Leita í fréttum mbl.is

Ekki gekk að loka kóvídið úti.

Nýsjálendingar eru nú í mesta basli vegna Kóvíd. Lengi vel trúðu sóttvarnaryfirvöld og stjórnmálaelítan þar í landi eins og Inga Sæland hér á landi, að hægt væri að loka veiruna úti með því að beita ströngustu sóttvörnum og nánast loka landinu. 

Það gekk ekki þar frekar en nokkursstaðar annarsstaðar. 

Afleiðingin er sú, að vandamálunum var frestað og nú geisar kvóvídið af fullum þunga í Nýja Sjálandi og forsætisráðherrann verður að fresta eigin brúðkaupi. 

Kóvíd veiran eins og aðrar veirur virða ekki landamæri. 

Annað er uppi á teningnum í Bretlandi. Þegar sýnt er frá knattspyrnu í dag sjást fótboltavellir þar sem fullt er af áhorfendum og hvorki þeir né leikmenn eru með grímur eða hafa nein fjarlægðartakmörk. Lífið er eins og það var fyrir kóvíd. Af hverju getum við og Nýsjálendingar ekki gert þetta líka?


mbl.is Herðir aðgerðir og aflýsir eigin brúðkaupi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Síberíuloftslag

Blaðamaðurinn Michael Deacon rifjaði það upp í gær, að enska blaðið the Observer hefði birt frétt í febrúar árið 2004 um innihald leyniskýrslu frá Pentagon í Bandaríkjunum, sem blaðið taldi meiriháttar afrek að hafa komist yfir. 

Skv. frétt blaðsins í febrúar 2004 þá mundu loftslagsbreytingar leiða til þess, að það mundi kólna í Evrópu og á Bretlandi mundi verða Síberíuloftslag árið 2020. Í gær var kalt í Bretlandi miðað við árstíma og lægsti hiti sjö stiga frost. En í Síberíu var frostið 52 gráður.

Þá sagði líka í frétt blaðsins, að það mundi kólna í Evrópu og leiða til skorts á vatni og orku. Þá yrðu meiriháttar þurkar, hungursneið og óeirðir í álfunni.  Skelfilegir ofsavindar mundu gera hluta Hollands óbyggilegt og borgin Haag yrði yfirgefin og tóm árið 2007. Árið 2020 var staðreyndin samt sú að íbúum í Hag hafði fjölgað um 100 þúsund manns. 

Spálíkanið sem Observer birti árið 2004 finnst okkur algjörlega galið í dag. Allar spár um loftslagsbreytingar og hlýnun jarðar hafa verið álíka galnar allt frá þeim tíma. Samt dansar pólitíska elítan og fréttaelíta heimsins í kringum þetta bull og hamast við að gera börn og unglinga dauðhrædd við ógn sem er ekki fyrir hendi. 

Draugasögur nútímans eru verri en drauga- Grýlu- og tröllasögurnar í gamla daga. Þá sussaði fólk á börnin og sagði þeim að þetta væri ekki rétt. Nú hamast æðstu menn þjóða eins og forsætisráðherra Íslands við að sannfæra fólk um að nútíma Grýlusögurnar séu heilagur sannleikur. 


Bloggfærslur 23. janúar 2022

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 657
  • Sl. sólarhring: 690
  • Sl. viku: 2344
  • Frá upphafi: 2296904

Annað

  • Innlit í dag: 624
  • Innlit sl. viku: 2184
  • Gestir í dag: 612
  • IP-tölur í dag: 589

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband