20.3.2008 | 22:30
5 ár frá ólögmætri innrás Breta og Bandaríkjamanna í Írak.
Það eru 5 ár síðan Bandaríkjamenn og Bretar réðust í skjóli nætur inn í Írak af tilefnislausu. Innrásin var ólögmæt miðað við reglur Sameinuðu þjóðanna. Halldór Ásgrímsson þáverandi utanríkisráðherra og Davíð Oddsson settu okkur á lista yfir hin viljugu ríki sem studdu innrásina. Innrásin var gerð til að koma í veg fyrir að Saddam Hussein þáverandi einræðisherra í Írak notaði og þróaði betur gereyðingarvopn sem Bandaríkjamenn og Bretar héldu fram að hann hefði undir höndum og væri að þróa. Þá var innrásin líka gerð vegna meintra tengsla við Al Qaida og Osama bin Laden forustumann þeirra samtaka.
Nú 5 árum síðar liggur fyrir að Saddam átti engin gereyðingarvopn og var ekki að þróa nein. Þá liggur fyrir að engin tengslu voru milli stjórnar Saddam Hussein og eða hans sjálfs við Al Qaida eða Osama bin Laden. Ástæður innrásarinnar voru því ekki fyrir hendi heldur búnar til gegn betri vitund.
Tugir eða hundruðir þúsunda hafa látið lífið vegna innrásarinnar og meir en milljón Íraka eru landflótta. Þrátt fyrir ógnarstjórn Saddam bjó almenningur við þokkalegt öryggi og gat iðkað trú sína óttalítið. Nú eru kristnu söfnuðurnir nánast lokaðir. Stór hluti landsmanna býr í stöðugum ótta. George W. Bush Bandaríkjaforseti sem ber höfuðábyrgðina á löglausu innrásinni fyrir 5 árum ber því mikla ábyrgð og mikla sök. En hvað sem sök hans og ábyrgð líður þá bætir það ekki stöðu þeirra milljóna Íraka sem eru landflótta, á flótta innan Írak og búa við stöðuga ógn og hættur.
Innrásin í Írak eru óafsakanleg. Það að setja Ísland á lista yfir hinar viljugu þjóðir var óafsakanlegt.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 280
- Sl. sólarhring: 776
- Sl. viku: 4794
- Frá upphafi: 2426664
Annað
- Innlit í dag: 258
- Innlit sl. viku: 4446
- Gestir í dag: 254
- IP-tölur í dag: 245
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
- Adolf Friðriksson
- Jón Þórhallsson
- Ágúst H Bjarnason
- Agný
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Andrés Magnússon
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Jón Þóroddur Jónsson
- Áslaug Friðriksdóttir
- Auðbergur Daníel Gíslason
- Baldur Hermannsson
- Námsmaður bloggar
- Jón Ríkharðsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kristjánsson
- Einar Gunnar Birgisson
- Björn Halldórsson
- Björn Júlíus Grímsson
- SVB
- Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
- Carl Jóhann Granz
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Dominus Sanctus.
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Helga Kristjánsdóttir
- Þórólfur Ingvarsson
- Dögg Pálsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Elle_
- Einar Björn Bjarnason
- Einar G. Harðarson
- Eiríkur Guðmundsson
- Elinóra Inga Sigurðardóttir
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- ESB og almannahagur
- Ester Sveinbjarnardóttir
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Jón Kristjánsson
- Atli Hermannsson.
- Baldur Gautur Baldursson
- Fríða Björk Einarsdóttir
- Friðrik Óttar Friðriksson
- Frjálshyggjufélagið
- Jakob Þór Haraldsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Georg Eiður Arnarson
- Gestur Halldórsson
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Guðmundur Pálsson
- Grazyna María Okuniewska
- Grétar Pétur Geirsson
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Guðmundur Júlíusson
- gudni.is
- Jón Þórhallsson
- Gunnar Freyr Hafsteinsson
- Gústaf Níelsson
- Gústaf Adolf Skúlason
- Guðjón Ólafsson
- Gylfi Þór Þórisson
- Haraldur Baldursson
- Halldór Jónsson
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Hannes Sigurbjörn Jónsson
- Haukur Baukur
- Birgir Guðjónsson
- Sigurbjörg Eiríksdóttir
- Heimir Ólafsson
- G Helga Ingadottir
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Himmalingur
- Hildur Sif Thorarensen
- Eiríkur Harðarson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Haraldur Huginn Guðmundsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Einar Ben
- Inga Lára Helgadóttir
- Inga G Halldórsdóttir
- Jakob S Jónsson
- Einar B Bragason
- Jens Guð
- jósep sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Jónas Egilsson
- Jón Pétur Líndal
- Jón Snæbjörnsson
- Jón Valur Jensson
- Jórunn Ósk Frímannsdóttir
- Eyþór Jóvinsson
- Júlíus Björnsson
- Júlíus Valsson
- Júlíus Brjánsson
- Bergur Thorberg
- Katrín
- Kjartan Pálmarsson
- Kjartan Eggertsson
- Kjartan Magnússon
- Högni Snær Hauksson
- Kolbrún Baldursdóttir
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristján H Theódórsson
- Bjarki Steingrímsson
- Steingrímur Helgason
- Konráð Ragnarsson
- Lífsréttur
- Loncexter
- Guðjón Baldursson
- Lúðvík Júlíusson
- Lúðvík Lúðvíksson
- Margrét St Hafsteinsdóttir
- Magnús Jónsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Alfreð Símonarson
- Markús frá Djúpalæk
- Marta Guðjónsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Morgunblaðið
- Natan Kolbeinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Örn Jónsson
- Ólafur Sveinsson
- Ólafur Fr Mixa
- Ómar Bjarki Smárason
- Páll Ingi Kvaran
- Pálmi Gunnarsson
- Pjetur Stefánsson
- Rafn Gíslason
- Ragnar G
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Ragnar L Benediktsson
- Rannveig H
- Árni Gunnarsson
- Ragnheiður Ólafsdóttir
- Rósa Harðardóttir
- ragnar bergsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Samstaða þjóðar
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigrún Jóna Sigurðardóttir
- Sigurbjörn Sveinsson
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Sigurjón Þórðarson
- Sigurður Jónsson
- Skattborgari
- Haraldur Pálsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Guðnason
- Jóhann Pétur
- Sverrir Stormsker
- Sturla Bragason
- Sumarliði Einar Daðason
- Ólafur Ingi Hrólfsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Björn Bjarnason
- Óli Björn Kárason
- Jón Þórhallsson
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þórhallur Guðlaugsson
- Þórhallur Heimisson
- Þorsteinn Erlingsson yngri
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Valdimar H Jóhannesson
- Valsarinn
- Valur Arnarson
- Vefritid
- Ingunn Guðnadóttir
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Vilhjálmur Eyþórsson
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Kristinn Ingi Jónsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Ívar Pálsson
Athugasemdir
Samúð mín er með fólkinu sem býr við þessar hörmungar. Í leiðinni skammast ég mín fyrir að hafa átt þátt í að skapa þetta ástand, þó óbeint sé.
Pálmi Gunnarsson, 21.3.2008 kl. 00:48
Nei, nú fórstu alveg með það Jón - og öðru vísi mér áður brá! Ertu farinn að réttlæta óstjórn einræðisherra?
Ég er ekki að segja að Bush og Cheney hafi farið rétt að eftir að þeir handsömuðu Saddam Hussein. Hins vegar virðist mér að ýmsir og þ.m.t. þú gamli félagi, hafir hreinlega ekki áttað þig á því hvernig hann kom fram við íbúana. Eða er búið að gleyma meðferð hans á Kúrdum og innrásinni í Kúveit? Ég velti því aðeins fyrir mér hvað þú hefðir brugðist við atæðum í Evrópu á tímum Hitlers!
Jónas Egilsson (IP-tala skráð) 21.3.2008 kl. 01:22
Jónas, það hefur enginn varið Saddan Hussein. Nema, jú, Rumsfield á sínum tíma þegar hann hlóð á Saddam gjöfum frá Reagan. Ásamt því að færa honum myndir úr njósnahnöttum af hernaðarstyrk Írana.
Óumdeilanlegt er að Írak hafði engin tengsl við Al Qaeda fyrir hina kolólöglegu innrás í Írak. Í dag, eftir innrásina, er Írak helsta vígi Al Qaeda. Þar fyrir utan er 4,2 milljónir Íraka flóttamenn í dag. Þar af 2 milljónir í neyð. Deilt er um það hvort að 600 þúsund Íraka hafa verið drepnir eða ein milljón.
Eftir stendur að forsendur innrásarinnar voru upplognar og fórnarlömb hennar voru/eru fólk sem hafði ekkert sér til sakar unnið.
Jens Guð, 21.3.2008 kl. 03:10
Jens.
Það sagði enginn að það hefðu ekki verið gerð mistök þarna. Bush og Cheney gerðu ótlal hluti rangt og eru nú að reyna af veikum mætti að vinda ofan af því. Við skulum samt ekki gleyma því hvað Saddam Hussein gerði bæði sínum þegnum og nágrönnum. Áætlað er t.d. að um milljón manns hafi fallið í hinu tilgangslausa stríði hans við Íran, efnavopnaárásir voru gerðar á Kúrda. Í öllu falli fögnuðu Írakar almennt að hann skyldi hrakinn frá völdum í upphafi. En ég er þér sammála um að eftir að ekki hefur verið staðið rétt að uppbyggingunni í Írak. En það að hún hafi ekki tekist sem skyldi, þýðir ekki að innrásin og handtaka Husseins hafi verið röng.
En við skulum taka þessa umræðu aðeins dýpra - og gott væri að heyra álit þingmannsins á því. Það er, að ef það er of kostnaðarsamt að leiðrétta hlutina, þá á ekki að gera það! Er það afstaðan? Ef svo má spyrja t.d. hvort lögsækja eigi eingöngu þá sem ekki geta borið hönd fyrir sig? Á t.d. ekki að sækja mál gegn "voldugum" kaupsýslumönnum, heldur bara kaupmanninum á horninu? Nær siðferðið ekki dýpra en svo að buddan ræður? Er það afstaða Frjálslyndaflokkins, eða e.t.v. "Umburðalyndaflokksins"?
Jonas Egilsson (IP-tala skráð) 21.3.2008 kl. 11:02
Ég bið þjóðina afsökunar í dag. Sjá hér:
http://magnusthor.eyjan.is/
Magnús Þór Hafsteinsson, 21.3.2008 kl. 12:32
Takk fyrir þennan góða pistil Jón. Það er gott til þess að vita að á hinu háa alþingi skuli vera menn eins og þú, sem annt er um siðferði og sóma Íslands. Jónas Egilsson, það er ekkert nýtt við það, því miður, að ríki á þessu svæði sýni Kúrdum grimmd. Sadam fékk gasið sem notað var á Kúrdana fyrir milligöngu Rumsfield, sem sjálfsagt hefði frekar kosið að hann geymdi gasið. Ég efa ekki að Sadam og hans menn hafi sýnt andstæðingum sínum hörku. Það er samt alveg furðulegt ef Bush og hans menn hafa litið á það sem einhverskonar áskorun eða keppni sem þeir yrðu að vinna. Sé sú raunin er sá sigur eini raunverulegi árangur þeirra í stríðinu til þessa.
Sigurður Þórðarson, 21.3.2008 kl. 13:05
Kæri Jónas, það var gott hjá þér að upplýsa Jens og okkur um að Bush og Cheney "vilji af veikum mætti reyna að leiðrétta mistök sín" það er þá gott að geta tekið viljann fyrir verkið. Skrýtið að lesa um það núna að Saddam stríðið milli Iran og Írak hafi verið ónauðsynlegt og allt mannfall báðum megin víglínunnar megi þess vegna skrifast á hann. Sú var tíðin að hann var góði kallinn og Rumsfield sparaði hvorki vopn, hvatningu né lofsorði á framgang Íraka í stríðinu. Varðandi fögnuð Íraka þá var það vitað að hann var umdeildur meðal shita og Kúrda, fögnuðurinn var festur á filmur og rataði á forsíður blaðanna allt í einu hætti fögnuðurinn þetta rifja ég upp á bloggsíðu minni ýta hér
Gallinn á þessari PR maskínu er sá að hún er ekki gerð fyrir sæmilega upplýst fólk eins og okkur Jónas. Ef við viljum vera sannir vinir Bandaríkjanna eigum við að segja þeim ef okkur er misboðið eða þegja ef við viljum ekki taka andstreyminu.
Sigurður Þórðarson, 21.3.2008 kl. 14:22
nú er þetta búið og gert og einfalt að mál að vera vitur eftir á
...hvað vilt þú herra Jón að verði gert akkaúrat núna ?
viltu að kaninn fari einn tveir og þrír.. hvað viltu að þeir geri ??
steini (IP-tala skráð) 21.3.2008 kl. 17:24
Jón, ég skil ekkert í því af hverju "steini" spyr svona skringilega?
Það getur varla verið að hann fylgist eitthvað með. Ég hef nú orð ekki ómerkari manns en Davíðs Oddsona, sem eins og allir vita er manna fróðastur um þetta stríð að því sé löngu lokið og kominn friður og ró í Írak. Fyrir 4 árum flutti hann fróðlegt erindi um sögu stríðsins úr ræðupúlti alþingis og sagði: "Stríðinu er löngu lokið af 800 héruðum í Írak er friður og ró í 795 í einungis 5 héruðum eru enn smá skærur."
Sigurður Þórðarson, 21.3.2008 kl. 21:51
Sigurður!
vilt þú þá ekki koma með tillögu, fyrst Jón hefur enga?
Steini (IP-tala skráð) 22.3.2008 kl. 09:48
Steini það er ekki spurning að vera vitur eftir á. Ég bæði benti á það fyrir og þegar innrásin var gerð að hún væri ólögmæt og engin rök hefðu verið færð fram sem réttlættu innrás.
Ágæti vinur minn Jónas Egilsson ég er ekki að réttlæta Saddam Hussein. En í heiminum eru magar vondar ríkisstjórnir og margir vondir harðstjórar. Að þjóðarrétti hefur engin þjóð rétt til að ráðast inn í lönd þeirra og steypa þeim af stóli og taka þá af lífi. Þrátt fyrir það að bent sé á ólögmæta innrás er ekki verið að verja Saddam.
En hvað finnst þér um það ágæti Jónas að ríkisstjórnin þín skuli senda ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins til Íran til að fá stuðning klerkastjórnarinnar við framboð Íslands til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Þar er stjórn sem bannar trúfrelsi, ofsækir samkynhneigða og þjóðernisminnihluta og þá sem haga sér ekki í samræmi við þröngar skilgreiningar á meintum boðum Kóransins. Hvað finnst þér um svona utanríkisstefnu?
Jón Magnússon, 22.3.2008 kl. 10:29
Semsagt Jón ! þú hefur ekkert annað til málanna að leggja en það að það að " það var ólöglegt að ráðast inn í Írak"
...núna er búið að ráðast inn í Írak og þá er spurningin ..hvað gera menn í framhaldinu??
p.s hvar nálgast maður þessi lög sem þú telur að hafi verið brotin ?
Steini (IP-tala skráð) 22.3.2008 kl. 12:30
Steini, þú spyrð ítrekað, ég svara auðvitað ekki nema fyrir mig. En hvernig væri að spyrja þá sem stóðu að innrásinni þó þeir vissu ekki af hverju þeir réðust á landið er lámark að þeir hafi einhverja hugmynd um hvað þeir ætla sér að gera þarna. Eða hvað? Einn af forvígismönnum stríðsins Davíð Oddsson heldur því fram að stríðinu sé lokið og friður kominn á og það fyrir löngu síðan. Mér skildist á honum að það nægði að hafa Hjálpræðisherinn þarna. Ekki förum við nú að rengja Davíð. Eða hvað? Ég veit auðvitað miklu minna um þetta en Davíð en af því að þú spyrð mig samt. Þá er mitt álit það að ef einhver brytist inn í mitt hús og það væri búið og gert eins og þú segir, vildi ég heldur að hústökumaðurinn hyrfi á braut en að hann héldi til. Varðandi lögin sem þú Steini, ert að undirbúa að nálgast þá býst ég við að Jón eigi við þjóðarrétt og stofnskrá sameinuðu þjóðanna. En kannski hefur þú einhverja skoðun?
Sigurður Þórðarson, 22.3.2008 kl. 19:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.