma í veg fyrir að spár eins og þessar rætist.
Hitt er svo annað mál að forustumenn í íslensku fjármálalífi hafa hagað sér með ólíkindum í ýmsum tilvikum. Ofurlaun sem eru langt umfram það sem sæmilegt er, kaupaukar og bruðl sem hefur um of einkennt starfsemi sumra fjármálastofnana eru óeðlileg og fráleitt annað en brugðist sé við með hátekjuskatti á ofurlaun. Bruðl og ofurlaun sem hafa viðgengist undanfarin ár í fjármálastofnununum eru ósæmileg og enn verri ef í ljós kemur að engin innistæða var fyrir slíku.
Er allt á niðurleið á Íslandi? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 412
- Sl. sólarhring: 506
- Sl. viku: 5351
- Frá upphafi: 2425985
Annað
- Innlit í dag: 382
- Innlit sl. viku: 4936
- Gestir í dag: 375
- IP-tölur í dag: 357
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
- Adolf Friðriksson
- Jón Þórhallsson
- Ágúst H Bjarnason
- Agný
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Andrés Magnússon
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Jón Þóroddur Jónsson
- Áslaug Friðriksdóttir
- Auðbergur Daníel Gíslason
- Baldur Hermannsson
- Námsmaður bloggar
- Jón Ríkharðsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kristjánsson
- Einar Gunnar Birgisson
- Björn Halldórsson
- Björn Júlíus Grímsson
- SVB
- Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
- Carl Jóhann Granz
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Dominus Sanctus.
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Helga Kristjánsdóttir
- Þórólfur Ingvarsson
- Dögg Pálsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Elle_
- Einar Björn Bjarnason
- Einar G. Harðarson
- Eiríkur Guðmundsson
- Elinóra Inga Sigurðardóttir
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- ESB og almannahagur
- Ester Sveinbjarnardóttir
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Jón Kristjánsson
- Atli Hermannsson.
- Baldur Gautur Baldursson
- Fríða Björk Einarsdóttir
- Friðrik Óttar Friðriksson
- Frjálshyggjufélagið
- Jakob Þór Haraldsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Georg Eiður Arnarson
- Gestur Halldórsson
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Guðmundur Pálsson
- Grazyna María Okuniewska
- Grétar Pétur Geirsson
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Guðmundur Júlíusson
- gudni.is
- Jón Þórhallsson
- Gunnar Freyr Hafsteinsson
- Gústaf Níelsson
- Gústaf Adolf Skúlason
- Guðjón Ólafsson
- Gylfi Þór Þórisson
- Haraldur Baldursson
- Halldór Jónsson
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Hannes Sigurbjörn Jónsson
- Haukur Baukur
- Birgir Guðjónsson
- Sigurbjörg Eiríksdóttir
- Heimir Ólafsson
- G Helga Ingadottir
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Himmalingur
- Hildur Sif Thorarensen
- Eiríkur Harðarson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Haraldur Huginn Guðmundsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Einar Ben
- Inga Lára Helgadóttir
- Inga G Halldórsdóttir
- Jakob S Jónsson
- Einar B Bragason
- Jens Guð
- jósep sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Jónas Egilsson
- Jón Pétur Líndal
- Jón Snæbjörnsson
- Jón Valur Jensson
- Jórunn Ósk Frímannsdóttir
- Eyþór Jóvinsson
- Júlíus Björnsson
- Júlíus Valsson
- Júlíus Brjánsson
- Bergur Thorberg
- Katrín
- Kjartan Pálmarsson
- Kjartan Eggertsson
- Kjartan Magnússon
- Högni Snær Hauksson
- Kolbrún Baldursdóttir
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristján H Theódórsson
- Bjarki Steingrímsson
- Steingrímur Helgason
- Konráð Ragnarsson
- Lífsréttur
- Loncexter
- Guðjón Baldursson
- Lúðvík Júlíusson
- Lúðvík Lúðvíksson
- Margrét St Hafsteinsdóttir
- Magnús Jónsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Alfreð Símonarson
- Markús frá Djúpalæk
- Marta Guðjónsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Morgunblaðið
- Natan Kolbeinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Örn Jónsson
- Ólafur Sveinsson
- Ólafur Fr Mixa
- Ómar Bjarki Smárason
- Páll Ingi Kvaran
- Pálmi Gunnarsson
- Pjetur Stefánsson
- Rafn Gíslason
- Ragnar G
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Ragnar L Benediktsson
- Rannveig H
- Árni Gunnarsson
- Ragnheiður Ólafsdóttir
- Rósa Harðardóttir
- ragnar bergsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Samstaða þjóðar
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigrún Jóna Sigurðardóttir
- Sigurbjörn Sveinsson
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Sigurjón Þórðarson
- Sigurður Jónsson
- Skattborgari
- Haraldur Pálsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Guðnason
- Jóhann Pétur
- Sverrir Stormsker
- Sturla Bragason
- Sumarliði Einar Daðason
- Ólafur Ingi Hrólfsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Björn Bjarnason
- Óli Björn Kárason
- Jón Þórhallsson
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þórhallur Guðlaugsson
- Þórhallur Heimisson
- Þorsteinn Erlingsson yngri
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Valdimar H Jóhannesson
- Valsarinn
- Valur Arnarson
- Vefritid
- Ingunn Guðnadóttir
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Vilhjálmur Eyþórsson
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Kristinn Ingi Jónsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Ívar Pálsson
Athugasemdir
Þessi umfjöllun birtist fyrir nokkrum dögum í Aftenposten í Noregi:
http://e24.no/utenriks/article2210232.ece
Magnús Þór Hafsteinsson, 3.2.2008 kl. 13:06
Nákvæmlega Jón!! En hvernig er hægt að koma vitinu fyrir forkólfana án þess að vera sagður öfundsjúkur ?
Jónína Benediktsdóttir (IP-tala skráð) 3.2.2008 kl. 13:48
Takk fyrir þetta!
Ásgeir Rúnar Helgason, 3.2.2008 kl. 13:56
Sæll Jón. Flott grein hjá þér. Ég undrast hvað fjölmiðlar velta sér lítið upp úr þessari græðgi hjá bönkunum og stórfyrirtækjum en fjölmiðlaumfjöllun er það eina sem getur haft áhrif á þróun þessara mála. Eins og Jónína bendir á þá fær maður bara öfundarstimpilinn á sig ef maður er að fjasa út af þessu og því verður það áhrifalaust tal.
Kolbrún Stefánsdóttir, 3.2.2008 kl. 15:43
Svona umfjöllun verður að taka varlega.
Jóhann, 3.2.2008 kl. 15:57
Bankarnir voru seldir og að lokum fannst öllum það sjálfsagður hlutur nema mér. Ég var einlægt að tuða um að ef það væri hægt að græða svona mikið á þessum bönkum ætti ríkið að gera það. Menn brostu góðlátlega að þessum aulahætti mínum og sögðu að ríkið ætti ekki að vera að vesenast í rekstri. "Það sjá nú allir" fylgdi með og þetta svar var svo staðlað að það minnti á upphrópunina "Guð hjálpi þér!" þegar maðurinn við hliðina hnerrar.
En það var einlægt verið að ræða um að þarna yrðu að vera "kjölfestufjárfestar!" Þetta orð skildi ég ekki til fulls í fyrstu en fannst það magnað þegar ég áttaði mig á merkingunni og stórum skiljanlegra en "vergar tekjur" sem ég hef aldrei almennilega botnað mikið í.
En ég þráaðist við og spurði hversvegna ríkið gæti ekki barasta verið þessi kjölfestufjárfestir með svona 25% eignarhlut.
Þá var nú hlegið, skal ég segja ykkur.
Ég gekk með þetta steinfóstur í maganum í nokkur ár.
Svo var það í fyrrasumar að góðkunningi minn bauð mér upp á kaffi á Café París. Þessi maður er einn af lykilmönnum í útrásarverkefnum annars ríkisbankans fyrrverandi, en nafni hans mun ég skýla.
Nú tók ég á mig rögg og stundi þessa spurningu upp við félaga minn fullviss um að hann myndi ekki bera þessa fávisku mína út á meðal sameiginlegra kunningja okkar. Ég hrökk upp við svarið:
"Auðvitað átti ríkið að halda eftir hlut við sölu bankanna og verða kjölfestufjárfestirinn í dæminu. Svona aulalegir viðskiptahættir eru einsdæmi og hefðu hvergi tíðkast nema á Íslandi."
Ég hækkaði all verulega í sætinu, þarna var ég að ræða við mann sem hafði komið að kaupum á öðrum bankanna með beinum hætti og fylgt,-og staðið sjálfur að metnaðarfullri útrás hans og milljarðagróða frá fyrstu dögum. Meirihlutinn, hagspekingarnir á götunni og í fjölmiðlum höfðu´verið að bulla en ég haft rétt fyrir mér allan tímann.
Nú á dögunum heyrði ég í fréttum eitthvert rykti um að líklega væru umsvif bankanna orðin íslenska ríkinu bagaleg í tilliti efnahagslegs trúverðugleika landssjóðsins. Hlutfall skulda þessara banka í samanburði við eignir og veltu ríkissjóðs væri farið að hringja viðvörunarbjöllum í útlandinu.
Og nú stendur Davíð Oddsson skjálftavaktina í Seðlabankanum, skíthræddur um að kraftaverk hans í viðskiptum á glæstri ráðherratíð birtist honum einn slæman veðurdag í efnahagslegu stórslysi.
Megi allar góðar vættir forða því að svo fari. Það er nefnilega ofvaxið Framkvæmdasjóði aldraðra að taka við þeim skelli, þó oft hafi nú verið gott að grípa til hans.
Árni Gunnarsson, 3.2.2008 kl. 16:56
Fyrirtakspistill og orð í tíma töluð,Commentið hans Árna athyglisvert innlegg í umræðuna.
Bloggaði um þetta í morgun,og komst að líkri niðurdtöðu
Mér sýnist þeir sem hér hafa commentað vera á svipuðu máli..Kveðja
Ari Guðmar Hallgrímsson, 3.2.2008 kl. 17:27
Fyrir nokkrum mánuðum benti ég á þessa nauðsyn að setja á hátekjuskatt á ofurlaun og að setja á þrepaskatt hér á landi, en fékk ekkert nema svívirðingar á blogginu (sennilega frá hátekjufólki sem hefur ekkert annað að gera en að vera á netinu). Ég sá mig tilneydda til að eyða þessari færslu þar sem það "fór í brjóstið hjá hátekjufólkinu", enda fékk ég þó nokkrar nafnlausar færslur um hvað ég væri "vond manneskja" að tala um að auka skattheimtu á þetta fólk !
Brynja D (IP-tala skráð) 3.2.2008 kl. 18:37
Úrdráttur úr grein eftir undirritaðan ''Lýðveldið Ísland og Evrópusambandið''sem birtist í Morgunblaðinu á sjómannadaginn 6.júni 2004. Það hafa margir hugsandi menn hér á landi varað við þessu lengi að svona hagkerfi gæti ekki gengið á lýginni einni saman svo að sjá þessa umfjöllum í stórblöðum erlendis er ekkert sem kemur þeim á óvart. Kveðja, Baldvin Nielsen
,,Annað ákvæði í EES- samningnum um frjálst fjármangsflæði milli aðildarríkjanna skipti sköpum og fullveldissinnar treystu því ekki að okkar litla hagkerfi stæðist ágang erlends fjármagns og myndi því hreinlega sogast inn í hringiðu hagkerfis Evrópusambandslandanna. Þetta myndi leiða til þess að Íslendingar misstu efnahagslegt sjálfstæði sitt í framtíðinni.
Eins og sjá má á þjóðmálaumræðunni í dag hafa erlendar skuldir landsmanna vaxið langt umfram getu okkar litla hagkerfis eftir inngönguna í EES og hafa þær aldrei verið meiri. Góðæriskenningin á sínar rætur frá þessari þróun, skuldir undirstaðan þó þeirra væri aldrei getið í sjálfum málflutningnum þ.e.a.s. þeirra sem studdu EES samninginn. Sannarlega hafa þær verkað sem driffjöður á lífæð hagkerfisins hér á landi, já, hér er verið að tala um skuldir, sem jafnframt hafa verið stór þáttur stöðugleikans, svokallaða.
En hvar er hin raunverulega framleiðni? Uppsveifluna í efnahagslífinu má rekja að mestu leyti til uppbyggingar á Stór- Reykjavíkursvæðinu sem varð til vegna landsbyggðarflóttans sem hefur verið mikill síðustu tvo áratugina. Hornsteinn þessarar þróunar, (landsbyggðarflóttinn annars vegar og fjármagnsstreymið til uppbyggingar hér syðra hins vegar) var lagður með kvótabraskkerfinu sem tryggt var svo í sessi með aðildinni að EES samningnum, áratug síðar. Þetta gerði hinum fáu útvöldu kleift að fjármagna mestu búsyfjan af mannavöldum í sögu þjóðarinnar.
Alls kyns spákaupmennska hefur rutt sér til rúms síðustu árin þar sem arður er gerður úr væntingum og greiddur út í milljörðum til réttra aðila. Þetta hefur verið að gerast í íslensku atvinnulífi og nú síðast í sjávarútveginum á Akureyri, svo tekið sé dæmi. Sameiningarferli íslenskra fyrirtækja undir nafninu ,,Hagræðing” er eingöngu til þess fallið að fyrirtækin geti haldið sjó á meðan þau eru að ná þeim stærðum á markaðinum að þau verði góður fjárfestingarkostur fyrir stóru erlendu fjárfestana sem bíða handan við hornið.
Lykilinn til að ná þessum markmiðum endanlega er innganga okkar í ESB svo að erlendir fjárfestar geti eignast hér áhrif og völd í framtíðinni í okkar annars auðuga landi. Með inngöngunni myndu hinir fáu útvöldu áskotnast mikið fé við að selja auðlindir íslensku þjóðarinar ásamt réttindum til lands og sjávar sem þeir hafa verið að söðla undir sig síðustu misserin geng vilja þorra landsmanna.
Íslenskum útflutningsfyrirtækum er fyrirmunað að stunda sjálfbæran og heilbrigðan atvinnurekstur svo sem í sjávarútvegi og iðnaði. Þau heyja allt að því vonlausa baráttu vegna kvótabraksins og hátt gengis íslensku krónunnar en í staðinn hefur rekstrargrundvelli þeirra verið haldið gangandi með stöðugu flæði af erlendu lánsfé inn í hagkerfið. Gjaldþrot hafa verðið með mesta móti á síðasta ári og sér ekki fyrir endann á þeirri óheilla þróun.
Samtök iðnaðarins hafa staðfest flótta iðnfyrirtækja frá Íslandi. Þreytumerki hafa líka komið fram hjá fyrirtækjum sem framleiða gjaldeyrissparandi vörur fyrir innanlandsmarkað og eru í samkeppni við innfluttar vörur sem eru ódýrari en ella vegna gjaldeyrisútsölunnar. Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins Sveinn Hannesson vísaði til þeirra staðreynda í Viðskiptablaði Mbl. 26. febrúar s.l. þegar hann sagði að mörg fyrirtæki væru í rekstri þrátt fyrir að í raun væru þau löngu orðin gjaldþrota. Þar kom einnig fram að Samtök iðnaðarins teldu að full aðild að ESB og upptaka evru væri besta vörnin til að bæta markaðsstöðu íslenskra útflutningsfyrirtækja.''
Baldvin Nielsen (IP-tala skráð) 3.2.2008 kl. 19:11
Það er ekki hægt að taka svona frétt alvarlega. Þetta er góð hreinsun í fjármálageiran. Við þurfum að hugsa um hvaðan við komum og sérstöðu Íslands. Mér finnst alvarlegra að við erum missa ýmsa atvinnustarfsemi úr landi. Til dæmis eigum við engin flutningaskip skráð á Íslandi og erum að missa þá þekkingu frá okkur. Held við verðum að huga miklu meira um hag okkar og þann auð sem við höfum hér heima. Það fæst nefnilega ekki allt fyrir peninga.
Smá hugleiðing.
bjössi (IP-tala skráð) 3.2.2008 kl. 20:19
Þú verður að athuga það Bjösi minn að hreinsun í "fjármálageiranum" eins og þú kallar það, gæti samt orðið til þess að við misstum mikið meira en flutningskipin og þá þekkingu sem þeim fylgir.
Kveðja
Ari Guðmar Hallgrímsson, 3.2.2008 kl. 20:28
Árni stendur fyrir sínu og ágætis blogg hjá þér Jón. Ofurlaunin eru því miður bara toppurinn á ísjakanum. Þau endurspegla ákveðna spillingu og minna mig á þessi fleygu orð: "Einkavæðingarsinnum er ekki treystandi með peninga."
Ólafur Þórðarson, 3.2.2008 kl. 20:29
Flottræfilshátturinn í ný-ríkradansi íslenskra bankamanna lítur ekki vel út í augum reyndra og íhaldssamra kollega þeirra í V-Evrópu, né heldur fjölmiðlamanna.
Bankamenn kunna yfirleitt að fara með peninga, sem er jú forsenda þess að aðrir geti treyst þeim fyrir sínum peningum. Hefðirnar í þessum bransa eru sterkar og íslenskir bankamenn hafa brotið þær flestar. Því er ekki skrítið að menn erlendis setji stórt spurningamerki við íslensku bankana, enda byggja þeir á stuttri sögu í alþjóðlegum viðskiptum, með óreynda starfsmenn og stjórnendur og vanþróað viðskiptatengslanet.
Ofurlaunasamningar æðstu stjórnenda íslensku bankana eru svo kapituli út af fyrir sig og segir manni að eigendur bankana sem sitja í stjórn þeirra séu ekki með gott viðskiptavit. Auðvitað verða hvatasamningar að vera til staðar, en þegar hver bankastjóri er farinn að kosta milljarða, þá vakna spurningar um hvort ekki hefði verið hægt að ná betri samningum fyrir hönd hluthafa.
Stundum hafa þessir menn reynt að réttlæta milljarðana með því að segja að það sé samkeppni um þessa hæfu menn. Það er kjaftæði, því það segir sig sjálft að engin stór erlendur banki myndi bjóða þessum nýgræðingum frá Íslandi bankastjórastöðu hjá sér - segir sig sjálft.
Og hverslags brandari er það að borga rétt rúmlega þrítugum kettlingi 300 milljónir til að taka við bankastjórastóli? Var bankastjórastóllinn, launin og hvatarsamningarnir einir sér ekki nógu freistandi fyrir þennan unga mann, sem hvorki hefur merkilega reynslu og varla persónuleg viðskiptatengsl, sem einhvers virði eru?
Svona má lengi halda áfram og er ég ekki undrandi þó greinar eins og þessi í Sunday Telegraph haldi áfram að birtast í erlendum fjölmiðlum á næstunni.
Jú að lokum, það verður hörð lending, það er ekki spurning og eina von Íslendinga er að halda áfram að byggja upp orkufrekan iðnað - það er okkar helsti styrkleiki og hann verðum við að nýta okkur til fulls ef ekki á illa að fara.
María J. (IP-tala skráð) 3.2.2008 kl. 22:04
Getur verið að þetta sé sami áróðurinn og fór af stað þegar Baugur og fleiri urðu of ágengir í Danmörku?
Gísli Bergsveinn Ívarsson, 3.2.2008 kl. 23:14
Menn sem hegða sér að hætti nýríkra eins og íslenskir bankamenn gera, líta afar illa út í augum bankamanna og auðmanna í hinni gömlu Evrópu, sem byggja fjármagn sitt á gömlum merg. Það er gjarnan gert góðlátlegt grín að slíkum mönnum og þeir álitnir kjánar út af glysgjörnu háttalagi sínu. Það eru gömul sannindi að menn kaupa sér ekki virðingu.
Sigurður Jónsson (IP-tala skráð) 4.2.2008 kl. 06:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.