Leita í fréttum mbl.is

Elliheimilum lokað en loftrýmið er varið stundum.

Í sumar á að loka öldrunarheimilinu á Þingeyri og vafalaust fleiri öldrunarheimilum. Væntanlega hefur verið gerð áætlun um að loka deildum á sjúkrahúsum vegna þess að peningar fást ekki til að halda uppi fullri þjónustu yfir sumarmánuðina.

Á meðan borgum við fyrir erlendar flugsveitir NATO ríkjanna sem hér dveljast stundum við heræfingar sem heitir loftrýmiseftirlit. Þrátt fyrir þetta loftrýmiseftirlit er loftrýmið blessað óvarið meiri hluta ársins. Gildi loftrýmiseftirlitsins eins og það er skipulagt miðast við það að hugsanlega gætu einhverjir fávitar viljað gera eitthvað af sér í loftrými Íslands. Sæmilega skynsamur árásaraðili mundi eðlilega bíða þangað til ekkert lofrtýmiseftirlit er fyrir hendi. Þetta fyrirkomulag getur ekki verið annað en aðhlátursefni út frá herfræðilegum og húmorískum sjónarmiðum.

Það er hins vegar ekkert gamanmál og getur kostað mannslíf að forgangsraða vitlaust eins og nú er gert. Loftrýmiseftirlitið skal kosta en loka á þjónustu fyrir sjúklinga og aldraða að hluta.  


Vill Sjálfstæðisflokkurinn nýja ríkisútgerð?

Einn þingmaður Sjálfstæðisflokksins telur eðlilegt að skoða það hvort stofna eigi til nýrrar ríkisútgerðar eða eyða skattfé til að styrkja strandsiglingar.  Þingmaðurinn komst að þessari niðurstöðu eftir að samgönguráðherra sagði honum að ein ferð flutningabíls með tengivagn orsakaði jafn mikið slit á vegum og ferðir 12.000 fólksbíla.  Þetta svar ráðherra er raunar með öllu glórulaust en það er annað mál. Þó við gefum okkur það að flutningabílarnir valdi svona miklu sliti þá er það ekki þar með sagt eðlilegt ályktun að stefna skuli að ríkisstyrktum flutningum á sjó. Vandamálið er vegakerfið en ekki flutningabílarnir.

Hvort sem mér, samgönguráðherra eða þeim þingmanni Sjálfstæðisflokksins sem vill framkvæma frjálshyggju með sósíalisma líkar betur eða verr þá eru flutningar stórra vöruflutningabifreiða komnir til að vera. Vandamálið eru ekki stóru flutningabílarnir heldur lélegir vegir.  Í vegamálum hafa menn hugsað allt of skammt og dregið rangar ályktanir af gefnum forsendum eins og þingmaðurinn sem vill nýja ríkisútgerð.

Við eigum að gera stórátak í samgöngumálum og búa til raunverulega varanlega vegi og mun breiðari en nú er. Vegirnir eru víðast svo mjóir að venjulegum ökumönnum finnst oft óþægilegt að mæta stórum flutningabílum þó þeir víki vel út í kant sem raunar gerist ekki alltaf.

Ríkisútgerð er afturhvarf til fortíðar og sýnir á hvaða hugmyndafræðilegu villigötum Sjálfstæðisflokkurinn er.


Bloggfærslur 7. maí 2008

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.6.): 9
  • Sl. sólarhring: 861
  • Sl. viku: 4666
  • Frá upphafi: 2557732

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 4343
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband