Leita í fréttum mbl.is

Pólitísk aftaka?

Skoðanir ritstjórnar Morgunblaðsins koma fram í ritstjórnargreinum blaðsins og í Staksteinum. Í Staksteinum í gær segir:

"Nú þarf stjórnmálamaðurinn Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson að gera slíkt hið sama og axla pólitíska ábyrgð sína og hverfa af vettvangi stjórnmálanna."

Síðar segir í Staksteinum að það hafi komið fram í fréttaskýringu Péturs Blöndal alþingismanns  í Morgunblaðinu að það sé vilji borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, þingmanna flokksins og flokksforustu að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hverfi af vettvangi stjórnmálanna.

Aldrei fyrr hefur verið veist að pólitískum forustumanni Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur með þeim hætti sem gert er í Morgunblaðinu. Raunar minnist ég þess ekki að Morgunblaðið hafi fyrr farið þannig fram gagnvart forustumanni Sjálfstæðisflokksins þegar eining er að öðru leyti í flokknum. Formaður Sjálfstæðisflokksins hefur raunar lýst yfir stuðningi við Hönnu Birnu og hefur þar með komið sínum skilaboðum á framfæri gagnvart Vilhjálmi Þ Vilhjálmssyni.

En hvað er vandamálið . Af hverju þarf að veitast að Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni með þessum hætti í fréttaskýringum og ritstjórnarpistlum Morgunblaðsins?  

Sé það vilji borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins að Vilhjálmur Þ. eigi að víkja þá afgreiða þeir málið. Málið er ekki flóknara en það.  Er það ekki sérkennilegt að það skuli vera gelt að forustumanni Sjálfstæðisflokksins með þessum hætti  utan úr bæ? Þess ætti ekki að vera þörf nema ef svo skyldi vera að borgarstjórnarfólk Sjálfstæðisflokksins sé þeim annmörkum háð að það geti ekki gengið frá nauðsynlegum afgreiðslum og tekið ákvarðanir.

Þarf Morgunblaðið og aðrir aðilar í flokkseigendafélagi Sjálfstæðisflokksins að ákveða málið fyrir borgarstjórnarflokkinn? Af hverju gengur borgarstjórnarflokkurinn ekki frá sínum málum sjálfur? 


Bloggfærslur 6. júní 2008

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.6.): 91
  • Sl. sólarhring: 927
  • Sl. viku: 4748
  • Frá upphafi: 2557814

Annað

  • Innlit í dag: 88
  • Innlit sl. viku: 4425
  • Gestir í dag: 88
  • IP-tölur í dag: 88

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband