Leita í fréttum mbl.is

Svar ţitt skal vera já já og nei nei.

Ţegar Ólafur Jóhannesson var formađur Framsóknarflokksins ţá var eitt sinn vísađ til ţeirrar ţekktu setningar í Biblíunni ađ "svar ţitt skal vera já já og nei nei" Ţannig ţótti Framsóknarflokkurinn fara ţá og svo virđist sem flokkurinn hafi nú gengiđ í endurnýjun lífdaga međ afturhvarfi til fortíđar.

Í viđtali í Morgunblađinu í dag lýsir nýkjörinn formađur Framsóknarflokksins skođunum sínum međ einkar fróđlegum Framsóknarhćtti. Hann vill bćđi semja um Icesave skuldbindingarnar og ekki semja um ţćr. Ég velti ţví fyrir mér hvort formađur Framsóknarflokksins viti ekki hver afstađa Framsóknarflokksins var til ţessa máls ţegar ţingsályktunartillaga ţess efnis var afgreidd á Alţingi.  Miđađ viđ afstöđu ţingmanna flokksins í málinu liggur ţá ekki afstađa Framsóknarflokksins ljós fyrir?

Um hugsanlega minnihlutastjórn segir hann ađ ţar eigi ađ fara ríkisstjórn sem sitji sem allra skemmstan tíma og umbođ stjórnarinnar mjög takmarkađ. Á sama tíma bendir formađur Framsóknarflokksins réttilega á mikinn  vanda fjölskyldna og fyrirtćkja í landinu sem brýn nauđsyn sé ađ leysa sem fyrst. 

Mér er ţađ satt ađ segja nokkur ráđgáta hvernig ríkisstjórn sem á ađ hafa takmarkađ umbođ og sitja í sem skemmstan tíma á ađ geta gert eitthvađ sem máli skiptir varđandi ţau ađkallandi vandamál sem viđ er ađ glíma og formađur Framsóknarflokksins bendir réttilega á. 

Nýkjörinn formađur Framsóknarflokksins ber mikla ábyrgđ á ţví hvernig mál hafa ţróast. Hann gaf ţá yfirlýsingu fyrir lögnu ađ Framsóknarflokkurinn mundi verja minnihlutastjórn Vinstri Grćnna og Samfylkingarinnar falli. Ţess vegna fóru  málin í ţennan farveg.

En Sigmundur Davíđ er greinilega nokkuđ snjall samningamađur ţví ađ ţegar hann var búinn ađ trylla VG og Samfylkingu í stjórnarmyndunarviđrćđur ţá segir  hann aftur og aftur já en og já en, bara ef ţiđ geriđ ţetta.  

Raunar er ţessi afstađa hans og Framsóknarflokksins ekki dćmi um hiđ nýja Ísland sem ţeir tala um heldur ţađ gamla. Ţann hráskinnaleik og sérgćsku sem hefur valdiđ ţví ađ fólk hefur ekki viljađ styđja viđ Framsóknarflokkinn.

Formađur Framsóknarflokksins virđist ekki átta sig á ađ viđ erum á ögurstundum í íslensku samfélagi og ţađ liggur á ađ starfhćf ríkisstjórn verđi mynduđ til ađ taka á ţeim bráđavanda sem viđ er ađ glíma ekki til eins mánađar eđa tveggja heldur til lengri tíma. Ríkisstjórn sem ćtlar sér ađ sitja í 2 til 3 mánuđi ćtlar sér ekki og getur ekki markađ afgerandi spor svo sem nauđsyn ber til.  Ég fć ekki betur séđ en ţetta hafi átt ađ vera hundrađ daga gleđistjórn til ađ tryggja stjórnarflokkunum fylgi viđ kosningar en taka verđi á vandamálunum eftir ţađ.

Ríkisstjórn sem treystir sér ekki og mun ekki hafa međ ný fjárlög ađ gera og nauđsynlegar ađgerđir í ríkisrekstrinum er ekki ađ marka neina sérstaka stefnu til frambúđar.  Vandi heimilanna og fyrirtćkjanna er meiri en svo ađ ţađ sé hćgt ađ sćtta sig viđ svona ruglanda í stjórnmálum.

For


mbl.is Stjórn mynduđ í dag eđa á morgun
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

Máliđ er Jón, ađ hćgt er ađ setja fram hugmyndir og stefnur, annađ er ađ framfylgja ţeim. Ţetta held ég ađ ţessum ađilum, sem koma ađ nýrri stjórn sé fullljóst. Ţađ er í raun sáralítiđ sem ný stjórn getur gert á ţeim tíma sem er fram ađ kosningum. Ný stjórn markar sér engin sérstök spor heldur verđur ţađ hennar helsta verk ađ halda sjó.

Ţetta er hins vegar tćkifćri fyrir Sjálfstćđisflokkinn og Frjálslyndaflokkinn ađ gera sér betur grein fyrir ţví hver ţeirra eigin stefna á ađ vera, og ađ efla traust til flokkana međal kjósenda sinna. Varast ćtti ađ eyđa öllu púđrinu í ađ grafa undan stjórn sem gerir hvort sem er afar lítiđ á ţessum stutta tíma.

Mitt ráđ er ađ láta stjórnina í friđi, ţađ tekur ţví nefnilega ekki ađ vera ađ agnúast út í hana. Eins er ekki úr vegi ađ gefa ţessum unga formanni Framsóknarflokksins friđ til ađ koma sér inn í stjórnmálin.

Tćkifćri á tćkifćri ofan.

Nökkvi (IP-tala skráđ) 31.1.2009 kl. 12:32

2 Smámynd: Dunni

Góđ lýsing á Framsókn.

Vitna enn og aftur í Jesaja spámann og sný upp á Framsóknarflokkinn; "Ţér eruđ ekkert. Verk yđar eru einskis nýt. Andstyggilegur er sá er yđur kýs."

Ţađ er samt ekkert furđulegt viđ ađ Samfylkingin og VG hafi ekki talađ viđ FF.  Slíkt samstarf gefur ekki meirihluta.   En ţađ vekur ekki traust ađ ţurfa ađ styđjast viđ Framsókn.

Dunni, 31.1.2009 kl. 22:49

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri fćrslur

Ágúst 2025
S M Ţ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.8.): 36
  • Sl. sólarhring: 893
  • Sl. viku: 4884
  • Frá upphafi: 2581839

Annađ

  • Innlit í dag: 33
  • Innlit sl. viku: 4596
  • Gestir í dag: 33
  • IP-tölur í dag: 33

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband