Leita í fréttum mbl.is

Í kaffibođ til erfingja Khomeni.

Ráđuneytisstjóri utanríkisráđuneytisins fór til Íran í byrjun mars s.l. Engar fréttir bárust af ţessari för ráđuneytisstjórans fyrr en utanríkisráđherra Íran gerđi opinberlega grein fyrir ţví ađ hann hefđi átt viđrćđur viđ íslenska ráđuneytisstjórann. Ekki hafa komiđ fram skýringar af hálfu utanríkisráđherra á ţessari Íransför ráđuneytisstjórans og ţess vegna spurđi ég hana á Alţingi í dag hvort ţessi ferđ hafi veriđ farin á vegum utanríkisráđuneytisins og ţá í hvađa tilgangi.

Fram kom í svari utanríkisráđherra viđ fyrirspurn minni ađ ráđuneytisstjórinn hefđi ekki fariđ í einkaerindum. Hann hefđi fariđ á vegum utanríkisráđuneytisins og ţá vćntanlega á vegum ríkisstjórnarinnar allrar til Íran til ađ vinna ađ stuđningi Íran viđ frambođ okkar til Öryggisráđs Sameinuđu ţjóđanna. Auk ţess hefđi ráđuneytisstjórinn sinnt einhverjum málum vegna íslenskra fyrirtćkja.

Ţá liggur ţađ fyrir. Ríkisstjórnin leitar stuđnings hjá Íranstjórn vegna frambođsins til Öryggisráđsins. Hvađ skyldu bandamenn okkar í NATO segja um ţađ. Skyldu ađrar NATO ţjóđir en Norđurlöndin styđja frambođ okkar. Mér skilst ađ verulegur vafi sé á ţví og raunar líklegt ađ ţau geri ţađ ekki. Sé ţađ rétt er ţađ ţá vegna ţess ađ viđ höfum haldiđ klaufalega á málum og m.a. leitađ stuđnings ţjóđa eins og Íran.  Íransstjórn er ţekkt fyrir ađ brjóta mannréttindi m.a. gegn minnihlutahópum eins og öđrum trúarbrögđum en Shia Íslam og gegn samkynhneigđum svo dćmi séu tekin. Ég tel ţađ meirí háttar mistök ađ sćkjast eftir stuđningi Íransstjórnar međ ţessum hćtti vegna kosningabaráttu til Öryggisráđsins. Einhverjar lágmarkssiđferđiskröfur verđum viđ jú ađ setja okkur.

Hvađ ćtlar utanríkisráđherra ađ gera nćst til ađ afla frambođinu stuđnings? Ţađ er ljóst ađ hún hefur leitađ til ýmissa stjórna Afríkuríkja sem ekki eru ţekkt fyrir virđingu fyrir lágmarksmannréttindum. Í umrćđunni í dag á Alţingi sagđi utanríkisráđherra ađ viđ yrđum ađ leita eftir stuđningi slíkra ríkja og gćtum síđar sinnt skyldum okkar viđ mannréttindi.

Ţetta er vond yfirlýsing. Mér finnst verulega miđur ađ utanríkisráđherra skuli gefa telja allt fallt fyrir atkvćđi. Hvađ ćtlum viđ svo ađ gera í mannréttindamálum komi til ţess ađ viđ náum kosningu til Öryggisráđsins fyrir atbeina ţeirra ríkisstjórna sem misvirđa mannréttindi meir en nokkrir ađrir. Ef til vill telur ríkisstjórnin rétt ađ blanda sér í ţann hóp miđađ viđ  úrskurđ Mannréttindanefndar Sameinuđu ţjóđanna um ađ íslenska kvótakerfiđ brjóti í bág viđ mannréttindi.

Er e.t.v. veriđ af hálfu íslensku ríkisstjórnarinnar ađ leita eftir stuđningi Norđur Kóreu viđ frambođ Íslands til Öryggisráđsins.


Á ađ stoppa atvinnlífiđ?

Ég veit eiginlega ekki hvert stjórnvöld eru ađ fara í efnahagsmálum. Ţrátt fyrir ađ flesti bendi til ţess ađ samdráttur sé í vćndum í íslensku efnahagslífi ţá hćkkar Seđlabankinn stýrivexti ítrekađ. En ţađ er ekki gripiđ til annarra ráđstafanna sem eru mun mikilvćgari eins og stađan er í dag. Hvernig á ađ leysa lausafjárkreppu bankanna og bregđast viđ komist lánastofnanir í verulega erfiđleika. 

Háir stýrivextir Seđlabankans hafa ekki megnađ ađ hamla gegn verđbólgunni og hún er nú sú hćsta í okkar heimshluta og ţađ eru stýrivextir Seđlabankans einnig. Segir ţađ ef til vill einhverja sögu?


mbl.is Seđlabankinn hćkkar stýrivexti
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Bloggfćrslur 10. apríl 2008

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri fćrslur

Júní 2025
S M Ţ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.6.): 759
  • Sl. sólarhring: 798
  • Sl. viku: 5654
  • Frá upphafi: 2557629

Annađ

  • Innlit í dag: 703
  • Innlit sl. viku: 5291
  • Gestir í dag: 667
  • IP-tölur í dag: 651

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband